Hnakkus: Icesave - af spunaköllum og öðrum sprelligosum

« Home | Af gungum og druslum » | Spurt að leikslokum já! » | Siðapostular leggja til atlögu » | Sorrí stelpur » | Undarleg afsökunarbeiðni biskups » | Glæpalíf » | Að kjósa sér nafn við hæfi » | Þráu augun þín » | Jesús Rís » | Hnakkus skilar auðu » 

1.7.2009 

Icesave - af spunaköllum og öðrum sprelligosum

Ég var á borgarafundinum á mánudag þar sem Icesave málið var rætt.

Ég er feginn að ég skellti mér í stað þess að stóla á umfjöllun fjölmiðla eins og ég hef oft áður gert. Á fundinum var Steingrími Joð sparkað um eins og loftlausri tuðru af andstæðingum Icesave en þegar ég kom heim voru einu fréttirnar af fundinum í formi fullyrðinga sem hann lét falla í ræðustól. Fullyrðingarnar höfðu allar verið rækilega skotnar í kaf með rökum og dátt hlegið að þeim flestum, en ekki þótti netmiðlum ástæða til að láta það fylgja sögunni.

Steingrímur má eiga eitt, og aðeins eitt. Hann mætti og reyndi að tala fyrir núverandi sannfæringu sinni. Þó veit ég ekki hvers virði sú eign hans er. Hann mætti klárlega aðeins vegna þess að hann heldur að gamli sannfæringarkrafturinn og Morfís eldmóðurinn dugi til að dáleiða þjóðina í að vera til friðs rétt á meðan hann bindur endahnútinn á framtíð hennar.

Ekki sást til Samfylkingarþingmanna sem hafa allir sem einn stutt Icesave svikin frá upphafi, enda liggur samúð þeirra fremur hjá breskum viðskiptavinum draslbanka en hjá skattborgurunum sem kusu þá. Samfylkingarþingmenn mærðu samninginn löngu áður en þeir sáu hann og andlegur leiðtogi þeirra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur ekki ennþá lesið hann...nema þá að hún hafi náð að stauta sig í gegnum hann eftir að hann var þýddur af útlensku í fyrradag.

Steingrímur tekur alla holskefluna sjálfviljugur í smettið af því hann heldur að hann sé búinn nægum persónutöfrum til að selja viðbjóðinn og kaupa sjálfum sér frið næstu sjö árin. Hann hélt að fólkið sem tók undir með honum öll árin sem hann gagnrýndi ólýðræðislegan yfirgang fyrri ríkisstjórna myndi styðja hann núna þegar hann lætur skoltana ganga í þveröfugum tilgangi.

Fyrst þegar Steingrímur tilkynnti um undirskrift Icesave samnings hélt hann að hann fengi þingmenn til að undirrita hann óséðan. Honum fannst það auk þess eðlilegar aðfarir. Því næst hélt hann að honum nægði að sýna samninginn til að allir féllu í stafi. Þegar það virkaði ekki heldur, hélt hann að þetta hlyti að smella ef hann sýndi fylgiskjölin líka. Flest þeirra allavega...þessi sem eru ekki viðkvæm.

En ekki er allt að virka eins og skyldi því eins og staðan er, eru 60% landsmanna á móti, og 19% fylgjandi. Í boltaleik væri sú staða kölluð rúst.

Margir vorkenna Steingrími þessa dagana. Tala um að hlutskipti hans sé ekki öfundsvert og að þrifin séu svo erfið. Mest barmar hann sér þó sjálfur undan þessu öllu...og undir öðrum kringumstæðum hefði ég mögulega fengist til að vorkenna honum smá. En fyrir Íslending er bara eitthvað öfugsnúið við að leyfa rauðhærðum manni að hneppa sig í þrældóm.

