Hnakkus: Sannleikurinn mun gjöra yður frjáls

« Home | Kommaborgarar » | Hjátrúarbragðafræði » | Forseti Íslands að ríða » | Hryllingsmyndir, brennivín, skeinipappír og grátan... » | Kastljós » | Rantur dagsins » | 63 krónur » | Ósæmileg meðferð á líki » | Stærstu mistökin » | Skýrsla seðlabankans um Icesave » 

17.11.2009 

Sannleikurinn mun gjöra yður frjáls

Guðrún Karlsdóttir, prestur í Grafarvogi, átti stórleik í fréttunum um daginn þegar hún lýsti yfir stuðningi við áætlanir breskra stjórnmálamanna um að láta merkja breyttar og fegraðar myndir í tímaritum og auglýsingum.

"Ég er alveg til í að sjá svona viðvaranir á auglýsingum þegar ég er að skoða...uuhh ehhh...hrukkukremið sem að mig langar í og mig dreymir um að verða sléttari og fallegri"

...sagði sérann spekingslega og bætti svo við að sérstaklega væri þetta mikilvægt fyrir ungar stelpur svo þær færu nú ekki að gera sér falskar væntingar um raunveruleikann.

Á blogginu sínu skrifar presturinn svo: Vandinn er bara sá að þetta eru ekki einu blekkingarnar sem fyrir koma í auglýsingum. Auglýsingar ganga meira og minna út á að blekkja okkur.

Núna er ég kannski að berja dauðan prest...en prestar hafa hingað til ekki beint verið þekktir fyrir ólgandi ást sína á sannleikanum. Guðrún Karlsdóttir og kollegar hennar fá vel greitt fyrir að telja fólki trú um að almáttug vera hafi skapað allan alheiminn til þess eins að gera langdregna félagsfræðitilraun á tvífætlingastofni sem hún plantaði á eina af skrilljón plánetum himingeimsins. Prestarnir hafa það beinlínis að ævistarfi sínu að troða því inn í hausinn á fólki að þessi almáttuga, algóða og alvitra vera hafi svo miklar áhyggjur af hegðun okkar, og þá helst kynlífshnoðinu, að hún hlusti á allt og heyri allt og hendi okkur í eilífðarbál af eintómri umhyggju ef við sitjum ekki stillt og bíðum dauðans á þessum skitnu áttatíu árum sem hún skammtar okkur. Þetta hlýtur að teljast óvenjulegt tómstundargaman hjá gaur sem getur skapað heilan alheim?

"LoL...setjum á þau kynfæri sem er ýkt stuð að juða við önnur kynfæri, og kveikjum svo í þeim ef þau fatta ekki að fara til hempuklædds embættismanns og fá ríkisvottun á juðið fyrst...lololol. Hey, og látum embættismennina allavega fá hálfa milljón á mánuði af skattfé, k"

Þessu vilja prestar að þú trúir, en hafa á sama tíma þungar áhyggjur af ónákvæmum myndum í auglýsingum fyrir krem sem einhverjir vitleysingar halda að geti snúið við öldrun húðarinnar?

En batnandi fólki er best að lifa og í anda þessarar nýju sannleiksbyltingar útbjó ég nokkrar endurbættar Jesú myndir með viðeigandi viðvörunum sem Séra Guðrún getur tekið með sér í sunnudagaskólann svo ungar stúlkur, og drengir, verði ekki óraunverulegum eða fegruðum ímyndum að bráð.

Image Hosting by PictureTrail.com

Image Hosting by PictureTrail.com

Image Hosting by PictureTrail.com

Bravó!

Eins og einhver sagði: It's funny... because it's true!

Meira svona!

Hells yea!

Þetta er ein sú ógeðslega fyndnasta færsla sem frá þér hefur komið. Samt er alveg fullt vit í þessu.

Hversvegna í ósköpunum heldur Jésu á enska fánanum í síðustu myndinni?

Það er góð spurning. Ég skal spyrja hann á næsta frímúrarafundi.

Frábært! Ég myndi kaupa bol með þessum myndum á..

Þú ert snillingur... það er svo einfallt

Jamm. Takk fyrir fróðlega og skemmtilega færzlu. Hverju orði sannari...

Kv. Sigurjón Vilhjálmsson

Skrifa ummæli

Linkur á færslu

Búa til tengil