Beiðni frá mér til ykkar
Kæru lesendur.
Ég hef haldið þessari síðu úti í ansi mörg ár og skrifað margt misgott, flest þó stórkostlegt. Ég hef hér ritað menningarsögu Íslands einn og óstuddur án þess að taka krónu fyrir, og hef aldrei beðið um neitt í staðinn. Ég hef ekki einu sinni fengið heiðurslistamannalaun svo ég viti til! Síðustu tvö árin hefur mörgum þótt líða langt á milli pistla en hafa ber í huga að ég eyði líklega meiri tíma að meðaltali í hverja færslu en gengur og gerist meðal bloggara. Oft hef ég verið að eyða nokkrum klukkutímum í að skrifa og endurskrifa einn pistil, ekki síst ef ég ákveð að skreyta hann með ódauðlegu meistaraverki úr MS Paint.
Ég veit að mörg ykkar hafa skemmt sér við að lesa þessa síðu í gegnum tíðina og nú vil ég biðja um einn lítinn greiða í staðinn. Greiða sem tekur t.d. talsvert styttri tíma en það tekur mig að spyrða saman mynd af forsetanum og rugguhesti eða að rita nákvæma frásögn í raunsæisstíl af átökum mínum við hræ.
Gerið mér allra náðarsamlegast þann greiða að skrá nafn ykkar á undirskriftarlista til stuðnings þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.
Helst ættu náttúrulega allir Íslendingar að gera þetta fyrir sig og sína, en ef þið viljið bara gera þetta fyrir mig, þá er það líka í fínu lagi. Ég elska ykkur líka.
Það eru ekki allir sammála um hver besta niðurstaðan úr slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu væri, en kannanir sýna að meirihluti þjóðarinnar vill leyfa þjóðinni að eiga síðasta orðið. Sumir segja að þetta mál sé ekki tækt í þjóðaratkvæðagreiðslu, þeir um það. Stjórnarskrá Ísland tekur það skýrt fram að öll lög frá Alþingi þurfi undirskrift forseta, og að hann geti neitað að undirrita þau og þannig sent þau til þjóðaratkvæðis.
Andstæðingar þjóðaratkvæðis segja þessi lög öðruvísi en önnur lög, en stjórnarskráin er ósammála, og stjórnarskrár eru til þess gerðar að menn geti ekki jafn auðveldlega sveigt atburði líðandi stundar að sinni lund.
Það eina sem þín undirskrift þarf að segja er að það sé þinn vilji að þjóðin fái sjálf að ráða sínum örlögum í þessu stóra máli (eða að þú gerir allt sem ég segi af því ég er fokking rosalegur). Niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslunni er alls ekki fyrirfram ljós, og þú ert ekki að taka afstöðu með eða á móti Icesave með því að skrifa undir.
Ég vona að þið hugsið málið vel, fyrir framtíð Íslands, og fyrir gamla. Gleðilegt ár.
p.s. Ef margir taka undir þessa auðmjúku bón og ég fæ að kjósa um Icesave, þá skal ég á móti vera duglegri að eyða frítímanum í skriftir á næsta ári.

Það er misskilningur að þessi lög sem þingið var að samþykkja í gær sé endirinn á þessu "icesave máli" og að full dramatískt að þau.
Hefurðu lesið þessi lög? Textinn er frekar stuttur og meltanlegur. Það fylgir reyndar með kílómeter af athugasemdum, en þau eru ekki hluti af lögunum.
Hitt er svo annað mál að stjórnvöld hafa staðið sig illa í að selja almenningi að réttlætið sé að ná fram að ganga gagnvart pakkinu sem kom okkur í þessa aðstöðu.
Posted by
Arnþór Snær |
31 desember, 2009 14:54
Gleymdi að merkja við "email follow up comments".
Posted by
Arnþór Snær |
31 desember, 2009 14:55
Þetta er ekki endirinn nema forsetinn skrifi undir.
Fleiri undirskriftir geta mögulega stöðvað það. Ég leita að þínu nafni þarna, Arnþór!
Posted by
Hnakkus |
31 desember, 2009 14:56
Þannig að þú hefur ekki lesið lögin? Gott og vel. Múgæsing er ákveðið form lýðræðis.
Gleðilegt ár annars, ég hef alltaf haft gaman að blogginu þínu.
-A
Posted by
Arnþór Snær |
31 desember, 2009 15:04
Ég kanna að meta þetta góða blogg en ég er samt ekki til í að fórna landinu fyrir það.
Þessi listi hefur akkúrat ekkert að segja því það verður aldrei þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál. Lögin verða dregin til baka og eftir 4 mánuði af tómu rugli (meðan landið brynni) kæmi ný ríkisstjórn með annan og jafn lélegan samning. Það er ef mótaðilaðirnar, sem gætu bara heimtað að við borgum allt strax, vildu á annað borð semja við okkur. Þetta er alveg dagljóst. Ekki láta glepjast af lýðskrumara ársins honum Sigmundi Davíð.
Gleðilegt nýtt ár!
Posted by
Nafnlaus |
31 desember, 2009 15:31
Auðvitað hef ég lesið lögin Arnþór. Ef þú heldur hins vegar að þau skáni eitthvað við að ég renni augunum yfir þau þá ofmeturðu mig.
Ríkisábyrgðina á að bera undir þjóðina. Framkvæmdavaldsofbeldi og pólitískir klækir eiga ekki að vera síðasta orðið í svona máli.
Nafnlaus: Rangt. Ef þessi lög fá ekki undirritun, standa lögin frá í sumar. Ef þú getur bent mér á eitthvað ákveðið sem myndi ekki ganga sinn vanagang við þær aðstæður, þá endilega gerðu það. Ríkisstjórninni mistkókst það nefnilega. Allt sem þeir sögðu að myndi ekki ganga, gekk. Það er búið að kalla blöffið.
