Ósæmileg meðferð á líki
Í gærkvöldi gerði ég heiðarlega tilraun til að þröngva hálffullri bjórdós upp í afturenda líks með miður góðum árangri. Bjórinn var af gerðinni gylltur Viking sem mér þykir sérlega góður bjór þó hann sé orðinn allt of dýr í seinni tíð.
En þið viljið væntanlega frekar heyra um líkið en bjórinn.
Þær eru skrýtnar kringumstæðurnar sem maður finnur sig í á stundum. Bjórdósin tæki vafalítið undir það hefði hún á því tök. Þegar ég vaknaði í gærmorgun sá ég ekki fyrir að ég ætti ég eftir að standa í eldhúsinu organdi af bræði, með blóðuga og krumpaða bjórdós í höndunum alsetta kjöttægjum.
En svo langaði mig í kjúkling.
Ég lagði leið mína á alnetið í leit að skemmtilegri uppskrift og rakst á myndband af manni að matreiða bjórdósarkjúkling að hætti rauðhálsa. Uppskriftin er í stuttu máli svona:
1 heill kjúklingur
Hálf bjórdós
Krydd að eigin vali
Kryddið kjúklinginn
Þröngvið hálfri bjórdós upp í óæðri endann (á kjúklingnum)
Látið hann standa upp á endann á lokuðu grilli í 45-60 mínútur
Hljómar einfalt ekki satt? Ég held meira að segja að það þurfi talsverða útsjónarsemi til að klúðra þessarri einföldu og ósiðlegu athöfn. En sem betur fer fyrir ykkur er ég útsjónarsamur maður.
Allt fór vel af stað og gekk að óskum. Sérstaklega skylduþambið í upphafi. Hálfur bjór hvarf á mettíma og ég var tilbúinn að leggja hendur á hinn látna.
„KOMDU TIL PÁPA!“ hrópaði ég kátur og bjóst til að reka kalt álið á bólakaf í steindauðan málleysingjann. En ekkert gerðist.
„Djöfuls vesen...“ tautaði ég og ýtti fastar og fastar án þess að neitt gerðist. „Plúpp!“ sagði kjúklingurinn þegar hann skaust úr hendinni á mér og skautaði eftir borðinu, augljóslega harður á því að verja sóma sinn með öllum ráðum.
„Helvíti er þetta þröngt!“ Urraði ég og bölvaði smávöxnum íslenskum kjúklingum í sand og ösku. „Geta þeir ekki dúndrað í þetta sterum eins og í öðrum iðnvæddum löndum svo maður geti troðið almennilega í þetta!“
Nú dygðu engin vettlingatök. Ég stillti dósinni á borðið, togaði og teygði kjúklingsræfilinn til í gríðarstórum hrömmum mínum með tilheyrandi braki og brestum, og bauð honum góðfúslega til sætis.
„HNNUUUGH!!“ sagði ég og togaði vængina fast suður á bóginn svo lá við að þeir rifnuðu af. „Tylltu þér félagi!! GNNHGG!“.
„KRONNKHLLL“ gargaði bjórdósin um leið og hún lagðist saman og frussaði rándýrum bjór í allar áttir, Kveingrími Joð eflaust til ómældrar ánægju. „GAARHGGH“&/#%!“ gól ég og horfði á andstæðing minn liggja makindalega á bakinu með krumpaða og rifna áldós standandi lengst út úr öðrum endanum og gylltan bjórlæk vætlandi úr hinum.
Á þessum tímapunkti hefði venjulegur maður tekið upp símann og pantað pizzu. En ég er enginn venjulegur maður . Ég er maður sem hugsa í lausnum. Endalausnum.
Helvítis hænan skyldi á grillið.
Ég reif upp ísskápshurðina og rak strax augun í dós af Red Bull sem var talsvert grennri en hálfs líters bjórdósin og mun vænlegri til myrkraverka. Ég opnaði annan bjór, gommaði helmingnun í mig gegnum ótímabært sigurglottið, tæmdi Red Bull dósina í vaskinn og endurfyllti hana af bjór.
