Hryllingsmyndir, brennivín, skeinipappír og grátandi hippar.

Baldvin bræðurnir á góðri stundu
Í dag sagði fréttamiðillinn Vísir.is frá fréttnæmri bíóferð þeirra skötuhjúa. Þau hjúin skelltu sér á skandínavísku hryllingsmyndina "Antichrist" og bjuggust eðlilega við því að njóta hugljúfrar kvöldstundar í glampa stóra tjaldsins. Hryllingsmyndin reyndist aftur á móti vera nokkuð hryllileg öllum að óvörum. Jón Baldvin rauk út í hléi og skildi vesalings Bryndísi eftir eina í myrkrinu, stjarfa af ófögnuði. Jón Baldvin tekur það sérstaklega fram í fréttinni að hann hafi ekki grautað á nærstadda eins og ónefndur kvikmyndagestur lét víst eftir sér. "Ég er lífsreyndur maður" sagði hann furðulegum rómi og virkar nokkuð rogginn þrátt fyrir að hafa verið nýbúinn að flýja undan kvikmynd (ég horfði á The shining þegar ég var sjö ára).
Bryndís kláraði myndina en var að eigin sögn í svo miklu andlegu og líkamlegu lamasessi eftir glápið að hún neyddist til að sturta í sig kynstrunum öllum af brennivíni til þess eins að jafna sig. Hvort hún grautaði af allri þessarri óheppilegu en nauðsynlegu drykkju fylgdi ekki sögunni. En það eitt að Bryndís skyldi bregða svona svakalega út af vananum eftir að horfa á þessa mynd er ekkert nema ögrun í mínum eyrum!
Nú þarf ég að horfa á þessa mynd til enda og sanna að ég sé bæði hugaðri en Jón Baldvin og betri á taugum en Bryndís. Ef mér tekst að horfa á myndina alla án þess að drekka frá mér ráð og rænu í kjölfarið þá er ég klárlega harðari en þau bæði til samans. Meira þarf ég ekki í lífinu.
Ég læt ykkur vita hvernig gengur. Nema þið lesið um það á Vísi.
~~~
Hitt stórmál dagsins er mál klósettrúllukastarans og hans loðnu vina. Á borgarstjórnarfundi í dag varð klósettrúllukastaranum svo heitt í hamsi að hann kastaði klósettrúllunni sinni í átt að borgarstjórn ofan af áhorfendapöllum. "Hafið þetta auðvaldskúkarnir ykkar!" kýs ég að ímynda mér að hann hafi skrækt um leið og varpaði rúllunni niður í borgarstjórnargryfjuna...."Ég skeini mér bara á kjörseðlum eða eitthvað!".
Að sjálfsögðu voru borgarfulltrúarnir aldrei í hættu enda handleggir klósettrúllukastarans vafalaust grútlinir og rýrir af tófúáti og teþambi. Nærstaddir lögreglumenn létu engu að síður snarlega til skarar skríða gegn þessum góðkunningjum sínum eins og þeim ber að gera þegar fólk hendir ótilgreindum hlutum í átt að stjórnmálamönnum. Rangeygðir rindlar eru þar ekki undanþegnir.
Loðnu vinir klósettrúllukastarans brugðust ekki væntingum og reyndu afar fyrirsjáanlega að hindra lögregluna í að leiða hann úr salnum til þess að verða ekki af sínum skerf af sætu lögregluofbeldinu. Minnugir allra skiptanna sem þeir hafa haft lögregluna undir í handalögmálum héngu loðnu vinirnir á klósettrúllukastaranum eins og einhvers konar beðja af athyglissjúkri óskhyggju.
Allt þar til lögreglan sannaði að þeir sem nenna að gera armbeygjur sigra í lífinu, og leysti úr flækjunni á nokkrum sekúndum. Armur laganna þjáist ekki af prótínskorti.

Leiftursnögg kennslustund í borgaralegri óhlýðni
Hvaða lexíu má svo læra af þessarri uppákomu?
Helst þá að maður á ekki að grenja yfir því sem er fyrirsjáanlegt heldur taka afleiðingunum eins og karlmaður. Sjáið íraska skókastarann. Hann er alvöru töffari og með prýðilegan kasthandlegg að auki. Þegar hann ákvað að henda skónum sínum í Bush bjóst hann helst við því að verða skotinn á staðnum og hann var tilbúinn að taka þeim afleiðingum. Hann kveinkar sér líka minna eftir 9 mánaða fangelsi og pyntingar en klósettrúllukastarinn og félagar gerðu rétt á meðan á handtökunni í dag stóð. Skókastarinn fær líka helling af peningum og kvenfólki gefins af því hann er svo ógeðslega kúl. Hvað ætli klósettrúllukastarinn fái margar konur gefins fyrir sína atlögu? Ég ætla að giska á enga. Í mesta lagi fær hann laust hi-five frá loðnu vinunum.
