Hnakkus: desember 2008

24.12.2008 

Jóla template

Image Hosting by PictureTrail.com

Mikið var yndislega notalegt að lesa jólahugvekju Stefáns Freys þetta árið. Uppáhalds brekkusnigillinn okkar er í svo ljómandi huggulegu jólaskapi að mann beinlínis vöknar um hjartaræturnar.

Lýsingar hans á huggulegu rölti um Akureyrarbæ í aðdraganda jóla eru svo hugljúfar og traustar að manni finnst maður næstum vera á röltinu við hlið hans, heilt yfir.

Eins og venja er á þessum árstíma líður herra Fr. um í sérdeilis indælum jólafíling, spjallar við kunningja um pólitíkina, sötrar rjúkandi kakó, kynnir sér miðbæjarbraginn og "þefar af nýjum bókum".

Já, hann hringir svo sannarlega inn jólin hann Bókaþefur okkar.

Og hverjum er ekki sama þó hugvekjan sé orðrétt sú hin sama og á Þorláksmessu í fyrra. Jólin eru jú alltaf eins og hví ætti Bókaþefur að bregðast okkur, dyggum lesendum sínum, með óþarfa nýjungasprelli.

Það eina sem ég get séð að hafi breyst á milli ára fyrir utan fyrirsögnina er að í ár er það verslun Eymundsson en ekki verslun Pennans sem er "stórglæsileg eftir breytingarnar" auk þess sem það var jóladiskur Ragga Bjarna sem var "hugljúfur og traustur" í fyrra en ekki jóladiskur Stefáns Hilmarssonar eins og í ár.

Njótið hátíðar ljóss og friðar, elsku lesendur.

23.12.2008 

Fjölmenning - Reynslusaga

Nokkra daga á ári er tilveru minni umturnað af torkennilegum þjóðflokki. Tugþúsundum saman er þeim stefnt ofan af nálægum heiðum til að taka þátt í uppákomum af öllu tagi sem af einhverjum ástæðum eru alltaf haldnar í hverfinu mínu.

Í dag er einn slíkur dagur.

Á hverri Þorláksmessu fyllist hverfið mitt af kaupóðum heiðabúum sem leggja myntkörfulánunum sínum upp á allar gangstéttar og strunsa stressaðir um með kreditkortið í annarri og vasapelann í hinni, syngjandi jólalög sem ég hélt að Eyvi og Helga Möller væru búin að lóga fyrir löngu.

Það er eins og allir á heiðinni fatti um kvöldmatarleytið á Þorláksmessu að jólin verði að öllum líkindum þann 24. í ár eins og öll ár á undan, og að kannski sé skynsamlegast að fara að pæla í jólagjafakaupum. Ofan af heiðum rúlla þau. Svo einbeitt. Svo óð í varning. Þennan dag er ekki bílastæði að finna í hverfinu og litla friðsæla gatan mín verður að einni helstu umferðaræð borgarinnar þegar úlpukarlar með kúrekahatta og grenjandi athyglisbresti í aftursætinu rúnta framhjá á tíu mínútna fresti í örvæntingafullri leit að stæði sem aldrei losnar.

Starfsfólk ríkissjónvarpsins ólmast svo á hverju ári við að laða heiðafólkið til byggða með beinum útsendingum frá stórkostlegum skemmtiatriðum eins og Ragga Bjarna að gleyma textanum við jólalög sem jafnvel tregustu börn geta tautað í gegnum rítalínmókið. Og Bogomil Font að geifla geimveruandlitið í átt að heimaplánetu sinni - gefandi frá sér hljóð sem ég giska helst á að séu einhvers konar innrásarkóði.

Á Menningarnótt gerir heiðafólkið börnin að sendiherrum sinnar menningar og sendir þau í bæinn til að velta sér eftir götum miðborgarinnar, lemjandi og gubbandi, við hressandi undirleik Birgittu Haukdal og Páls Óskars. Börnin hafa það að vísu fram yfir foreldra sína að þau skilja bílana eftir heima, en liggja þess í stað sjálf eins og hráviði í öðru hverju bílastæði þegar birta tekur.

