Á Barnalandi ríkir mikill ótti þessa dagana. Ótti við ragnarök!
Á
stórskemmtilegum spjallþræði á Barnalandi er þingað um dýrustu og metnaðarfyllstu vísindatilraun sögunnar. Að vísu aðallega út frá
miður skarpri og þunnri frétt um málið af Vísi.is. Í fréttinni er fjallað á afar stuttaralegan og villandi hátt um heimsendaótta nokkurra vitleysinga vegna ræsingar fyrirbæris sem ber nafnið
"The Large Hadron Collider". Ekkert er minnst á mótrök þeirra sem að tilrauninni standa en þann hóp skipa meðal annars um 8000 eðlisfræðingar og þónokkur lönd. Ekkert er heldur minnst á að ríkjandi skoðun vísindaheimsins sé að tilraunin sé fyllilega örugg og að þeir sem mótmæla henni séu flón. Óttinn við hið óþekkta selur enda betur en langdregið röfl um vísindi sem enginn skilur hvort eð er.
Þinghaldið á Barnalandi hóf "
Lúsifer" nokkur. Hún ber augljóslega meira traust til blaðamanna Vísis en vísindaheimsins því hún slær því föstu að við eigum nokkra daga eftir ólifaða. Hún kvíðir eðlilega dauðanum og finnst forvitnisfikt vísindanna ósanngjarnt í sinn garð og mannkyns.
Forviða barnlendingar vilja náttúrulega vita meira um yfirvofandi dauða sinn og umræðurnar fara því hratt og örugglega af stað. Ekki eru allir barnlendingar nógu duglegir að lesa sér til gagns á Vísi.is því spurningum um ástæður tortímingar okkar rignir inn. "Magzterinn" stekkur sem betur fer til og greinir lesendum frá því að til standi að kveikja á "
hverfli" eftir nokkra daga og að talið sé að hann gæti myndað svarthol sem muni gleypa jörðina.
"Valkyrjan" bendir á að það væri alveg eftir mannkyninu að
"eyðileggja heiminn sjálf" og Magzterinn tekur undir þessa greiningu Valkyrjunnar og bætir við að það væri nú
"alveg típískt". Sjálfur hef ég ekki orðið var við að mannkynið hafi eytt sjálfu sér og jörðinni áður, en það má vel vera að ég hafi ekki verið að fylgjast með og að þetta sé mjög dæmigerð hegðun. Þær stöllur komast svo sameiginlega að þeirri skynsamlegu niðurstöðu að það eina sem sé hægt að gera í stöðunni sé að krossleggja fingur. Því ekki einu sinni svarthol bíta á krosslögðum fingrum.
"Bíba" kemur sterk til leiks:
"Úff, og ætla þeir bara að taka þann séns sí svona?Hver er tilgangurinn með þessu? Veit það einhver? Hvað er það frábærasta sem gæti gerst í þessu "verkefni"?? :/""Séns sí sona" kallar hún Bíba það þegar átta þúsund eðlisfræðingar taka höndum saman, reikna eitthvað út í tuttugu og eitthvað ár og spandera hundruðum milljarða í rannsóknir. Gott og vel. Öll höfum við misjafna standarda. Skiljanlega vill Bíba fá útskýringar á áhættusækni fiktsjúku vísindamannanna og hvar er betra að fræðast um hvað færustu vísindamönnum heims gengur til en akkúrat á Barnalandi.
"Charmed" hefur því næst upp raustina og greinir veröldinni frá sinni vel ígrunduðu og upplýstu skoðun á tilrauninni. Henni finnst
"fáránlegt að ætla að kveikja á þessum hverfli og vita í rauninni ekkert hvaða afleiðingar það hefur". Eins og Lúsifer finnst henni súrt að kyngja því að hennar stórbrotna tilvera gæti að engu orðið vegna ónauðsynlegrar tilraunar (sem að vísu gæti útskýrt tilurð alheimsins og ollið byltingu í skilningi mannkyns á náttúrulögmálunum). Ég verð að taka undir með Charmed hérna. Hvað höfum við með þekkingu, framfarir og ævintýri að gera þegar við höfum Charmed!
"Tuborg" sýnir af sér kurteisi sem aðrir barnlendingar mættu vel taka til fyrirmyndar og biðst afsökunar á heimsku sinni áður en hún spyr viðstadda hvað
"Hvirfill" (sic) sé. Með þeim orðum lýkur þáttöku Tuborg að mestu, án mikilla áhrifa á umræðuna til eða frá.
Charmed viðurkennir á þessum tímapunkti í umræðunni að hún
"skilji ekki tilganginn með þessarri rannsókn". Þessi yfirlýsing Charmed kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti þar sem Barnlendingar höfðu fram að þessu stólað verulega á hennar innsæi inn í heim framsækinnar eðlisfræði.
Valkyrjunni finnst kaldhæðnislegt að leit að svörum við uppruna heimsins muni mögulega verða sama heimi að aldurtila. Magzterinn tekur undir þessa athugasemd og finnst skrýtið að þetta sé leyft þegar margir vísindamenn telji þetta ógna öryggi manna eða jafnvel mannkyns alls. Undir þetta tekur "Honey Bee".
Honey Bee varpar svo nýjum vinkli á umræðuna og veltir upp spurningunni um "hvernig geti orðið til bara allt í einu svarthol og allt horfið eins og smellt sé fingri".
Magzterinn svarar með link á grein um svarthol á vísindavefnum. Væntanlega skrifuð af traustverðari vísindamönnum en þessum siðblindu galgopum sem halda til inni í einhverju fjalli í Sviss.