Steingrími er að sjálfsögðu ekki nokkur vorkun. Hann er nákvæmlega þar sem hann hefur verið að reyna að komast síðan ég var í barnaskóla. Með rauðbirkið rassgatið í dúnmjúkum ráðherrastól og megnið af atvinnulífi landsins í sinni kommúnísku krumlu. Icesave samningarnir áttu að tryggja honum frið til að halda sér þar, en sem betur fer virðist tvísýnt um það.

Þrifin koma ekki í hans hlut, heldur okkar. Það verðum við sem munum þurfa að strita næstu þrjátíu árin til að reyna að borga Icesave skuldirnar á meðan hann les yfir okkur úr stjórnarráðinu...eða sendir okkur kvislingakveðjur frá Lillehammer.

Getur svo einhver sagt mér hvað það er sem Jóhanna á að hafa gert svona merkilegt? Hvaða snjöllu hugmyndir hafa komið frá henni í gegnum tíðina? Hvaða þrekvirki hefur hún unnið? Hvað skilur hún? Hvað veit hún? Ég hlustaði á hálfa ræðu með henni í þinginu í dag og mér leiddist svo mónótónískt þusið í henni að ég grét. Og ég er ekki einu sinni með tárakirtla! Hún myndi ekki einu sinni ná að halda uppi stuðinu á elliheimili á eyjunni Lesbos!

Hvað í fjandanum er hún að gera í forsætisráðuneytinu skrifandi mig fyrir nauðungarsamningum sem hún hefur ekki einu sinni lesið sjálf?

Þegar Eygló Harðardóttir tók til máls á fundinum og benti á skjalfest dæmi þess að Jóhanna hefði ekki gripsvit á efnisatriðum undirritaðs samningsins æstist Steingrímur allur upp, sveiflaði fingrinum ótt og títt, og skammaði Eygló fyrir þau ódrengilegheit að "tala um manneskju sem ekki væri á staðnum til að verja sig".

Lýðræðisvitund Steingríms er semsagt svo skörp að hann umber ekki tal um orð og getu forsætisráðherra landsins nema hún sé í sama herbergi.

Fjölmiðlar fóru svo enn og aftur á kostum þegar Kastljósið klippti á afhjúpanir Eyglóar á þessu vítaverða getuleysi forsætisráðherrans til að vinda sér yfir í langa og áríðandi umfjöllun um falsaðar Ísfólks bækur.

Annað merkilegt sem kom fram á fundinum var að útreikningar ríkisstjórnarinnar um hvernig ætti að borga Icesave lánið voru ekki til þegar skrifað var undir. Pallborðsmeðlimur frá Indefence spurði þrálátlega hvar útreikningarnir væru og náði loks að kreista svar úr dauðyflislegum aðstoðarsveini Steingríms, Indriða H. Þorlákssyni. Indriði, sem lítur út eins og teikning eftir Brian Pilkington, muldraði í átt að fundargestum að útreikningarnir væru rétt á að detta í hús núna. Ástæðan? Jú, það tekur svo langan tíma að gera svona útreikninga. Á meðan gat hinn síkáti Svavar Gestsson hinsvegar ekki beðið með að klára samninganaviðræðurnar enda leiðinlegt að hafa svona drasl hangandi yfir sér eins og við öll þekkjum.

Um daginn varð heilmikið fjölmiðlafár vegna þess að dóttir Svavars, umhverfisráðherrann, datt á hausinn við hjólreiðar og fékk kúlu á hausinn. Hún getur huggað sig við það að vera ekki lengur það vitlausasta sem Svavar hefur áorkað á sinni ævi.

"Af spunanum skulið þér þekkja þá" sagði skáldið. Ok, ég var að skálda þetta núna. En þetta er dagsatt! Sá sem beitir spunanum hefur rangt fyrir sér.

