Hnakkus: júní 2009

17.6.2009 

Af gungum og druslum

Image Hosting by PictureTrail.com

Sagði ég ekki? Þeir eru allir eins - tvítyngdar lyddur.

Svo talar fólk um lýðræði og að öll berum við ábyrgð á því sem þetta meinta lýðræðislega yfirvald tekur sér fyrir hendur? Hvernig er hægt að tala um lýðræði þegar enginn fær nokkurn tíma að vita neitt? Á hvaða grundvelli á almenningur að geta tekið upplýsta ákvörðun um það hver eigi að stjórna sér næstu fjögur árin þegar stjórnmálamenn ljúga einu fyrir kosningar en stíma svo í þveröfuga um leið og atkvæði hafa verið talin? Hvernig er hægt að ætlast til að almenningur viti eitt né neitt í sinn haus þegar sjálfir þingmennirnir fá ekki einu sinni upplýsingar um stóralvarleg mál sem þeir þó hika ekki við að kjósa um? Og hvernig fær sumt fólk það út að öll axarsköft ráðamanna og þeirra skósveina séu réttilega okkar sameiginlega ábyrgð? Sama hvað við kusum eða kusum ekki...sama hvernig við hegðuðum okkur. Unnendur þessa fjórflokkalýðræðis mega éta það sjálfir.

Þetta kerfi er eins og ofbeldisfull sambúð. Allir fullir af samviskubiti yfir einhverju sem þeir bera enga ábyrgð á.

Og já, ég er að tala um Icesave. Djöfull fer þetta Icesave mál brjálæðislega í taugarnar á mér. Stuðningsmenn stjórnvalda eru svo þyrstir í að sanna að Sjálfstæðisflokkurinn hafi skilið okkur eftir án nokkurra undankomumöguleika, að þeir eru tilbúnir að reyta upp hvert einasta hálmstrá til að afsaka stærstu mistökin af þeim öllum. Þörf fólks til að sanna fyrir sjálfu sér og öðrum að það hafi verið í réttu liði er svo sterk, að engin rök skipta máli og engar afleiðingar eru of hræðilegar. Ef þingið samþykkir Icesave, og Ísland sekkur í sára fátækt í kjölfarið, þá getur þetta fólk loks andað léttar og klappað sjálfu sér á kollinn fyrir að hafa kosið rétt. Það leggur meira að segja kannski saman í púkk fyrir einum bjór til að fagna almennilega!

Þetta er eins og að horfa upp á ofsatrúaða píslarvotta í þriðja heims ríkjum lemja sig til blóðs með birkihríslum til að öðlast viðurkenningu. Nema alls ekki eins fyndið.

Já já, Davíð var hrokafullur valdafíkill með horn og hala. Bjarni Ben er eins og hross í jakkafötum. Geir Haarde er álíka gagnlegur og skjaldbaka með stjarfklofa. Hannes Hólmsteinn er hlutdrægari og leiðinlegri en lögfræðingur á prósentum, Þorgerður Katrín er eins bergrisinn eftir kynskiptaaðgerð og Sigurður Kári vildi leyfa ykkur að kaupa bjór úti í búð.

En...get the fuck over it!

það er löngu tímabært að leggja frá sér fornleifafræðiáhöldin og fara að pæla aðeins í því sem er að gerast akkúrat NÚNA...sama hvaða liði ykkur finnst þið tilheyra. Handan við hornið er væntanleg samþykkt Alþingis á leynilegum nauðungarsamningi sem mun mjög líklega rústa þessu landi endanlega. Ef það gerist...þá getum við fyrst farið að tala um skort á valkostum. Og þið getið fokking gleymt því að ég nenni að blogga á kálfskinn fyrir ykkur.

"En Hnakkus! Veistu ekki hvað gerist ef við segjum nei? Við verðum útilokuð úr samfélagi þjóðanna...hvað sem það nú þýðir! Okkur verður hent út úr EES! Það vill enginn kaupa fisk af okkur! Við komumst ekki í ESB! Það koma drekar og borða okkur!! VÆÆÆÆÆÆÆL!"