17. Júní er ekki skárri því þá minnast börnin fæðingu Jóns Sigurðssonar með því að klína mann fastan við götuna með kandíflossi að deginum til en koma svo gólandi út úr rökkrinu þegar kvölda tekur og sulla á mann landa og kirsuberjabríser þar sem maður liggur hjálparvana í sykurklístrinu og bíður dauðans.

Mér finnst eins og sífellt bætist við nýjar afsakanir fyrir heiðafólkið til að umkringja mig. "Menningarnótt". Handboltalandslið sem vinnur stundum leiki. Allt er notað sem afsökun til að elta næsta skutbíl ofan í miðbæ og fagna. Fagna og fagna! Ég óttast að brátt muni þau aldrei fara heim á milli þess sem þau fagna.

Ég held að það væri þjóðráð að halda þessa ómissandi stórviðburði í Grafarholtinu stöku sinnum, þó ekki nema til að spara fólkinu ferðakostnaðinn. Skutla Ragga Bjarna og Gittu þess í stað upp á heiði og leyfa heiðafólkinu að dansa í kringum þau fjarri ys og þys stórborgarinnar. Ég gæti jafnvel sýnt fjölmenningalega viðleitni og látið sjá mig. Mætt blindfullur í vatteraðri úlpu, sungið eitthvað leiðinlegt, grátið í símann, lagt þversum í öll stæði sem ég finn...og skrækt þindarlaust án sýnilegs tilgangs uns röddin brestur eða gambrinn ber mig yfirliði. Hvort sem gerist fyrst.

Gleðileg Jól by the way.

10.12.2008 

Á þvæluveiðum með Hnakkusi - Englaheilun


Ég ætti að vera farinn að sætta mig við þá augljósu staðreynd að nákvæmlega helmingur mannkyns er undir meðalgreind en alltaf tekst mér samt að láta þetta fara í taugarnar á mér. Þó gætir ákveðinnar tvöfeldni hjá mér því að á sama tíma og ég er ekki beinlínis vinur heimska mannsins og gríp ófá tækifærin til að hlæja á hans kostnað, þá er mér enn verr við þá sem reyna stöðugt að græða peninga á honum.

Margar gerðir blóðsjúgandi kuklara og bullustampa eru svo algengar að fæstir velta þeim mikið fyrir sér dags daglega og má þar nefna miðla, árulesara, þjóðkirkjupresta og stjórnmálamenn. Oft vekja ýktustu dæmin þó kátínu manna og mér var einmitt bent á eitt slíkt um daginn.

Kona nokkur heldur úti heimasíðu þar sem hún falbýður dulræna hæfileika sína. Samkvæmt vörulista eru hæfileikar hennar aðallega tvíþættir. Annars vegar getur hún fært viðskiptavinum sínum skilaboð frá englunum með því að lesa í englaspil og hins vegar getur hún "fjarheilað" viðskiptavini.

Ef þið eruð að velta fyrir ykkur hvernig "fjarheilun" virki, þá er hér ítarleg útskýring af heimasíðunni:

"Hefur þú einhvern tímann velt fyrir þér hvernig þú nærð mynd á sjónvarpið hjá þér, nærð sérstakri rás á útvarpinu, eða hvernig hægt er að hringja í gemsann þinn?

Það er ekki á svo ólíkan hátt sem að hægt er að framkvæma fjarheilun."

Þar hafið þið það!

Stærsti kosturinn við þjónustuna er svo sá að hvorki hún eða kúnnin þurfa að fara úr húsi. Það er nóg að senda henni E mail og millifæra svo sambærilega upphæð og menntaður iðnaðarmaður myndi taka fyrir að koma heim til þín með fullan bíl af verkfærum og vinna fyrir þig í klukkustund.

Jafn einfalt og að leysa út arf eftir nígerískan afa sem þú vissir ekki að þú ættir!

Svona kostaboð gat ég ekki látið framhjá mér fara en þar sem ég er stálheilbrigður sjálfur, ákvað ég að búa til einstakling sem á við ögn fleiri vandamál að stríða en ég. Vandamál sem aðeins fjarheilari á internetinu gæti læknað.

