Hnakkus: Af hverju éta þau ekki bara álpappír?

« Home | Niður með Davíð! » | Leiðarvísir fyrir reiða og ráðvillta » | Ísland brennur » | Alþýðuhetja snýr aftur úr útlegð » | Betlarar éta það sem býðst » | Góði serðirinn » | Baráttan um arfinn er hafin » | Svarthol heimskunnar » | Að fá Stein inn um gluggann » | Ofurhundur og kanamella » 

19.10.2008 

Af hverju éta þau ekki bara álpappír?



Ef einhverjir eru eftir þarna úti sem eru ekki farnir að sjá í gegnum atvinnukrúsídúlluna Dorrit Mússajeff þá mæli ég með þessarri grein.

„Ég elska Ísland en hingað til hef ég getað unnið Íslandi meira gagn erlendis en hér heima. Ekki hefur verið eins mikil þörf fyrir mig hér, en ég hef samt lagt áherslu á að fá áhrifamikla útlendinga til landsins, einkum í markaðssetningu í hverri grein. Það er mér mikilvægt.“

Ég hef einmitt verið að velta þessu fyrir mér. Hún og "Úlafúr!" hafa verið á spani um heiminn síðustu ár undir því yfirskyni að þau séu að koma "Íslandi á framfæri" og "afla okkur mikilvægra sambanda".

Hvar eru öll þessi sambönd núna? Æ já, þau eru ekki til. Öllum er sama. Nema Dorrit og "Úlafi" sem eru allt í einu komin heim með fullan bíl af umhyggju eftir að hafa teikað möllettið á Jóni Ásgeiri í gegnum gjálífi heldri borgara í mörg ár . Og við eigum að falla í stafi af því einkaþoturnar fóru á uppboð og þau komu heim á almennu farrými. Grátstafi helst. Eins og vangefin börn með þörf fyrir viðurkenningu. Nigga please!

Ég vona að fólk sjái í gegnum þetta en er ekkert alltof vongóður því miður.

Áfram heldur Frú Dorrit:

"Og forsetafrúin gagnrýnir efnishyggju Íslendinga: „Þjóðfélagið er orðið mun peningadrifnara og fólk er ekki eins meðvitað um arfleifð sína – það var svo ánægt með landið og stolt af sögu þjóðarinnar en gildin urðu óljósari og viku sumpart fyrir efnishyggjunni. Kannski er það augljósara þeim sem horfir gestsaugum á samfélagið. Alltof margir tóku peninga að láni til að kaupa hluti sem þeir þurftu ekki. Bíll þarf bara að vera á fjórum hjólum til að komast á milli staða og tilgangur úrs er að mæla tímann. Ég er reyndar í úrabransanum, þannig að ég ætti kannski ekki að segja þetta!“ segir hún og hlær.

Forsetafrúin leggur ennfremur áherslu á nýtni og sparsemi: „Ég hef lagt áherslu á það hér á Bessastöðum að endurnýta allt sem hægt er, litla hluti eins og álpappír, og stundum er gert grín að mér fyrir vikið."


Gagnrýnir efnishyggjuna??? Ef hún er svona klár í úrabransanum þá ætti hún að vita að það er haltu kjafti tími!

Ef Dorrit er svona flink í að lifa á álpappír þá ætti hún að gefa alla milljarðana sína í sjóð til að aðstoða þá sem eru að missa heimili og atvinnu útaf bröltinu í djammfélögum hennar.

Dorrit hefur alltaf verið moldrík en hún vildi vera drottning líka. Núna lifir hún heimatilbúnu hirðlífi á okkar kostnað og les yfir okkur um sparsemi frá Bessaversölum á meðan allt skolast niður í klósettið.

Stórasti hræsnari í heimi.

Já, svei þessu hyski.

Aftur skýtur Hnakkus beint í mark. Þetta er svo hrikalega satt!

Ég var einmitt að pæla í þessu. Ég horfi á konu í gylltum kjól tala um grunngildi. Hefur frú Dorrit litið í spegil?

Dorrit er stórkostleg enda er enginn vafi á því að íslenska þjóðin elskar hana.

Dorrit var leikfélagi kóngafólksins - en hana vantaði boðskort í brúðkaupin og jarðarfarirnar.

Ólafur er hennar aðgöngumiði.

Þessi síbernska auðjöfursdóttir er án efa besta skinn - en hennar veruleiki er allt annarr en þorra mannkyns.

takk takk takk (!!) fyrir að segja þetta.

ósvífnin er svo yfirgengileg að maður kúgast - pistillinn þinn var þó örlítið ógleðistillandi.

