Hnakkus: Niður með trúfrelsi

« Home | Hátt bylur í tómum pungi » | Skrumburðalyndi » | Þreifingar? » | AMX - Fremsti fréttaskýringavefur landsins, heilt ... » | Stríðsglæpir? » | Jóla template » | Fjölmenning - Reynslusaga » | Á þvæluveiðum með Hnakkusi - Englaheilun » | Nú? » | Fréttafölsun » 

6.2.2009 

Niður með trúfrelsi


Image Hosting by PictureTrail.com

Trúfelsiskafli stjórnarskrárinnar er rusl og þarf að hverfa eins og hann leggur sig þegar stjórnarskráin verður tekin í gegn. Trúfrelsisklausur í stjórnarskrám verða til þess að allra handa hjarðhugar fara að halda að öðrum finnist ættleiddar ranghugmyndir þeirra um lífið og tilveruna merkilegar. 

Trúfrelsi ýtir undir dekur við sérþarfir. Dekur eins og 5 milljarða árlegan fjáraustur í þjóðkirkju sem enginn stjórnmálamaður dirfist að stugga við í dýpstu kreppu íslandssögunnar af því að trúaðir eru orðnir svo gífurlega hörundssárir eftir mörg hundruð ár af trúfrelsisdekri að þeir myndu tryllast ef minnst yrði á það. Fyrst skera stjórnmálamennirnir niður heilbrigðisþjónustuna því Jesú yrði brjálaður ef við færum að taka veikt fólk fram yfir rándýrar kirkjur honum til dýrðar.

Nú halda margir eflaust að ég vilji afturkalla rétt fólks til að trúa hverju því bulli sem er í tísku hverju sinni. Það er mesti misskilningur. Fólk má trúa hverju sem er mín vegna svo lengi sem það heimtar ekki að ég borgi fyrir deleringarnar eða heimtar í nafni laganna að ég beri einhverja virðingu fyrir þeim.

Trúfrelsi er einfaldlega óþarft og skaðlegt hugtak - leifar frá tímum þegar kirkjan var allt í öllu og prestar þóttu klárir. Trúfrelsi er ekkert annað en undirflokkur skoðanafrelsis og með því að gera skoðunum fólks á yfirnáttúru hærra undir höfði en öðrum flokkum skoðana er verið að flækja málin að óþörfu og búa til vandamál. Skoðanafrelsi  þarf enga undirflokka.

Öllum á að vera frjálst að hafa hverja þá skoðun sem þeim sýnist sama hversu rétt eða röng hún er. Sú skoðun að í skýjunum búi úrillur og almáttugur fauskur sem vill ekki að kallar í kjólum gifti homma og lesbíur á fullan rétt á sér...en hún er ekki að neinu leyti rétthærri en aðrar skoðanir. Ég hef til dæmis þá skoðun að menn ættu ekki að eyða mörgum árum í háskóla til að læra að klæða sig í gullslegna kjóla og jarma fyrir skattfé og að sunnudagsmorgnum sé betur eytt í þynnku en í kirkju. Þær skoðanir eru engu réttminni þó þær fái ekki sér kafla í stjórnarskránni.

Trúfrelsisdekur veldur því  að fólk víða um heim telur að það sé mannréttindabrot að banna því að klæðast grímubúningum að eigin vali í opinberum störfum. Trúfrelsisdekur veldur því líka að einhverjir eiga eftir að mæta sárir í kommentakerfið og skamma mig fyrir að virða ekki stjórnarskrárvarðar tilfinningar þeirra...sem er líklega eina afleiðing trúfrelsis sem ég kem til með að sakna.


Ég trúi á Davíð af krafti og bíð notalegra endalokanna. Það verður lokapunkturinn yfir harmsögu ævi minnar á Þórunnarstrætinu.

Góður pistill og mjög þarfur.

true

Vel mælt.

Fínn pistill og ég telst örugglega vera ein þessara trúnöttara hehe...
Tek undir hvert orð nema sunnudagsþynnkuna, ég kann ekki að drekka brennivín

Hverju orði sannara, nema hvað mér finnst þú fara yfir strikið þegar þú segir að menn ættu ekki að þurfa að eyða mörgum árum í háskóla til að læra að klæða sig í gullslegna kjóla. Ég hygg að þú segir þetta í ógáti, af því þú þekkir vandann ekki af eigin raun. En svo er mál með vexti að það var ekki fyrr en ég hafði verið tvö ár í kynjafræði að ég herti upp hugann og fór að ganga í kjólum heima fyrir. Það eru bara ofboðslegir fordómar hérna í landinu gagnvart kjólaburði óvígðra karlmanna. Nú hef ég, þökk sé náminu, öðlast þó það sjálfstraust að ég er búinn að innrita mig í guðfræði til að læra að ganga í kjólum á almannafæri, til dæmis þegar ég fer í kirkju. En mér finnst þeir sem prestarnir eru í ekkert spes, það er allt önnur lína sem ég hef í huga, hlébarða- og svoleiðis.
Með kveðju og bæn.
Kjólbeinn (orðaleikur, ég heiti Kolbeinn!!!)

Skrifa ummæli

Linkur á færslu

Búa til tengil