Lofið mér að kynna Begga. Aðdáendur - Beggi....Beggi - aðdáendur.

Beggi, sem er hið mesta grey settist niður með mér og saman skrifuðum við félagarnir heilaranum lítið bréf:

"Sæl og takk fyrir a´hugaverða síðu

ég hef mikin áhuga á andlegum málum og er mjög spentur yfir því hvað þú hefur að bjóða líkt og englaheilun og fjarheilun. ég fer sjaldan út þannig fjarheilun er góð fyrir mig. ég er öryrki og þjáist af kvíða og þunglyndi og held að þetta með orkustöðcarnar gæti verið málið ég er samt svo spentur fyrir englaheilunini líka afþví´eg er mjög trúaður og finnst englarnir svo huggandi alltaf. er hægt kanski að fá hjá þér heilun sem væri fjarheilun en líka englaheilun eða svona blanda af tvemur?

besta kveðja beggi"


Örskömmu síðar barst Begga svarbréf:

"Komdu Sæll

Já ég get blandað þessum tveimur heilunaraðferðum saman, það er ekkert mál.

Og mér finnst mjög líklegt að orkustöðvar þínar séu mjög blokkeraðar vegna þess er þú nefnir.

Ég ráðlegg alltaf fólki að taka 3 daga í röð í heilun, því það er yfirleitt lágmark sem það tekur að hreinsa stíflurnar. En auðvitað ræður fólk hvað það vill gera. Það munar um hvern tíma.

Ég tek 2500 kr. fyrir hvert skipti og 7500 kr. fyrir heilunartíma 3 daga í röð.

Svo ef þú hefur enn áhuga eru greiðslu upplýsingarnar hér:

xxxx - xx - xxxx kt. xxxxxx -xxxx

Þegar lagt hefur verið inn er best að senda mér email og láta mig vita, hvenær þú vilt fá heilunina. Það er best að viðkomandi sé útafliggjandi á meðan. Það er mjög misjafnt eftir fólki hvort það finni fyrir nærveru minni á meðan. Fer eftir því hversu næmt fólk er á orku. En árangurinn er alltaf sá sami.

bestu kveðjur

xxxxxxx"

Beggi var í ákveðnu tilfinningaróti eftir að hafa stautað sig í gegnum svarið. Vissulega var sjokk að heyra að "orkustöðvarnar hans væru mjög blokkeraðar" en að sama skapi fannst honum hughreystandi að heyra að allt væri þetta læknanlegt með handhægri blöndu af englalestri og fjarheilun sem yrði heimsend rétt eins og slorug Dominos pizza.

Verandi í heimskari kantinum, náði Beggi að skauta gjörsamlega framhjá partinum þar sem hann var krafinn um klípu af örorkunni fyrir herlegheitin. Kampakátur sendi hann svarbréf til að tilkynna hvenær honum hentaði best að vera handfjatlaður af englaher:


"Þetta er virgilega gott að heyra og me´r hlakkar til að prófa þetta. á hádegi á morgun væri góður tími fyrir mig og þá ætla ég að legjast útaf í sjónvarpstólnum mínum og fá heilunina frá þér og englonum. geturu svo sagt mér hvaða skilaboð englarnir koma með handa mer?

takk fyrir allt. þinn beggi"

Hún svaraði ögn stressuð til að árétta að þjónustan væri ekki frí, en þá var vel liðið á kvöld og Beggi farinn að sofa án þess að líta meira á tölvupóstinn sinn það kvöldið:

"Já, sæll ég get gert það, en það þarf að vera búið að leggja inn fyrst 2500 kr. á xxxx - xx - xxxx kt. xxxxxx - xxxx

Ég mun svo senda allar upplýsingar á emaili sem ég fann fyrir hjá þér í heiluninni og koma með skilaboð til þín frá englunum.