Bíddu ekki var hún að skuldsetja okkur? Ekki var hún að tapa peningum? Svo af hverju að ráðast á hana? Sé ekki alveg tilganginn í þessu hjá þér. Ef að hún vill nýta vel það fjármagn sem við leggjum í Bessastaði og forsetaembættið sé ég ekki af hverju hún má ekki tjá sig um það?
Held að það sé rétt hjá henni að hér snýst allt um peninga og helst að láta aðra sjá að þú eigir þá. Brjórta niður hús, eiga þotu, Range Rover og helst snekkju í útlöndum.
Hún varð ekki rík á okkar kostnað ólíkt þeim sem hafa nú orðnir vísir að því að ræna af okkur milljörðum

Þetta var ómerkilegur pistill. Hvað hefur Dorrit gert íslensku þjóðinni? Geturðu ekki fundið þér eitthvert verðugra skotmark af innlendum uppruna?

Það er einmitt málið. Drepa öllu á dreif og neita að horfa á hvar sektin liggur. Íslendingar hafa sko aldrei kunnað að afgreiða mál. Typical að ráðast nú á Dorrit, Mér finnst hún bara flott og fínt að hún skuli segja meiningu sína. Og þetta með álpappírinn er bara hárfín ábending um að VIÐ kunnum ekki að spara - sem er laukrétt. Hún - sem á millur og trillur- lætur endursauma fötin sín. Það er greinilega ennþá langt fyrir neðan okkar virðingu!

Nafnlaus, þú ert mesti geðklofi sem ég hef kynnst.

En hvað er svona óverðugt við Dorrit sem skotmark að þínu mati og hvaða máli skiptir uppruni hennar?

Ólafur Ragnar og frú eru partur af vandamálinu eins og margir aðrir. Sulturnar sem sjá ekki í gegnum ruglið í þeim eru líka partur af vandamálinu.

Hver drepur málum meira á dreif en Ólafur Ragnar? Hans helsta hlutverk virðist vera að sefa þjóðina með innihaldslausum langhundum um ekki neitt. Og fyrir þetta greiðum við honum vel.

Í gær mætti ég honum á götu þar sem einkabílstjórinn hans var að keyra hann um á tíu milljón króna forsetabíl númer þrjú.

Svo deilir þetta pakk á venjulegt vinnandi fólk fyrir óráðsíu og þykist hafa upp á einhverjar lexíur að bjóða?

Og kjánar sem eru ástfangnir af glysinu klappa með og borga þegjandi.

Hvað ef að það hefði nú einhver annar en Dorrit sagt þetta. Hvað ef hinn heimsfrægi Jói Pípari hefði látið þessi orð falla. Nánast allt sem hún segir í þessu viðtali er heilagur sannleikur. Það er vissulega kreppa í dag margir eiga um sárt að binda. En ég get fullvissað ykkur um það að hún hefði ekki haft nándar nærri eins mikil áhrif á þjóðina ef við hefðum nú bara eitt þeim peningum sem við áttum en ekki skuldsett okkur upp fyrir haus og spreðað peningum sem við áttum ekki. Mér finnst að verið sé að hengja bakara fyrir smið með því að ráðast á hana Dorrit fyrir það eitt að slengja sannleikanum framan í fólkið.

Dorrit og Óli eru ekki fullkomin frekar en aðrir. En þessi orð Dorritar eru ágæt, hlýleg og vel meint og talsverður sannleikur um þjóðarsálina - allavega jafn efnishyggjuhúðuð og hún hefur verið upp á síðkastið. Hnakkus, þú færð mínus fyrir þennan pistil. Og tvo mínusa fyrir uppnefnin. Passaðu þig á að drepast ekki úr reiði, það er ekki góður dauðdagi.

Þeir sem eru að missa heimili sín hafa spennt bogann of hátt. Fólk verður að taka ábyrgð á eigin lántökum og hlutabréfakaupum. Það er ekki endalaust hægt að benda á einhverja aðra...

Let them eat cake she say's !!

Það er óneitanlega frekar kaldhæðnislegt að kona sem á gríðaleg auðæfi og hefur alltaf lifað í vellystinum, skuli tjá sig um sparnað og leggja alþýðunni lífsreglurnar.

Frú Dorrit veit ekki hvernig raunverulegt líf launamanns er!

Merkilegt nokk fóru meðvirku royalista kommentin að hrúgast inn örskömmu eftir að færslan kom til umræðu á Barnalandi:

http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=11350182&advtype=52&page=1

Takk fyrir að bregðast mér ekki barnlendingar :*

Það er hrein unun að lesa skrif þín Hnakkus og ég vil hrósa þér sérstaklega fyrir hverja ofurfærsluna á fætur annarri síðustu daga. Enginn annar bloggari kemst með fingurna þar sem þú hefur gilda upphandleggina.

