Hnakkus: mars 2009

15.3.2009 

Patak's er úr Pacas!


Image Hosting by PictureTrail.com


1.3.2009 

Skál!


20 árum eftir að bjórbanninu var aflétt skilur ekki nokkur eðlilegur maður af hverju bjór var bannaður til að byrja með eða við hvað menn voru hræddir þegar til stóð að leyfa hann. Nógu vissir voru fýlupúkarnir nú samt um að allt myndi fara í fokk á no time ef landsmenn fengju að sötra einn kaldan.

Rökin gegn því að leyfa bjórinn á sínum tíma voru nákvæmlega þau sömu og fýlupúkarnir nota núna til að bölsótast gegn því að Íslendingar fái að kaupa áfengi í matvörubúðum. Nema að núna er búið að bæta við einum snilldarrökum. Að úrvalið af fíneríi geti aldrei orðið það sama í einkareknum verslunum og í ríkisbúðinni....af því það er klárlega í verkahring ríkisins að halda úti stórfenglegu úrvali víntegunda fyrir sælkera. Eða eitthvað.

Forræðishyggja er álíka töff og móbrúnu ullarjakkafötin hans Steingríms J. Leyfum allt nema fýlupúka.