Af gungum og druslum

Sagði ég ekki? Þeir eru allir eins - tvítyngdar lyddur.
Svo talar fólk um lýðræði og að öll berum við ábyrgð á því sem þetta meinta lýðræðislega yfirvald tekur sér fyrir hendur? Hvernig er hægt að tala um lýðræði þegar enginn fær nokkurn tíma að vita neitt? Á hvaða grundvelli á almenningur að geta tekið upplýsta ákvörðun um það hver eigi að stjórna sér næstu fjögur árin þegar stjórnmálamenn ljúga einu fyrir kosningar en stíma svo í þveröfuga um leið og atkvæði hafa verið talin? Hvernig er hægt að ætlast til að almenningur viti eitt né neitt í sinn haus þegar sjálfir þingmennirnir fá ekki einu sinni upplýsingar um stóralvarleg mál sem þeir þó hika ekki við að kjósa um? Og hvernig fær sumt fólk það út að öll axarsköft ráðamanna og þeirra skósveina séu réttilega okkar sameiginlega ábyrgð? Sama hvað við kusum eða kusum ekki...sama hvernig við hegðuðum okkur. Unnendur þessa fjórflokkalýðræðis mega éta það sjálfir.
Þetta kerfi er eins og ofbeldisfull sambúð. Allir fullir af samviskubiti yfir einhverju sem þeir bera enga ábyrgð á.
Og já, ég er að tala um Icesave. Djöfull fer þetta Icesave mál brjálæðislega í taugarnar á mér. Stuðningsmenn stjórnvalda eru svo þyrstir í að sanna að Sjálfstæðisflokkurinn hafi skilið okkur eftir án nokkurra undankomumöguleika, að þeir eru tilbúnir að reyta upp hvert einasta hálmstrá til að afsaka stærstu mistökin af þeim öllum. Þörf fólks til að sanna fyrir sjálfu sér og öðrum að það hafi verið í réttu liði er svo sterk, að engin rök skipta máli og engar afleiðingar eru of hræðilegar. Ef þingið samþykkir Icesave, og Ísland sekkur í sára fátækt í kjölfarið, þá getur þetta fólk loks andað léttar og klappað sjálfu sér á kollinn fyrir að hafa kosið rétt. Það leggur meira að segja kannski saman í púkk fyrir einum bjór til að fagna almennilega!
Þetta er eins og að horfa upp á ofsatrúaða píslarvotta í þriðja heims ríkjum lemja sig til blóðs með birkihríslum til að öðlast viðurkenningu. Nema alls ekki eins fyndið.
Já já, Davíð var hrokafullur valdafíkill með horn og hala. Bjarni Ben er eins og hross í jakkafötum. Geir Haarde er álíka gagnlegur og skjaldbaka með stjarfklofa. Hannes Hólmsteinn er hlutdrægari og leiðinlegri en lögfræðingur á prósentum, Þorgerður Katrín er eins bergrisinn eftir kynskiptaaðgerð og Sigurður Kári vildi leyfa ykkur að kaupa bjór úti í búð.
En...get the fuck over it!
það er löngu tímabært að leggja frá sér fornleifafræðiáhöldin og fara að pæla aðeins í því sem er að gerast akkúrat NÚNA...sama hvaða liði ykkur finnst þið tilheyra. Handan við hornið er væntanleg samþykkt Alþingis á leynilegum nauðungarsamningi sem mun mjög líklega rústa þessu landi endanlega. Ef það gerist...þá getum við fyrst farið að tala um skort á valkostum. Og þið getið fokking gleymt því að ég nenni að blogga á kálfskinn fyrir ykkur.
"En Hnakkus! Veistu ekki hvað gerist ef við segjum nei? Við verðum útilokuð úr samfélagi þjóðanna...hvað sem það nú þýðir! Okkur verður hent út úr EES! Það vill enginn kaupa fisk af okkur! Við komumst ekki í ESB! Það koma drekar og borða okkur!! VÆÆÆÆÆÆÆL!"