Hvernig héldu þeir félagarnir að þetta myndi enda? Fyrst kasta þeir drasli í átt að borgarstjórn, reyna svo að hindra lögregluna í að handtaka sig og góla þar næst eins og stungnir grísir þegar handleggjunum á þeim er komið haganlega fyrir efst á bakinu þar sem þeir eiga heima.
Sumir myndu freistast til að giska á að löngunin til að verða píslarvottur í fangi stælts lögreglumanns væri drifkrafturinn að baki svona hegðun...eins og þegar maður eyddi heilu dögunum í að stríða stelpunum í sjö ára bekk. En að sjálfsögðu er einungis um óeigingjarnt hugsjónastarf að ræða.
"En Hnakkus! Borgarstjórnin er vond og á skilið að fá skeinipappír í andlitið...eða í gólfið við hliðina á sér af því ég kasta eins og stelpa!"
Já já, það má vel vera. Fullt af fólki á skilið að fá alls kyns drasl í andlitið. En ef ég ákveð að útdeila slíku réttlæti þá ætla ég ekki að væla þegar löggan snýr upp á hendina á mér í kjölfarið og hendir mér upp í bíl. Það er það sem löggur gera. Þær fá meira að segja borgað fyrir það. Fullt af fólki myndi örugglega snúa upp á handlegginn á mér frítt ef það gæti svo það væri hálf bjánalegt að fara að erfa slíkt við lögguna ef ég tæki upp á því að vera með ólæti beint fyrir framan nefið á þeim.

Æj Hnakkus, mér finnst svo skemmtilegt að lesa bloggin þín og viskuna í þeim en núna hefurðu rangt fyrir þér.
"Hvað ætli klósettrúllukastarinn fái margar konur gefins fyrir sína atlögu?" Hann á þegar konu, þetta er kærasti systur minnar :D Fínn náungi sko.
Haha, en mér finnst fyndið að löggan talar um að hann hafi, hent "hvítum böggli", ég meina það hlýtur hver maður að sjá mun á hvítum böggli og klósettrúllu. En auðvitað vildu þeir afsökun fyrir að handtaka hann. Í vídeóinu finnst mér þeir beita og mikilli hörku hvað sem þú segir um væl og ekki væl. Fólk hefur rétt á því að mótmæla með klósettrúllum ef það kýs að gera það.
En haltu áfram með bloggin, ég held að ég hafi aldrei hlegið jafnt mikið og þegar ég las bloggið þitt um bjórkjúklinginn. Áfram Hnakkus!
- Guðný Stefanía
Posted by
Nafnlaus |
16 september, 2009 13:09
Kæra Guðný.
Ég hef náttúrulega aldrei rangt fyrir mér. Í mesta lagi skipti ég um skoðun við og við og þá breytist skilgreiningin á réttu og röngu samhliða. Þetta mál er engin undantekning. Það er lúðalegt að mæta á öll mótmæli, gæta þess vandlega að láta handtaka sig í hvert einasta skipti og þykjast alltaf vera jafn hissa og særður á stöðluðum handtökuaðferðum.
Það getur vel verið að löggan hafi verið að bíða eftir afsökun til að handtaka þá félagana. Ef svo var þá fengu þeir hana gefins. Mágur þinn og prúðuleikaragengið þarna voru líka að leita að afsökun til að láta handtaka sig eins og venjulega svo allir fengu eitthvað fyrir sinn snúð. Happy ending!
Bið svo kærlega að heilsa systur þinni. Stappaðu í hana stálinu og segðu henni að hún þurfi ekkert að sætta sig við gæja með lamaðan kasthandlegg sem er ekki einu sinni treystandi til að fara út í búð eftir klósettpappír án þess að lenda í vandræðum.
Kveðja,
Hinn mikli
Posted by
Hnakkus |
16 september, 2009 18:58
Rannveig og Krummi voru liðin tíð þegar Bryndís sá um Stundina okkar - enda hendur fáséðar í ,,medium-close-up´´
Posted by
Linda María |
18 september, 2009 15:51
Shit. Sögufail hjá mér.
En svona renna fornir atburðir oft saman í sögunni. Svo er ég viss um að hún hefur fengið að máta Krumma þegar enginn var að horfa.
Posted by
Hnakkus |
18 september, 2009 16:04
Haha já, ég hefði átt að orða þetta öðruvísi, var bara alveg búin að gleyma því :D
Ah jú, þeir gáfu þeim góða afsökun fyrir handtöku, því að allir menn vita að "hvítir bögglar" eru stórhættulegir.
Hún biður að heilsa og segir takk, en henni er nú sosem sama um lamaðan kasthandlegg, því að hann kann að draga kindur í staðinn.
Endilega haltu áfram blogginu, bjargar oft deginum fyrir manni :D
Bestu kveðjur, Guðný.
Posted by
Nafnlaus |
18 september, 2009 20:05
bídduhh, ég gæti svarið að gaurinn kenni tækvondó. Held að kasthandleggurinn sé betri en hjá flestum... Eníví, fyndin síða... tíu stig
Posted by
Nafnlaus |
18 október, 2009 04:28