Þrátt fyrir fínlegan vöxt dósarinnar gekk enn brösulega að koma henni á sinn stað með góðu móti. Á þessum tímapunkti var mig mest farið að langa til að troða kjúklingnum upp í rassgatið á hressa fíflinu í YouTube myndbandinu fyrir að láta þetta virka auðvelt með kvikmyndagöldrum og hólkvíðum sterahænum.
En loks hófst það! Dósin juðaðist inn með heilmiklu brambölti og blautu brakhljóði. Ég stillti fuglinum upp á endann, geislandi af stolti og sté sigurdans. Þar sem ég dansaði fugladansinn í trylltri sigurvímu varð mér litið á kjúklinginn útundan mér.
Eitthvað var ekki eins og það átti að vera.
Ég fór að rifja upp gamlar líffræðilexíur og myndefni sem ég hef séð í gegnum tíðina af lifandi hænsnfuglum. Í minningunni sneru fæturnar á þeim í átt til jarðar en ekki í átt til himins. Sömuleiðis hefði ég getað svarið að vængirnir höfðu alltaf verið staðsettir ofan við lappirnar en ekki lafað niður á átt að jörðu. Minn kjúklingur virtist öðruvísi byggður þar sem hann stóð á „höndum“ og gerði grín að mér.
„FUUUUUUUUUUUUU!!!!1111“ hrópaði ég svo undir tók í fjöllunum. Ég hafði alveg óvart þvingað fuglsræfilinn til að „deep throata“ bannsetta bjórdósina!
Ég reif dósina út, sturtaði bjórnum aftur í bjórdósina sem hann kom úr, og renndi henni því næst án nokkurrar fyrirstöðu upp í fjósið á illfyglinu. Hinn endann varð ég að festa með grillpinnum svo dósin kæmi ekki hoppandi út um gauðrifinn hálsinn.
Skömmu síðar fékk hinn svívirti fugl útför að hætti víkinga þegar kviknaði í grillinu.
Ég ætti þokkalega að vera með matreiðsluþátt í sjónvarpinu.

Vá þetta bjargaði deginum!
Posted by
hjaltij |
14 ágúst, 2009 23:28
vííí Hnakkus orðinn fyndinn aftur :D Vísa á þetta prontó...
Posted by
hildigunnur |
15 ágúst, 2009 00:20
er þetta erfiðarinnar virði?
Posted by
Nafnlaus |
15 ágúst, 2009 17:42
Tja. Það fer líklega bara eftir því hvers virði sagan er. Fyrir mig og kjúklinginn var þetta stefnumót sem hefði mátt missa sín.
Posted by
Hnakkus |
15 ágúst, 2009 18:05
Rakst á bloggið þitt þegar ég var að leita að uppskrift að bjórkjúlla og sit hérna grenjandi úr hlátri yfir lýsingunni hjá þér :P Vona að þú sért reynslunni ríkari ;)
Posted by
Anna Sigríður |
16 ágúst, 2009 08:43
Þetta er til fyrirmyndar. Ég hló mikið og dóttir mín (1 árs) að mér.
Góður!
Posted by
Nafnlaus |
17 ágúst, 2009 06:45
Já það þarf einstaklega heimskan einstakling til að þekkja ekki mun á hálsi og rassgati á kjúlla.
Takk fyrir að opinbera þig svona rækilega.
Posted by
Jack Daniels |
18 ágúst, 2009 17:06
Það lærði ég af þér, Keli, að örlátast og best væri að deila heimsku sinni með internetinu í stað þess að njóta hennar í einrúmi.
Takk svo fyrir að minna mig á tilvist þína. Ég hafði næstum gleymt að þú værir til.
Posted by
Hnakkus |
19 ágúst, 2009 12:10
Frussandi snilld!!! Takk fyrir þetta góða hláturskast :D
Alva Kristínarr.
Posted by
Nafnlaus |
25 ágúst, 2009 00:35