Jafnvel þó þetta væri allt satt, sem það er ekki, hvað þá með það? Til að afarkostir virki þá þurfa þeir að hafa tvennt til brunns að bera:
1. Þeir þurfa að vera trúverðugir.
2. Þeir þurfa að vera hræðilegri en hinn valkosturinn.
Í fyrsta lagi...viðskipti. Verður okkur hent út úr EES? Örugglega ekki. Það eru bara getgátur um eitthvað sem alls ekki liggur á borðinu. Ef evrópuþjóðirnar ætla að henda okkur úr EES nema við skrifum undir, þá þarf það að vera skjalfest eins og annað í þessu máli. Það er ekki nóg að giska bara á að kannski hafi einhver sagt það einhvern tíma og veðja svo 700 milljörðum á það eins og mongólíti í spilavíti.
Hætta "allir" að kaupa fisk "af Íslendingum"? Auðvitað ekki. Best að útskýra þetta nánar fyrir þeim lesendum mínum sem eru með sérþarfir. Íslenska ríkið selur ekki fisk og erlendar ríkisstjórnir eru ekki helstu kaupendur fisks. Fyrirtæki kaupa fisk af öðrum fyrirtækjum af því þau græða pening á því. Veitingastaðir og verslanir um alla Evrópu hætta ekkert að kaupa dúndurgóðan fisk sem þeir hagnast sjálfir vel á að endurselja af því að Gordon Brown er í fýlu við Jóhönnu og Steingrím. Þannig virkar heimurinn ekki. Það eiga engir veitingahúsaeigendur eftir að segja..."AhA! Zeir skrifa ekki undir non?? Zá ég ekki kaupa meiri fisk af zessir ribbaldar!!". Það er öllum skítsama um þetta rugl nema einhverjum pólitíkusum. Til þess að stoppa sölu á afurðum frá Íslandi þyrfti viðskiptabann og það er enginn að fara að setja viðskiptabann á Ísland út af vandræðalegri deilu sem Bretar þora ekki einu sinni að láta reyna á fyrir dómsstólum.
ESB. Komumst við kannski ekki í það ef við neitum? Ok þá. ESB breytir varla neinu til eða frá ef við skuldum meira en við getum nokkurn tíma borgað. ESB hefur verið kynnt sem lækningin við öllum okkar vandamálum en það er helvíti hart ef við þurfum að skjóta okkur í hausinn til að komast til læknisins. Að skrifa undir Icesave samningana til að komast í ESB er dálítið eins og að skera af sér skrallið til að komast á deit með draumadísinni. Tilgangslaust í besta falli.
Verðum við "útilokuð úr samfélagi þjóðanna"?. Ég veit ekki einu sinni hvað það á að þýða og ég held að enginn annar viti það heldur. Helst skýt ég á að það þýði að Ólafi og Dorrit verði boðið í færri fínar veislur. Það er allavega meiri möguleiki á að ég lifi það af en lífstíðardóm í skuldafangelsi.
Auðvitað hefði verið best ef Geir og Ingibjörg hefðu tekið rétt á þessu frá upphafi. Mótmælt hryðjuverkalögunum, rekið breska sendiherrann heim í tjöru og fiðri, dregið bretana fyrir rétt...og svo framvegis. En þau gerðu það ekki og þá er ekkert annað hægt að gera en að taka bestu ákvarðanirnar í stöðunni. Að samþykkja Icesave undirskriftina hans Steingríms er ekki ein af þeim. Ef við hefðum enga valkosti þá þyrftu þessir böðlar ekki undirskrift frá okkur.
Ef þingið samþykkir þennan samning sem það fær ekki að sjá, á forsendum sem það fær ekki heldur að sjá, þá þarf að fjarlægja það með valdi og rifta samningnum. Þegar það er búið og gert skal ég persónulega taka upp símann í stjórnarráðinu og segja Gordon Brown að fokka sér.

Djöfull er ég sammála hverju einasta orði
Posted by
Nafnlaus |
17 júní, 2009 21:10
Djöfull er ég sammála hverju einasta orði
Posted by
Nafnlaus |
17 júní, 2009 21:10
Takk, Hnakkus.