Svo þú færð 2 fyrir 1 í dag.

kv. xxxxxxx"

Strax eftir þetta höfðinglega boð um tvo tilbúninga á verði eins, barst Begga annað bréf :

"Sæll aftur

Ég gleymdi einu, ég þarf líka að fá fullt nafn, heimilifang og staðsetningu svo ég geti tengst við þig í heiluninni.

kv. xxxxxxx"

Vitanlega virkar tilbúið bull ekki nema fyrir tilstilli nákvæmra persónuupplýsinga. En Beggi er ekki maður sem flækir hlutina fyrir sér. Hann vaknaði morguninn eftir, fullur af þessarri hreinu gleði sem aðeins þeir einföldustu meðal okkar eiga kost á að kynnast. Hann fékk sér gúlsopa af blómadropunum sem hann hafði fyrst heyrt af í kæfupósti viku fyrr, lagðist með lokuð augun í skítuga sjónvarpsstólinn sinn og bjó sig undir læknandi englastóðið. Lyfleysuáhrifin létu ekki á sér standa og Beggi stóð að lokum upp á ný, hressari en hann hafði verið í langan tíma.

Síðar um daginn hjálpaði ég honum að skrifa þakkarbréf til fjarheilarans:

"sæl og takk ofsalega vel fyrir heilunina ég fann svo rosalega góða tilfiningu streima um mig og ´mér l´iður betur núna ég fann eins og straum af velíðan um mig og það var eins og englarnir væru að strjúka mér að innan og utan og mérleið eins og þú værir hjá mér að passa upp a mig. svo fann ég líka góða tilfinningu á stöðum sem mér hefur ekki liðið vel á í langan tíma og ég vil þaka þér fyrior að hugsa svona fallega til mín

ég f´ór meira að segja út í dag eftir heilunina og fór á kaffihús sem er í hverfinu mínu og fékk mér caco og köku. ég hef ekkert farið út lengi í svona lagað af því ég er ekki svo góður í sálinni fyrr en núna.

p.s. sögðu englarnir þér eithvað um mig? eg er mjög spentur að heyra skilaboðin"

Ég beið æsispenntur eftir næsta svari frá fjarheilaranum. Ég hlakkaði til að sjá hvort hún væri nógu harðsvíruð til að eyðileggja skammvinna gervigleði fyrir minnipokamanni í þeirri von að kría út örfáa þúsundkalla. Það krefst svosem talsverðs siðferðilegs sveigjanleika út af fyrir sig að pretta pening út úr vesalingum sem á annað borð trúa svona vitleysu, en eftir þetta hroðalega aumingjalega bréf frá Begga hefði hún þurft að vera steindauð að innan til að halda þessu til streitu. Sem hefði auðvitað gert þessa færslu enn betri. En því miður beygði hún af fyrri stefnu og sendi Begga copy paste skilaboðin sín frá englunum alveg frítt.

"Sæll

Það er gott að heiluninn hafði þessi áhrif á þig. Það komu 3 englar með skilaboð til þín:

Fyrstur kom sjálfur Gabríel Erkiengill og vildi segj þér þetta:

Þú hefur mikilvægan tilgang með lífi þínu í sambandi við samskipti og listir. Ekki leyfa óöryggi að halda aftur af þér. Ég mun hjálpa þér.

Ég er með þér sem einn af þínum verndar englum. Þú ert kannski undrandi á því, af hverju að Erkiengill fylgi þér. Ég hjálpa mörgu fólki samtímis og þú ert ein af þeim. Ég hjálpa þeim sem hafa lífstilgang í samskiptum og listum. Ég mun hjálpa þér að fægja og treysta þínum náttúrulega tilgangi. Síðan mun ég opna dyrnar fyrir þér til að tjá þessa hæfileika á þann hátt að það hjálpi öðrum.Það sem ég vil fá frá þér í staðinn er heiðarleiki og samvinna. Segðu mér frá því sem þú hræðist, vonum þínum, ringulreið, óöryggi og draumum þínum. Biddu mig um að hjálpa þér. Og þá, vertu svo góð að ganga inn um dyr tækifæranna sem ég opna fyrir þér. Ég er við hlið þína 100%. Ég er eins og þjálfarinn þinn,og sem slíkur mun ég hvetja þig áfram. Taktu eftir, að ég er aðeins að ýta á þig vegna þess að ég veit að þú þarft smá spark handann frá.