Á fundinum komu öll sterk rök frá andstæðingum Icesave, en spuninn og útúrsnúningarnir úr búðum fylgismanna. Steingrímur eyddi mestum parti frummælandaræðu sinnar í heljarinnar sögulexíu þar sem hann þuldi löngu opinbera atburðarrás Icesave málsins í smáatriðum, alla leið frá undirritun EES - til dagsins í dag. Með þessu vildi hann freista þess að sannfæra okkur um skort okkar á valkostum í dag. Minnisblöð, símtöl og óheppileg ummæli forvera hans áttu að hafa bundið hendur þings og þjóðar sem værum við heiðursgestir í svallveislu í Byrginu.

Stóra holan í þessu annars langdregna og leiðinlega plani var að 99% af öllu sem hann þuldi uppi vissum við allt um fyrir kosningar. Og hann líka. Þó gerði hann sér að góðu að nota þá þessa sömu punkta til að þenja sig yfir vanköntum Icesave og illsku IMF og breta. Hvað breyttist í millitíðinni annað en að Steingrímur fékk völdin? Ekkert.

Ósvífnasti spuninn kom þó fram í lokin þegar Steingrímur hélt krepptum hnefa á lofti og hvatti okkur til að "berjast saman í stað þess að gefast upp!". Maginn í mér hefði losað sig við kvöldmatinn með látum hefði ég ekki verið löngu dauður að innan á þessum tímapunkti í ræðunni.

Persónulega vil ég frekar berjast við Steingrím núna en berjast við að borga skuldir glæpamanna það sem ég á eftir ólifað.

Mætum öll á Austurvöll á morgun kl 15:00!!

Getur verið að það sé svona erfitt að skilja Steingrím? Getur verið að hann sé neyddur til að mæla með og skrifa undir þennan samning? en það eina sem hann meinti sé það að hann vill að við „berjumst saman og gefumst ekki upp“?

Kannski vill hann einmitt að við tökum höndum saman og mótmælum þessum samingi svo kröftuglega að það verður ekki undan því komist að taka mark á þeim.

Þetta er bara vangaveltur. Myndi mæta tíföld niður á Austurvöll á morgun ef ég byggi í nágrenninu.

Rakel: Já, það getur verið ansi erfitt að skilja Steingrím. Þú gefur í skyn að hann sé andvígur þessum samning og hvetji lýðinn til mótmæla. Það finnst mér ótrúlegt og líklegra að maðurinn meini virkilega það sem hann segir. Ef hann hinsvegar talar af slíkum krafti gegn sannfæringu sinni þá er hann bæði gunga og drusla.

Boooring

Rakel: Ég hef heyrt svona kenningar. Að þetta sé bara leikrit og að við þurfum ekkert að borga þetta í alvörunni þó við skrifum undir. Er það líklegt? Ég myndi allavega ekki þora að veðja 700 milljörðum á það.

Nafnlaus 2: Ég biðst afsökunar á að færslan féll ekki að þínum smekk. Vinsamlegast sendu mér reikningsnúmer og kennitölu svo ég geti endurgreitt þér.

Þér hefur náttúrulega aldrei verið sérstaklega vel við Steingrím, svo að er varla við því að búast að þú sért ánægður með hann núna.

Ég er einn af þeim sem vilja að ríkisábyrgðin verði samþykkt og trúi því að við getum staðið undir henni. Ég tók upp þessa skoðun mjög nýlega því málið blasir þannig við mér að við séum skyldug til að borga þessar innistæður og að þessi samningur sé ekki svo slæmur sem margir vilja halda. Ég veit ekki hvernig við förum öll að því að lesa svona ólíkt í þetta mál, en allt í einu vaknar maður í þeim 20% hópi sem styður ríkisstjórnina í þessu.

Eitt sem fer í taugarnar á mér er að ef samningurinn er virkilega svona hræðilegur, þá má greiða hann upp án nokkurs aukagjalds. Svo að ef við finnum eitt einasta lán, hvar sem er, hvenær sem er, á betri kjörum getum við tekið það í staðinn. Þetta er ótrúlega mikilvægt atriði að því gefnu að við séum sammála um að Íslendingar eigi að borga fyrir þessi mistök, sem við neyðumst til því miður.
-P

Ég sé ekki hvar Íslendingar sem þjóð þurfi að koma inn í þetta!