Annar góður:

http://arni.eyjan.is/2008/10/af-hverju-bori-i-ekki-svi-kkur.html

Þú ert nú meira fíflið. Ég get nú ekki séð að Dorrit hafi gert Íslendingum neitt nama gott.

Hvernig forsetafrú vilt þú frekar?

Þú ert bara súr öfundsjúkur fýlupúki sem ert sennilega með allt niðrum þig.

Sorglegur nöldrari.

Haha þarna datt inn önnur barnalandskerling með prinsessuóra.

hún endurvinnur ekkert . Þjónarnir gera það fyrir hana

"Þú ert bara súr öfundsjúkur fýlupúki sem ert sennilega með allt niðrum þig" Við hin sem erum jafnsúr og með allt niðrum okkur (þökk sé fávitunum sem við öfundum) þökkum hnakkusi fyrir að nenna þessu.
Barnalandsumræður eru tær snilld, það ætti að selja inn á þær, heilajóga, fullkomin slökun, spa norðursinns.

Til hamingju! Á nokkrum dögum hefur þú fengið hrós frá Agli Helga og Ágústi Borgþór. Hvað er næst? Stebbifr? Ómar R.? Valdimars? Þáttur á Útvarpi Sögu?

http://omarr.blog.is/blog/omar/entry/679648/

Ómar R. er kominn á listann. Fylgjast með.

Næst verður það stórriddarakross frá Herra Ólafi Ragnari.

Dorrit er ein af þessum smástirnum á Íslandi sem ekki má blaka við að neinu leyti án þess að einhverjir reki upp reiðiöskur. Davíð kallinn var um langa hríð í þessum hópi en hefur sem betur ekki sama sess þar nú og hann áður hafði.

Ef Dorrit er svona mikið í mun að spara mæli ég með því að fækka þessum eilífu ferðalögum sem hafa augljóslega ekkert upp á sig. Álpappírsblöðin verða lengi að borga upp öll fyrstu farrímin!

Ég er sammála Hnakkusi, þessi grein var hallærisleg og lítilsvirðandi. Ef hún vill leggja einhverjum lífsreglurnar ætti hún að beina orðum sínum til auðmannanna sem hafa steypt þjóðinni í glötun. Við hin, sem nú þurfum að borga brúsann, höfum engan áhuga á að hlusta á svona þvaður!

http://spamadurinn.blog.is/blog/spamadurinn/

TAKK!

Takk fyrir að þora þegar aðrir þora ekki.

Ég get ekki lokað munninum!

Fyrst út af undrun yfir þessu viðtali og svo út af viðbrögðum fólks.

Dorrit og Ólafur eru aldeilis búin að gera embættið heilagt. Hvítt rusl í Bretlandi ver jafnan krúnuna þar og það sama er að gerast hér.

Verst að Ólaf og Dorrit skortir allan klassa

"Það er óneitanlega frekar kaldhæðnislegt að kona sem á gríðaleg auðæfi og hefur alltaf lifað í vellystinum, skuli tjá sig um sparnað og leggja alþýðunni lífsreglurnar."

Hvernig halda menn að "raunverulegir" auðmenn (ekki pappírspésar) verði ríkir? Ekki með því að eyða og og spenna, svo mikið er víst.

Hlustið á ráð Dorritar, hún veit sínu viti, eins og karl faðir hennar Shlomo Moussaieff sem átti ekki neitt þegar hann kom til Bretalands. Að vísu er því haldið fram að auður hans byggist á sölu á fornminjum sem hann á að hafa stolið í Ísrael eftir seinna stríð, en ég veit ekki hvort neitt hefur sannast á hann um það. Auk þess, hver ÁTTI svo sem slíka hluti á þeim árum? Hann tók þá víst bara það sem hendi var næst.

Hmmm. Við lýsingarnar á endurnýttum álpappír vaknaði sú von í brjósti mér að forsetaembættið sýndi slíkan fyrirmyndarsparnað á öllum sviðum.

Hver hefur heldur ekki heyrt af hinni gríðarlegu hagsýni Dorrit þegar að hún kaupir miða á almennu farrými en krefst þess að sitja á Saga Class. Eitt sinn var ég um borð í flugvél þar sem svona rekistefna fór fram -annars hefði ég líklega talið þetta gróusögu.

En eins og ég segi. Allt þetta tal um hagsýni veitti mér von að embættið gæti orðið okkur öllum innblástur.

Það kemur auðvitað annað í ljós þegar maður kafar ofan í málið. Embættið kostaði okkur 180% meira árið 2006 en það gerði 1996.