Posted by
parisardaman |
18 júní, 2009 07:26
Fólk er svo reitt út í Sjálfstæðisflokkin og Framsóknarflokkinn ( en sjaldan Samfylkinguna ) að það er tilbúið að réttlæta hvað sem er. Allt af því að þetta er nú bara "tiltektin" eftir "frjálshyggjuna" (Og það var þá frjálshyggjan!).
Það er gaman að gúgla nokkra frasa sem komist hafa í tísku eftir icesave hryllinginn í meðförum Skattagríms, Jóhönnu og Svavars. Það er varla skrifuð sú bloggfærsla um að málið beri að skoða nánar án þess að einhver komi gjammandi:
"Gleymum aldrei hverjir komu okkur í"
http://www.google.is/search?hl=is&rlz=1C1GGLS_enIS310IS310&q="hverjir+komu+okkur+í"&btnG=Leita&lr=
"hverjum þetta er að kenna"
http://www.google.is/search?hl=is&rlz=1C1GGLS_enIS310IS310&q="hverjum+þetta+er+að+kenna"&btnG=Leita&lr=
"eftir 18 ára valdasetu"
http://www.google.is/search?hl=is&rlz=1C1GGLS_enIS310IS310&q="eftir+18+ára+valdasetu"&btnG=Leita&lr=
Það er rétt hjá þér Hnakkus, alveg sama hvort við tilheyrum liði eður ei, þetta verður að stöðva. Þetta snýst ekki um fortíðina, henni getum við ekki breytt. En við getum (enn sem komið er) haft áhrif á framtíðina. Ég ætla að vona að þjóðin fari að rísa á afturlappirnar og gera eitthvað í málunum.
17. júní var sorglegur í ár. Megi sá næsti verða gleðilegri.
Posted by
Nafnlaus |
18 júní, 2009 09:58
Vinnufélagi minn er með 'Gungu og druslu'-ræðu Steingríms J. sem farsímahringingu. Sönn saga.
Posted by
Ónafngreindur |
18 júní, 2009 13:03
Er alveg hjartanlega sammála öllu þessu. Helvítis aulaháttur í þessari ríkisstjórn. Held að best væri bara að fá sjallana aftur til að stjórna þessu.
Posted by
spritti |
19 júní, 2009 18:21
Hnakkus á þing!
Posted by
Nafnlaus |
20 júní, 2009 00:22
Sammála þér núna í einu og öllu, takk fyrir. Ég er vinstri kona sem þykir Samfylkingin ótrúlegur svikari. Þau vilja greinilega ekki að fortíðin sé skoðuð nema til málamynda.
Posted by
Nafnlaus |
20 júní, 2009 10:25
Mikið rétt.
Posted by
Nafnlaus |
20 júní, 2009 14:04
Allir sem segja "nöh-haujtss þetta er sko miklu meira hinum að kenna" eru reknir!
Fella nauðasamning um IceSlave drápsklyfjar og byrja upp á nýtt. Herdís Þorgeirsdóttir verði formaður samninganefndar Íslands.
Sjá http://visir.is/article/20090620/SKODANIR/228195908
HH
Posted by
Nafnlaus |
20 júní, 2009 15:09
Frábær pistill! Sammála hverju einasta orði.
Posted by
Þóra |
20 júní, 2009 15:18
Hverju orði sannara, þú mikli Hnakkus.
Steingrímur og Jóhanna og áhangendur þeirra eru reiðubúin að kasta almenningi fyrir ljónin - ef þau gætu með því bjargað eigin skinni.
Tímabundin vandræði sem hlytust af því að forða sjálfum okkur og næstu kynslóðum frá skuldaánuð myndu afhjúpa íslenska stjórnmálamenn fyrir heimsbyggðinni. Það yrði ekki fögur sjón. Allt til vinnandi að forða því.
Skrifum undir fyrir fólkið sem leiðbeindi okkur fram af hengifluginu. Gerum sjálfshýðingar að þjóðaríþrótt.
Rómverji
Posted by
Nafnlaus |
20 júní, 2009 23:57
Bara að benda þér að þú ert ekki að skilja nokkur atrið.