Jafnvel þó þetta væri allt satt, sem það er ekki, hvað þá með það? Til að afarkostir virki þá þurfa þeir að hafa tvennt til brunns að bera:

1. Þeir þurfa að vera trúverðugir.
2. Þeir þurfa að vera hræðilegri en hinn valkosturinn.

Í fyrsta lagi...viðskipti. Verður okkur hent út úr EES? Örugglega ekki. Það eru bara getgátur um eitthvað sem alls ekki liggur á borðinu. Ef evrópuþjóðirnar ætla að henda okkur úr EES nema við skrifum undir, þá þarf það að vera skjalfest eins og annað í þessu máli. Það er ekki nóg að giska bara á að kannski hafi einhver sagt það einhvern tíma og veðja svo 700 milljörðum á það eins og mongólíti í spilavíti.

Hætta "allir" að kaupa fisk "af Íslendingum"? Auðvitað ekki. Best að útskýra þetta nánar fyrir þeim lesendum mínum sem eru með sérþarfir. Íslenska ríkið selur ekki fisk og erlendar ríkisstjórnir eru ekki helstu kaupendur fisks. Fyrirtæki kaupa fisk af öðrum fyrirtækjum af því þau græða pening á því. Veitingastaðir og verslanir um alla Evrópu hætta ekkert að kaupa dúndurgóðan fisk sem þeir hagnast sjálfir vel á að endurselja af því að Gordon Brown er í fýlu við Jóhönnu og Steingrím. Þannig virkar heimurinn ekki. Það eiga engir veitingahúsaeigendur eftir að segja..."AhA! Zeir skrifa ekki undir non?? Zá ég ekki kaupa meiri fisk af zessir ribbaldar!!". Það er öllum skítsama um þetta rugl nema einhverjum pólitíkusum. Til þess að stoppa sölu á afurðum frá Íslandi þyrfti viðskiptabann og það er enginn að fara að setja viðskiptabann á Ísland út af vandræðalegri deilu sem Bretar þora ekki einu sinni að láta reyna á fyrir dómsstólum.

ESB. Komumst við kannski ekki í það ef við neitum? Ok þá. ESB breytir varla neinu til eða frá ef við skuldum meira en við getum nokkurn tíma borgað. ESB hefur verið kynnt sem lækningin við öllum okkar vandamálum en það er helvíti hart ef við þurfum að skjóta okkur í hausinn til að komast til læknisins. Að skrifa undir Icesave samningana til að komast í ESB er dálítið eins og að skera af sér skrallið til að komast á deit með draumadísinni. Tilgangslaust í besta falli.

Verðum við "útilokuð úr samfélagi þjóðanna"?. Ég veit ekki einu sinni hvað það á að þýða og ég held að enginn annar viti það heldur. Helst skýt ég á að það þýði að Ólafi og Dorrit verði boðið í færri fínar veislur. Það er allavega meiri möguleiki á að ég lifi það af en lífstíðardóm í skuldafangelsi.

Auðvitað hefði verið best ef Geir og Ingibjörg hefðu tekið rétt á þessu frá upphafi. Mótmælt hryðjuverkalögunum, rekið breska sendiherrann heim í tjöru og fiðri, dregið bretana fyrir rétt...og svo framvegis. En þau gerðu það ekki og þá er ekkert annað hægt að gera en að taka bestu ákvarðanirnar í stöðunni. Að samþykkja Icesave undirskriftina hans Steingríms er ekki ein af þeim. Ef við hefðum enga valkosti þá þyrftu þessir böðlar ekki undirskrift frá okkur.

Ef þingið samþykkir þennan samning sem það fær ekki að sjá, á forsendum sem það fær ekki heldur að sjá, þá þarf að fjarlægja það með valdi og rifta samningnum. Þegar það er búið og gert skal ég persónulega taka upp símann í stjórnarráðinu og segja Gordon Brown að fokka sér.