Tryggingasjóðurinn á að greiða þettaPUNKTUR

æ á hann ekki nóg? ..Ekki mitt vandamál!

Kæri/kæra P: Þarna misreiknarðu þig örlítið. En aðallega mig. Ég var einmitt afskaplega jákvæður í garð Steingríms þangað til fyrir tiltölulega stuttu síðan. Ég hef meira að segja kosið hann oftar en einu sinni (ekki síðast samt). Ef þú lest þetta blogg aftur í tímann þá ættirðu að sjá það.

Mér fannst hann skemmtilegur, góður ræðumaður, harður í horn að taka. Heiðarlegri og rökfastari en vondu kallarnir...

Semsagt allt þetta klassíska.

Ég sá hinsvegar í gegnum hann og óska þér hins sama.

Ástæðurnar fyrir að vera á móti þessum samning eru ótal margar aðrar en lítið álit á Steingrími. Framganga hans í þessu máli hefur eingöngu sannað að ég komst að réttri niðurstöðu um hann í tíma.

Ég lái engum að hafa ekki séð í gegnum hann fyrir síðustu kosningar enda hafði hann ekki verið við völd í aldarfjórðung eða svo. Ekki borið neina ábyrgð, bara gaggað það sem hljómaði best af hliðarlínunni. En að sjá ekki í gegnum hann núna getur bara stafað af lélegri eftirtekt eða liðsblindu.

Þú segir..:"Ef samningurinn er virkilega svona hræðilegur"...eins og það sé eitthvað álitamál? Samingurinn er hörmung. Hann er hryllingur. Ég skora á þig að kynna þér málið með opnum huga og án þess að pæla í því hver er að segja hvað og þá hlýturðu að sjá það.

1. Okkur ber engin siðferðileg skylda til að borga fyrir áhættuvipskipti erlendra ríkisborgara við einkafyrirtæki.

2. Það er verulegur vafi á að okkur beri nokkur lagaleg skylda til að ábyrgjast það sem ekki er til staðar í innistæðutryggingasjóði.

3. Við getum ekki borgað þetta. Ekki á nokkurn einasta hátt. Þetta hefur verið reiknað út á alla kanta.

4. Á Íslandi er Þingræði. Ekki framkvæmdavaldsræði. Íslendingar kjósa sér þingmenn, ekki ráðherra, og það eru þingmennirnir sem ráða hvaða skuldbindingar ríkið tekur á sig. Það skiptir ekki nokkru einasta máli hvað ráðherrar hafa verið að fíflast síðan í haust. Þingið ræður, og má ekki samþykkja þessa samninga.

Ef þér finnst samningsstaða okkar léleg núna...hvernig heldurðu þá að hún verði eftir sjö ár þegar við getum ekki borgað samkvæmt samningnum sem þingið samþykkti?

Kveðja,
Hnakkuz

Þessi færsla hefur verið fjarlægð af höfundinum.

Þessi færsla hefur verið fjarlægð af höfundinum.

www.kjosa.is

Sterk rök fyrir einum er spuni og útúrsnúningar fyrir öðrum ... og öfugt.

Annars gef ég ekki mikið fyrir þá samsæriskenningu að Steingrímur hafi skrifað undir þetta Icesave samkomulag (sem er augljóst að setur okkur á hausinn) til þess eins að halda "atvinnulífi landsins í sinni kommúnísku krumlu". Og þarna erum við aftur komin að spuna og útúrsnúning vs. sterk rök.

Spegill.

Aei thegidu tharna Kjarval hommi

Faððu þaddna ljóti kall! Faððu!

Sendu inn athugasemd

Linkur á færslu

Create a Link