Posted by
Hnakkus |
31 desember, 2009 16:08
Vandamálið við beint lýðræði, þ.e.a.s. þjóðaratkvæðagreiðsla um hvert mál:
Fólk kýs með betra heilbrigðiskerfi en á móti því að borga fyrir það.
Það gengur ekki upp.
Posted by
gös |
31 desember, 2009 16:41
Segjum að forseti skrifi ekki undir og segjum að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem þetta frumvarp verður fellt. Hvað kemur þá næst? Icesave-málið hverfur ekkert við það.
Eldri Icesave-lögin með fyrirvörunum verða þá áfram í gildi af Íslands hálfu en Bretar og Hollendingar munu ekkert fallast á þá fyrirvara núna frekar en þeir gerðu síðast. Það verður einfaldlega sest að samningum aftur og búinn til nýr samningur og lagt fram nýtt frumvarp keimlíkt því sem samþykkt var 30. desember. Þá verður það gert í nafni nýrrar ríkisstjórnar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokka sem allt í einu verða komnir á þá skoðun að eina leiðin fyrir Ísland sé að semja um Icesave. Þá verður þjóðin líka orðin nógu þreytt á Icesave til þess að nenna ekki lengur að spá í þessu þannig að pressan verður minni gagnvart forsetanum.
Posted by
BB |
02 janúar, 2010 02:58
Var ekki verið að setja lög um ríkisábyrgð á þesum tryggingasjóði ?!
Það er lykilatriði að slíkt sé til staðar en ekki að þjóðin sé að "borga Icesave" en samt er þjóðin að sjálfsögðu að því fyrir landráðamenn og föðurlandssvikara, ef af verður.
En að sjálfsögðu borga ég ekki neitt Icesave því ég er ekki hluti af "pay pride" þjóðinni sem er samansafn úrkynjaðra einskis nýtra afæta sem aldrei hafa migið í saltann sjó.
Ég afhenti mitt eigið persónulega skjal til að hvertja forsetafíflið til að skrifa ekki undir neinn landráðamannasamning og það muni kannski milda dóminn yfir hálfvitanum og júðaprinsessunni hans fyrir að vera samveekamenn landráðamanna og föðurlandssvikara !
Þau skulu líka í fangelsi og betrunarvinnu fyrir svikin við þjóðina.
Ég verð hluti af þeim sem taka landið til baka af ræningjum og aumingjum með hor og ræfildómsskríðara frá helvíti.
Ég er hluti af þeirri þjóð sem er ekki að borga fyrir vitleysinga eða leyfa útlendingum að vaða hér uppi eða eiga eitt né neitt og haldið þið svo öll sömul kjafti.
Posted by
Ragnar |
02 janúar, 2010 04:40
Raggi rasisti! Raggi raaaasisti!
En ég sagði ekki neitt sko, þannig ég þarf ekkert að halda kjafti.
Það ætti frekar að skera af þér fingurna, kjepps!
Wassup now, beeeotch!
Wessside
Posted by
You know what's up! |
02 janúar, 2010 12:37
Ég vil biðja fólk um að hætta að senda inn leiðinleg komment og senda skemmtileg komment í staðinn.
Posted by
Hnakkus |
02 janúar, 2010 15:14
skrifa ekki undir þetta.
Posted by
Sylvia |
02 janúar, 2010 17:07
Snáfaðu þá af síðunni minni, væna.
Posted by
Hnakkus |
02 janúar, 2010 18:01
(ekki skemmtilegt komment)
Getur einhver hérna bent mér á hvað neyðarlögin, sem fyrri ríkisstjórn skrifaði undir, hafa að segja um það ef forsetinn synjar þessu plaggi?
Posted by
Mundihau |
02 janúar, 2010 18:03
ESA vill allavega meina að setning neyðarlaganna hafi verið eðlileg vörn.
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item315850/
Skrýtið að upplifa að erlend eftirlitsstofnun taki undir málstað þjóðarinnar á meðan ríkisstjórnin talar gegn honum.
Posted by
Hnakkus |
02 janúar, 2010 18:50
Það var íslenskur lögfræðingur sem skrifaði bráðabirgðaálit ESA.
Til hamingju með niðurstöðu forsetans. Vonandi var þetta rétt ákvörðun. Sjálfur er ég eins og lauf í vindi með þetta drasl.
Posted by
Nafnlaus |
08 janúar, 2010 01:20
Ahh. Hlaut að vera. Þessvegna skrifaði hann svona góða íslensku. Núna þurfum við bara íslenskan dómara og málið er dautt.
Annars er ég hæstánægður! Við erum ennþá að berjast og eigum ennþá von.
Posted by
Hnakkus |
08 janúar, 2010 16:38
" p.s. Ef margir taka undir þessa auðmjúku bón og ég fæ að kjósa um Icesave, þá skal ég á móti vera duglegri að eyða frítímanum í skriftir á næsta ári."
Er enginn búinn að kalla blöffið þitt! Ég er alveg brjál! Ég skrifaði undir þennan undirskriftarlista, kaus á móti Iceave, reifst við fjöskyldu og vini - og viti menn, lögin fara í þjóðaratkvæðisgreiðslu og er hafnað. En það er allt fyrir bý! Þú hafðir okkur að fíflum og hefur ekki skrifað rassgat fokking auminginn þinn. Aldrei ætla ég að rigga kosningum fyrir þig félagi.
Posted by
Einn alveg brjálaður |
15 september, 2011 23:20