Stríðsglæpir?
Af hverju flokkast það sem stríðsglæpur að brenna fólk til bana með fosfóri en ekki að tæta það í sundur með algengari sprengjum?
Ég hlustaði á einhvern valkvæman vælukjóa í fréttunum lýsa því í smáatriðum hversu illa brennheitt fosfór færi með þá sem verða fyrir því, en gat einhvern veginn ekki hætt að hugsa um gráhvíta palestínska hræið sem ég hafði séð á mynd fyrr um daginn. Sá hafði aðeins orðið fyrir ósköp hversdagslegu flugskeyti sem hafði snúið undan honum lappirnar og fyllt hann af brotajárni.
Ég huggaði mig þó við að honum hafi verið lógað á alþjóðlega samþykktan máta.
Blessunarlega var hann ekki brenndur áður en restin af ævinni var tekin af honum. Þá hefði hann líklega fundið til sársauka í nokkrar mínútur og það hefði verið hræðilegt.

Farðu nú að blogga meira. Færslurnar þínar eru eitt af því fáa sem lífgar upp skammdegið um þessar mundir.
Posted by
Nafnlaus |
14 janúar, 2009 00:14
Lestu bara Stefán Friðrik - af krafti.
Posted by
Nafnlaus |
14 janúar, 2009 14:34