Beiðni frá mér til ykkar
Kæru lesendur.
Ég hef haldið þessari síðu úti í ansi mörg ár og skrifað margt misgott, flest þó stórkostlegt. Ég hef hér ritað menningarsögu Íslands einn og óstuddur án þess að taka krónu fyrir, og hef aldrei beðið um neitt í staðinn. Ég hef ekki einu sinni fengið heiðurslistamannalaun svo ég viti til! Síðustu tvö árin hefur mörgum þótt líða langt á milli pistla en hafa ber í huga að ég eyði líklega meiri tíma að meðaltali í hverja færslu en gengur og gerist meðal bloggara. Oft hef ég verið að eyða nokkrum klukkutímum í að skrifa og endurskrifa einn pistil, ekki síst ef ég ákveð að skreyta hann með ódauðlegu meistaraverki úr MS Paint.
Ég veit að mörg ykkar hafa skemmt sér við að lesa þessa síðu í gegnum tíðina og nú vil ég biðja um einn lítinn greiða í staðinn. Greiða sem tekur t.d. talsvert styttri tíma en það tekur mig að spyrða saman mynd af forsetanum og rugguhesti eða að rita nákvæma frásögn í raunsæisstíl af átökum mínum við hræ.
Gerið mér allra náðarsamlegast þann greiða að skrá nafn ykkar á undirskriftarlista til stuðnings þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.
Helst ættu náttúrulega allir Íslendingar að gera þetta fyrir sig og sína, en ef þið viljið bara gera þetta fyrir mig, þá er það líka í fínu lagi. Ég elska ykkur líka.
Það eru ekki allir sammála um hver besta niðurstaðan úr slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu væri, en kannanir sýna að meirihluti þjóðarinnar vill leyfa þjóðinni að eiga síðasta orðið. Sumir segja að þetta mál sé ekki tækt í þjóðaratkvæðagreiðslu, þeir um það. Stjórnarskrá Ísland tekur það skýrt fram að öll lög frá Alþingi þurfi undirskrift forseta, og að hann geti neitað að undirrita þau og þannig sent þau til þjóðaratkvæðis.
Andstæðingar þjóðaratkvæðis segja þessi lög öðruvísi en önnur lög, en stjórnarskráin er ósammála, og stjórnarskrár eru til þess gerðar að menn geti ekki jafn auðveldlega sveigt atburði líðandi stundar að sinni lund.
Það eina sem þín undirskrift þarf að segja er að það sé þinn vilji að þjóðin fái sjálf að ráða sínum örlögum í þessu stóra máli (eða að þú gerir allt sem ég segi af því ég er fokking rosalegur). Niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslunni er alls ekki fyrirfram ljós, og þú ert ekki að taka afstöðu með eða á móti Icesave með því að skrifa undir.
Ég vona að þið hugsið málið vel, fyrir framtíð Íslands, og fyrir gamla. Gleðilegt ár.
p.s. Ef margir taka undir þessa auðmjúku bón og ég fæ að kjósa um Icesave, þá skal ég á móti vera duglegri að eyða frítímanum í skriftir á næsta ári.