"Líla" hughreystir Honey Bee með því að benda á að líkast til væru
"moggin og fréttabalið"(sic) búin að skrifa um þetta
"ef eitthvað vit væri í þessu". Reyndar hafa allir fjölmiðlar fjallað nokkuð ítarlega um þessa tilraun nú þegar en líkast til lesa barnlendingar ekki margar fréttir um flóknar eðlisfræðitilraunir nema orðinu "ragnarök" sé skellt í fyrirsögnina.
Honey Bee veltir svo reyndar upp áhugaverðri spurningu sem vill svo til að ég get svarað fyrir hana. Hún spyr
"hvar allir miðlarnir séu?". Svarið við þeirri spurningu er einfalt. Þeir eru uppteknir við að ræða við hana Sigríði/Guðrúnu, látna ömmu þína - frænku - eða ekki frænku, um draslið í geymslunni þinni, fyrir 5000 kall á tímann.
Þinghaldið fer skyndilega að snúast um hver gefi eiginlega leyfi fyrir óábyrgum fíflagangi eins og þessarri tilraun. "Twighz" sótbölvar "nördunum" sem standa fyrir þessu og lýsir því yfir að andstætt þeim gæti henni ekki verið meira sama um hvernig heimurinn varð til. Charmed leiðir að því líkum að nördarnir sjálfir samþykki þetta og að hér sé komið að einhvers konar "hefnd nördanna". Þið vitið...eins og í bíómyndinni þarna. Líla spyr hvort það eigi að leyfa þeim að gera þetta og spyr líka
"af hverju ættu einhverjir vísindamenn að vera að hógna (sic) heiminum". Hún bara skilur það ekki. Sem er skrýtið því að hún virkar á mig eins og manneskja sem skilur flest annað.
"Asco" gengur til pontu og krefst svara:
"hver samþykkir svona og borgar 600 milljarða til að búa til tæki sem (okkur hérna virðist) allavega vera tilgangslaust og gæti "í versta falli" eytt heiminum. Garg !"Góð spurning! Hver samþykkir 600 milljarða vísindatilraun sem BARNLENDINGUM finnst vera tilgangslaus???!
Kjarnorkurannsóknasamtök Evrópu og þau tuttugu lönd sem eiga aðild að samtökunum hefðu átt að kanna jarðveginn AAAÐEINS betur áður en peningunum var ausið í verkefni sem nýtur svona lítils fylgis á spjallvef fyrir mæður með of mikinn frítíma. Það er ekki nóg með að þetta vísindahyski viti ekkert um vísindi...þetta kann ekkert með peninga að fara heldur!
"Tipzy" leggur kalt mat á dæmið og bregður upp samanburði við annað vísindaverkefni:
"Finnst þetta bara ein versta hugmynd mannkynsins síðan atom sprengjan var fundin upp."
Japanir væru örugglega sammála Tipzy. Hún ætti að skreppa þangað og segja þeim af hverju öreindahraðall sem er byggður til að svara spurningum og auka framfarir í vísindum er verri en risastór sprengja sem var hönnuð í þeim tilgangi einum að flambera forfeður þeirra. Það yrðu örugglega lærdómsríkar samræður fyrir alla viðstadda.
"Addags" sem virðist vera örlagatrúar róar mannskapinn og bendir á að við ráðum ekki eigin örlögum. Að hvert okkar geti dáið hvenær sem er af völdum bíla og hárblásara.
"Við vitum aldrei hvenær okkar dagur kemur, kannski dey ég á morgun í bilslysi á Kringlumýrarbraut. Eða kannski eftir tvo daga dettur blásarinn minn ofan í baðkerið meðan ég ligg í því. Eða eða eða..."Ef þú lest þetta á næstu tveimur dögum Addags....hættu að blása á þér hárið í baði! Ef þú lest þetta ekki á næstu tveimur dögum....þá skal ég íhuga þetta með örlögin. Díll?
Charmed tekur undir örlagaþvaðrið en lýsir enn og aftur frati á þetta "
asnalega og tilgangslausa verkefni".
"Eini tilgangur þess að að fróa fróðleiksfíkn örfára hræðna sem eru að fara yfir um af hugsunum "hvað er alheimurinn og bla bla" "- Segir Charmed skjálfandi af bræði yfir því að ekki séu allir jafn hógværir í þekkingarleit sinni og hún sjálf.
Lúsifer sem hóf umræðuna mætir því næst aftur á svæðið, nú orðin örvingluð af ótta:
"en ef það er hægt að komast hjá því!!! ég vil ekkert deyja!! ég er ekki tilbúin í að deyja!! hver er með mér í að fara uppí flugvél og fara þangað og stoppa þetta madness!!!"Það eina sem stendur á milli Lúsifer og endaloka 600 milljarða fjölþjóðlegs verkefnis virðist vera ein flugferð. Ætli meiri líkur séu á að Lúsifer hverfi inn í manngert svarthol þann 10. september eða farist í flugvél á leiðinni til Sviss? Ég er enginn tölfræðingur en ég myndi mæla með að leyfa vísindunum að hafa sinn gang.
Umræðurnar leysast svo upp í gerð áætlana fyrir síðustu daga tilverunnar. Nammiát og vísakortaþjark virðist ofarlega á lista Barnlendinga yfir hluti sem þær vilja áorka áður en þær deyja.
Barnlendingar eru reyndar ekki einir um að óttast vísindin. Ekki ómerkari menn en Magnús Þór Hafsteinsson fyrrverandi þingmaður er t.d.
sammála þeim um að Guði einum sé ætla að vita eitthvað um heiminn.Reyndar hefur þessi manngerð alltaf verið til. Takmörkuð í getu sinni til að hugsa út fyrir hellinn og heiftúðug út í þá sem það geta. Fólk sem vill grilla nornir á flatri jörð. Það skondna er að nú til dags lýsir þetta fólk frati á vísindin með aðstoð rafmagns, tölvu og internets.