Næst kom engillinn Raye og vildi segja þér þetta:

Að stunda jóga og æfingar eru frumskilyrði svo að þér líði vel, hafir frið innra með þér,og þroskist á andlega sviðinu núna.

Þú hefur fengið máttugan leiðbeinanda til að tengjast í jóga og öðrum formum af æfingum og þetta spil er staðfesting á því.Líkamleg hreyfing er hluti af því að gera sér grein fyrir draumum sínum, þrám og markmiðum. Það gefur þér orku og lífskraft, sem hjálpar þér að byrja og klára verkefnin þín. Það opnar fyrir nýjar og skapandi hugmyndir. Og jóga hreinsar og hleður orkustöðvar þínar svo þú munt heyra leiðbeiningar okkar englanna hátt og skýrt. Jóga leyfir einnig, hinum hávaðasama huga að hafa hljótt og hugleiða svo þú heyrir raddirnar á himnum. Jafnvel þó að þér finnst tilhugsuninn um jóga eða æfingar hræðileg, þá mun ég hjálpa þér að létta á því. Ef þú biður mig, mun ég hjálpa þér að finna prógramm sem að hentar þér í sambandi við tíma, áhuga og getu þinni. Þú munt fá leiðbeiningar í gegnum ágengnar hugsunar og tilfinninga, en einnig í gegnum upplýsingar um jóga og æfingar sem koma til þín eins og út í bláinn. Ég veit að þú ert upptekinn manneskja, en ég lofa því að eftir að þú hækkar orku stuðulinn þinn eftir svona æfingar mun það jafngilda því að þú bætir við nokkrum klukkustundum í sólahringinn.

Síðust kom engillinn Astara og vildi segja þér þetta:

Þú átt skilið það besta. Teygðu þig upp til stjarnanna, með drauma þína og þrár.

Í fortíðinni, hefur þú sætt þig við minna en þú vildir. En ekki lengur. Ég er hér til að hækka standardinn hjá þér. Ég er hér líka til að sýna þér að þú þarft ekki að þjást á neinn hátt. Það er ekki sjálfselska að vilja betra líf. Því meira sem þú færð , því meira getur þú gefið til annarra. Þegar þú leyfir okkur að gefa þér, er þér einnig gefinn öll þau tól sem þú þarft til að fylgja tilgangi þínum. Þú ert líka öðrum hvattning, þegar þú sýnir öðrum að andlega leiðin gefi þér allt sem þú þarft. Guð og englarnir vilja að þú njótir lífsins. Hamingja er heilagur partur af þínum Guðlega tilgangi. Hvað sem við getum gert til að gleðja þig, þá endilega biddu okkur. Við höfum tekið eftir því að þú hefur hikað við að biðja okkur um hjálp. Kannski fannst þér þú ekki eiga það skilið, eða að þú værir að taka frá einhverjum öðrum ef þú bæðir okkur um hjálp. En Guð þekkir aðeins allsnægtir,og mannkynið eru þau einu sem trúa á skort.

Þetta er ábending um að Guð og englarnir geta aðeins hjálpað þér ef þú biður okkur um það.

Þetta voru skilaboðin til þín

kv. xxxxxxx"

Hvað klikkaði á lokasprettinum? Kannski var seinasta bréfið frá Begga aðeins of aumkunarvert…kannski þótti fjarheilaranum Beggi ekki líklegur til að feta sig í heimabanka…kannski vöruðu englarnir hana við gildrunni í tíma? Líklega munum við aldrei komast að því.

Af Begga er það að frétta að eftir englaheilunina var hann eins og nýr maður. Alveg þangað til hann fékk massíft kvíðakast tveimur tímum seinna útaf alvöru sjúkdómnum sem þykjustu englunum mistókst að lækna, kleif upp á bókahillu og kastaði sér á vit englanna sinna.

Sú aðgerð mistókst eins og annað sem Beggi hefur tekið sér fyrir hendur um dagana. Líðan hans er nú svipuð og þegar við kynntumst honum en hann bindur aftur á móti miklar vonir við læknandi hendur höfuðbeina og spjaldhryggsnuddara sem hann kynntist á Herbalife samkomu.