Félag gegn pólverjum

Það hefur varla farið framhjá neinum að nýlega var stofnað félag gegn pólverjum á netinu sem ört fylltist af reiðum ljósabrúnum unglingum. Mér til mikillar undrunar uppgötvaði ég að forsprakki og stofnandi félagsins er enginn annar en "Danni Súkkó" úr hljómsveitinni "Busta Bitches" sem ég gerði einmitt góð skil hér um árið. Danni er augljóslega orðinn leiður á að horfa upp á pólska rappara stela frá sér vinnunni og hefur snúið vörn í sókn.
Það kom mér þó óneitanlega á óvart að heyra að Danni vinur minn væri í forsvari fyrir félag sem berst gegn útlendingum á Íslandi. Ekki síst vegna þess að Danni á sjálfur að baki líflegan feril sem nýbúi og glæpamaður í erlendu landi eins og lesa má milli línanna í laginu hans, "I'm a hustla":
"L.A.P.D. chasing me/
Acting like they can arrest a B'/
i´ma gangster somthing like that/
Don´t go around not bringing a gat/
Acting like they can arrest a B'/
i´ma gangster somthing like that/
Don´t go around not bringing a gat/
Síst vil ég þó saka Danna um tvískinnung í þessum efnum enda veit ég að hann er útvörður og kyndilberi alls þess sem íslenskt er, þrátt fyrir að hann hafi um hríð gert lögreglunni í Los Angeles lífið leitt með glæpsamlegu líferni sínu.
Félagið gegn pólverjum er hinsvegar úr sögunni að nafninu til. Svo virðist sem baráttumóður unglinganna hafi dvínað hratt eftir að félagið fékk auglýsingu í fjölmiðlum, og flestir meðlimirnir fengu vel útilátinn kinnhest frá foreldrum sínum. Danni er búinn að breyta nafninu á félaginu í "félag kristintrúa" og þurrka út allar fyrri umræður ungmennanna um hvað pólverjar séu hroðalegt fólk. Mér brá þegar ég sá þessa breytingu og viðurkenni fúslega að ég hef áhyggjur af Danna sem virðist vera á hraðferð til glötunar. Hann byrjaði að fikta í útlendingahatri fyrir helgi og núna aðeins örfáum dögum síðar hefur fiktið leitt hann út í kristni. Með þessu áframhaldi verður hann búinn að skrá sig í Framsóknarflokkinn fyrir mánaðarmót og kominn á samning hjá Einari Bárðar fyrir árslok! Ég vona að foreldrar Danna grípi inn í þetta sjálfseyðingarferli og ljái honum eyrnafíkju allra tíma! Ekkert minna dugar á ögurstundu. Til að auka líkurnar á téðri eyrnafíkju læt ég fylgja þessa mynd af glaseygðum Danna með alíslenskan bjór í hönd (Nei, hann er ekki að halda á honum fyrir vin sinn):

Danni...þetta er fyrir þig.
~~~
Þrátt fyrir að félaginu hafi formlega verið breytt úr rasistaklúbbi yfir í kristilega kærleikgrúppu, láta sumir meðlimanna sér ekki segjast og skenkja okkur enn af visku sinni um útlendinga. Eftirfarandi gullkorn á til dæmis hún "Sigga Elsa", 17 ára stúlka frá Ísafirði:
Sigga vísar í náttúrufræði og mannkynssögu máli sínu til stuðnings og ljóst er að hún er jafnvíg á báðar greinar. Nútímasaga pólsks aðflutts vinnuafls hringir viðvörunarbjöllum í huga Siggu þegar hún ber hana saman við þekkingu sína af sögu afrísk-ættaðra bandaríkjamanna. Hún vegur og metur alla sína þekkingu á efnisatriðunum og skilar hárbeittri greiningu. Niðurstaðan er sláandi.
Afrískir þrælar komu frá öðru landi rétt eins og pólverjarnir og þeir unnu frekar ódýrt (eins og þræla er von og vísa). Og núna eru sumir þeirra ríkir og frægir eins og Oprah og Obama. Lexían sem Sigga Elsa vill að við meðtökum er einföld. Annaðhvort losum við okkur við pólverjana eða þeir enda á þingi með sand af seðlum og aðal sjónvarpsefnið eftir fjögur hundruð ár verður "Sunnudagskvöld með Gorbúslövu"!!
Svo minna pólskir verkamenn Siggu á glæpagengi hörundsdökkra bandaríkjamanna og það bara gengur ekki. Burt með pólverjana svo Sigga sofi rótt! Þetta er hennar land því það vill svo til að hún fæddist hérna. Peningarnir sem íslensk fyrirtæki greiða pólverjum fyrir þeirra vinnu eru hennar líka...af einhverjum óútskýrðum ástæðum.

Pólverjar og glæpagengi þeldökkra vestanhafs klæða sig gjarnan upp til hátíðabrigða svo vart má greina á milli.
Ég vil enda þetta á að þakka Al Gore fyrir að hafa ekki fundið internetið upp fyrr en eftir að ég sleit barnsskónum. Unglingar eru betur settir á Hlemmi með poka af lími upp á gamla mátann en eftirlitslausir á internetinu þar sem þeir stofna rasistaklúbba og skipuleggja stefnumót með ungum stúlkum sem heita Ágúst Magnússon.