"ætta "allir" að kaupa fisk "af Íslendingum"? Auðvitað ekki."
Þú ert ekki að skilja að það er verið að tala um að settar verða á okku viðskiptaþvinganir! Eða viðskiptabann! Og þá er alveg sama þó fyrirtæki vilji kaupa af okkur fisk. Þau mega það ekki! Við höfum lent í þessu áður gegn bretum. Og við lentum í mjög vondum málum. Þá björguðu Sovétmenn okkur með því kaupa fisk en við þurftum að taka inn vörur á móti. Bíla og traktora.
"Verður okkur hent út úr EES? Örugglega ekki" Við erum þegar að brjóta EES samninginn með gjaldeyrishömlum. Ef við svo neitum að borga IceSave erum við af far gegn öllum ESB ríkjunum og i viðbót EES rikjunum. Þú heldur kannski að þau taki þessu bara létt. Ég held ekki.
Þú gleymir líka að Breska ríksisstjórnin er nú þegar búin að greiða öllum einstaklingum sem áttu innistæður á Icesave og það er um 1250 milljaðrar. Hún gerði það á grundvelli þess að við mundum greiða þeim innistæðutryggingar upp á allt að 20 evrum á hvern reikning. Og ólíkt því sem var þegar bretar beittu okkur viðskiptaþvingunum áður þá hafa þeir allar þjóðir Evrópu með sér núna. Sem og AGS.
Posted by
Nafnlaus |
21 júní, 2009 08:50
Ég kann að meta það hvað þú ert óhræddur við að skipta um skoðun, Nafnlaus.
Annars eru þetta bara sögusagnir sem þú ert að vísa í. Viðskiptaþvinganir og viðskiptabann? Hvaðan hefurðu það? Kjaftasögur. Maður tekur ekki 700 milljarða króna lán á okurvöxtum af því maður er hræddur við sögusagnir og kjaftasögur. Fyrir utan það að afleiðingarnar af því að taka lánið eru mikið verri anyway.
Ef við eigum að samþykkja afarkosti þá þurfa þeir að vera uppi á borðinu. Það dugir ekki að hræða bara ræfilinn hann Steingrím með draugasögum í einhverju bakherbergi.
Posted by
Hnakkus |
21 júní, 2009 09:40
Nafnlaus hinn síðarai. Þú gleymir að við samþykktum að ganga til samninga undir stjórn Geirs Haarde og Þorgerður Katriín hefur ´m.a. á pressunni sagt frá því að samningstaða okkar og möguleikar okkar fyri dómstólum hafi strax í október síðast liðinn verið könnuð af erlendum sérfræðingum m.a. í þjóðarrétti. Við höfum gefið yfirlýsingar um að við stæðum við bakið á innistæðutryggingarsjóði til að standa við innistæðutryggingar í íslenskum bönkum og m.a. í lántökum fyrir sjóðinn og það erum við að gera.
Posted by
Nafnlaus |
21 júní, 2009 10:04
"Samþykktum við að ganga til samninga?"
Talaðu fyrir sjálfa/n þig. Mitt álit á leynilegu fulltrúalýðræðræði er löngu ljóst og ekki af þeim toganum að ég líti á það sem framlenginu á mínum vilja eða annarra.
Núverandi ríkisstjórn var heldur varla kosin til þess að halda áfram á sömu braut og sú síðasta, eða hvað?
Posted by
Hnakkus |
21 júní, 2009 11:09
Hnakkus - þú nafnlausa lydda! Veist augljóslega ekkert um pólitík og hvað þá samningagerð. Lýðskrumarar eins og þú og formaður framsóknarflokksins (eruð þið kannski einn og sami maðurinn) ættuð að fljúga aðra leiðina til Teheran og læra að virða og meta lýðræðið í þessu landi.
Farðu í rassgat.
Posted by
Nafnlaus |
21 júní, 2009 12:06
Flott færlsa hjá þér Hnakkus!
Sammála nánast hverju orði sem að þú skrifar.
Og í hnotskurn þá er þetta einfaldlega eins og þú lýsir.