Forsetaembættið fer venjulega langt fram úr fjárheimildum sínum. Árið 2005 hafði ÓRG eytt 122 milljónum meira en hann hafði heimild til. Ef ÓRG fær milljón eyðir hann 1.120.000.

Þess vegna er auðvitað grátlegt að sitja undir ávítum frá forsetafrúnni um efnishyggju almúgans. Álpappíssparnaðurinn er a.m.k ekki nóg til að kæta ríkisendurskoðun. Ríkisendurskoðun mætti hinsvegar benda hjónakornunum á sjálfskoðun.

Grátlegt að þegar embættið hefur í raun færst svona langt frá þjóðinni að fólk verji slíkan talsmáta. Landinn virðist kunna vel við að hlusta á hringlið í skartgripum Dorritar meðan hún skammast í okkur fyrir að þurfa taka lán fyrir þaki yfir höfuðið.

Vaknið Íslendingar!

Ein sem hvorki er afbrýðisöm né skuldsett vegna óráðssíu. Eða var það ekki.

Ólafi er vorkunn, hann þurfti náttúrulega að halda í við þann lífsstandard sem frúin hans er vön! ;) Eða þannig.

Ég er hreint ekki hrifin af hans embættisfærslu, en mér finnst óþarfi að úthúða Dorrit. Hlustuðuð þið á hana í beinni útsendingu á Stöð 2 í Ísrael? Þar talaði hún máli Íslendinga mjög vel. (Líka gaman að heyra hana tala hebreskuna).

Hef nú ekki heyrt um þetta með Saga-Class, viðurkenni að þetta er frekar hallærislegt, ef satt er.Þó hún sé þarna að spara fyrir ríkið, sennilega.

Hins vegar hefur mér alltaf líka fundist hallærislegt að sitja í kremju á almennu farrými á meðan maður hefur séð að Saga-Class hluti vélarinnar er hálf, ef ekki galtómur. Ætli Dorrit hafi ekki bara fundist það líka? Ættum við ekki bara öll að heimta að fá að sitja þar ef við sjáum að þar er tómt?

Já elsku Sulta. Við getum verið meðvirk fram í rauðan dauðann ef við kjósum það.

Þá er Dorrit auðvitað voða sæt og kemur krúttlega fyrir.

En ef maður horfir raunsætt á hlutina þá er hún hræsnari. Ólafur Ragnar er líka hræsnari og þau ættu að sýna þá kurteisi að sýna almenningi virðingu.

Þau hjónin hafa að sjálfsögðu umgengist meira af óráðssíufólki en ég og aðrar sultur. En maður skyldi þá ætla að Dorrit gæti predikað þessi gildi sín í næsta kokteilboði á Bessasölum.

Venjulegt fólk hefur nefnilega engan þátt tekið í þessu.

*Almenningur er með húsnæðislán sem eru að hækka upp úr öllu valdi ( sama hvort þau eru erlend eða íslensk ).

*Almenningur er að verða fyrir gríðarlegri kjaraskerðingu. Það að labba út í næstu subbulegu Bónusbúð og kaupa kjötfars og kartöflur á mun hærra verði en fyrir ári er okkar raunveruleiki. Við getum víst ekki étið endurnýttan álpappír.

*Almenningur er að afskrifa hluta ad lífeyrissparnaði og sparnaði sem það átti.Gamalt fólk er að missa ævisparnað. Ungt fólk er að missa peninga sem áttu að fara í útborgun á húsnæði. Fótunum var kippt undan æði mörgum með hruni bankanna.

*Hluti almennings býr allt í einu við gríðarlegt atvinnuóöryggi. Atvinnuleysi MUN aukast.

*Verðbólgan á eftir að belgja sig yfir og allt í kring. Ekki laun almennings.

Auðvitað hafa einhverjir farið of geyst og skulda allt of mikið í dýrum bílum og hjólhýsum. En flestir eru bara að keyra venjulega fjölskyldubíla og búa í hóflegum íbúðum með Ikea húsgögnum.

Dorrit og Ólafur verða að hugsa áður en þau tala. Þau geta ekki predikað þetta hófsemi þegar þau sýna hana ekki sjálf. Almenningur á ekki skilið slíkan hroka á erfiðum tímum.

P.s Varðandi Saga Class þá var Dorrit að ferðast á eigin vegum. Þannig að þetta var ekki hagsýni fyrir íslensku þjóðina.

Kv. Þessi sem er nú skuldsett fyrir hönd Bjögga, Hannesa, Jonna og fleiri gosa.

Auðvitað kann Dorrit að spara. Hún er júði LOL!

Sendu inn athugasemd

Linkur á færslu

Create a Link