Afarkostirnir þurfa að vera trúverðugir og þessutan verri en hinn kosturinn.
Ég get ekki séð að talsmenn Icesave geti sannfært okkur um að svo sé.
Posted by
Eggert Vébjörnsson |
21 júní, 2009 12:35
Gæti ekki verið meira sammála. Frábær færsla.
KV. Svekktur og reiður VG kjósandi.
Posted by
Gunnar Hjartar. |
21 júní, 2009 12:46
Skondið að kalla Hnakkus nafnlausa lyddu undir nafnleynd.
Nafnlaus vill kannski internetlögguna á Hnakkusinn?
Posted by
Nafnlaus |
21 júní, 2009 12:49
HEYR HEYR!
Posted by
Nafnlaus |
21 júní, 2009 12:53
Minni á það sem John Perkins og Michael Hudson sögðu okkur: Við eigum ekki að borga Icesave, við GETUM EKKI borgað Icesave:
John Perkins og Michael Hudson:
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/846117/
Michael Hudson:
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/871136/
EE elle
Posted by
Nafnlaus |
21 júní, 2009 14:38
Takk fyrir hressilega lesningu. Mikið er ég sammála hverju orði.
Posted by
Ævar Rafn |
21 júní, 2009 17:09
Skorinortur og skýr pistill Hnakkus. Algjörlega sammála.
Þjóðin er orðin dofin fyrir hryllingsfréttunum sem dynja á okkur á hverjum degi, mánuðum saman. Bráðum verður liðið ár frá hruninu, ótrúlegt..... og hvað hefur breyst með nýrri ríkisstjórn? Ekki mikið, nema sumt til hins verra.
Þessi þjóð er núna á barmi örvætningar. Ef IceSave samningurinn fer í gegnum þingið veit ég hreinlega ekki hvað gerist á þessu skeri, en ég óttast það.
Posted by
Whatsername |
21 júní, 2009 18:26
Þetta hljómar allt voðalega vel að við höfum kosið nýja ríkistjórn til að fara nýjar leiðir. Hins vegar held ég að lagalega séð hafi sú gamla skotið okkur í kaf með ljótum loforðum, og það sé ekki hægt að láta eins og þau hafi aldrei átt sér stað einungis útaf það eru komnir nýjir aðilar við völd.
Ég er samt á því að fjármalagaurinn í sjálfstæðisflokknum, sem lítur út eins og Satan, sé á réttri braut með að við ættum að reyna endursemja þennan fjanda á betri hátt. Ég væri allavega til í að heyra gagnrýni á þá hugmynd, þar sem þessi kostur er svona andskoti slæmur.
Posted by
Ribbaldish |
27 júní, 2009 23:43
Hnakkus er góður. Hann ætti þó að forðast að tala mikið um afmörkuð pólitísk álitamál. Þar getur hann átt á hættu að hafa rangt fyrir sér. Eins og í þessu tilfelli.
Posted by
Bjarki |
10 júlí, 2009 10:41
Ég hef hárrétt fyrir mér, Bjarki.
Eins og venjulega.
Posted by
Hnakkus |
10 júlí, 2009 11:37
Frábær samantekt á mikilvægasta máli samtímasögu landsins.
Hnakkus, skrif þín eru hnitmiðuð og markviss.
Fyrir þá sem halda að Ísland lendi í viðskiptabanni fyrir að neita að skrifa undir samning um lán við Englendinga og Hollendinga eru á villugötum, í hvaða fordæmi er verið að vísa til? Sannleikurinn er sá að ef Englendingar og Hollendingar ákveða að sega upp tvíhliða samningi vegna þess þá verða þeir ábyrgir gagnvart alþjóðalögum og eiga von á lögsókn að hálfu Íslendinga. Jafnvel þótt það gerist hefur það lítið að segja hvort Englendingar og Hollendingar vilja versla við okkur, ESB er fríverslunarsvæði, England og Holland stjórna ekki verslun þar, EES er samningur við ESB ekki England og Holland.
Herminator
Posted by
Nafnlaus |
14 júlí, 2009 13:22