Hnakkus: Ársuppgjör

« Home | Hreinlæti » | Hasar í háloftunum » | Hringsnúningur Stefáns » | Stingandi tvískinnungur að norðan » | Skáldlegt réttlæti » | Kúkur og piss » | Hippakæfa » | Charlton Heston er dáinn! » | Vörubílstjórar » | Félag gegn pólverjum » 

10.8.2008 

Ársuppgjör

Image Hosting by PictureTrail.com

Kallræfillinn. Hvað ætli hann hafi gert sem hann fékk 35 þúsundkall fyrir?

ég sem hélt að hann væri bloggandi bótaþegi en hann er það ekki einu sinni. Býr hann í forstofuherberginu hjá mömmu sinni?

Hvar er söfnunarreikningur fyrir drenginn? Ég vil ekki vita af svona örbirgð.

Ég verð sennilega að gefa honum í soðið þegar ég kem af sjónum næst

Nýjustu heimildir herma að hann sé kominn með heiðarlega vinnu og búist nú við betri tíð í fjármálum svona heilt yfir.

Ég hélt að Eyjan vildi fjölga lesendum.

Núna verða skrifaðar notalegar fréttir af krafti á Eyjunni!

Drengurinn skrifar átakanlegan kveðjupistil á bloggið sitt. Það er engu líkara en hann sé að kveðja nánustu ættingja hinstu kveðju, að leiðarlokum.

Engar breytingar hafa enn verið gerðar í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur en fundað er af krafti.
Fréttir nú síðdegis af hugsanlegum breytingum á meirihlutasamstarfinu hafa verið í fréttum með áberandi hætti. Hanna Birna Kristjánsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, núverandi og fyrrverandi oddvitar funduðu með Ólafi F. Magnússyni með öflugum hætti nú síðdegis en ekki hafa borist fréttir af að þau hafi veitt honum náðarhöggið. Fundinum lauk upp úr klukkan 18:30 og þau þrjú tjáðu sig ekki við fjölmiðla. Nístandi veruleikinn blasir nú við borgarstjóranum. Hann fer í pirrurnar á Sjálfstæðisflokknum heilt yfir og er ekki lengur vonarstjarna Vilhjálms og Kjartans heldur vemmilegur samstarfsaðili sem hefur klúðrað samstarfinu vegna stingandi þarfar fyrir 19. aldar götumynd á Laugarvegi. Endaspilið er framundan og ljóst að samverustundirnar með Sjálfstæðisflokknum verða ekki fleiri. Þetta er nístandi veruleikinn og ljóst að hörð afstaða samstarfsflokksins er borgarstjóranum mikið högg. Það hefur komið fram með áberandi hætti.

Nú er ljóst að StebbiFr hefur tekið aftur sína hinstu kveðu til tryggra lesenda á moggablogginu. Fagnaðarefni er að ekki varð af þessum kuldalega og sláandi viðskilnaði eins og þó leit útfyrir að yrði raunin um tíma.

Hann kemur nú sterkur inn með nýja færslu af borgarmálefnum og stingur á kýlum með afgerandi hætti eins og fyrri daginn.

Hugmyndin var að hann yrði einn eyjubloggara en þeir munu margir hafa hótað að yfirgefa vettvanginn ef bloggræpunni hans Stefáns yrði hleypt þangað inn. Mönnum þykir nóg um að hafa hann í "fréttunum" er sagt. Stefán átti því ekki annarra kosta völ en halda sig áfram á mogganum því ekki getur hann hætt að blogga af krafti.

Hætti nú bara við að flytja mig á Eyjuna þegar ég sá hvað aðsóknin þangað hefur hrunið undanfarið. Fékk líka margar notalegar kveðjur fyrir samverustundirnar á Moggablogginu sem fengu mig til að endurskoða fyrri ákvörðun um hvar er best að viðra skoðanir sínar af krafti.

Umhverfið sem Mogginn hefur skapað er vinalegra en á Eyjunni. Ég kýs það sem er best hverju sinni.

Í dramatísku kveðjufærslunni þóttist Stebbi vera orðinn "fréttamaður á Eyjunni og vinna þar með blablbla".

Nokkrum tímum síðar breytti hann færslunni svo hvergi var minnst á Eyjuna.

Svo dregur hann þetta allt saman til baka og bloggar eins og enginn sé morgundagurinn.

Mikið væri gaman að vita hvað í fjáranum liggur þarna að baki.

eyjumenn hafa séð í honum ódýrt vinnuafl. maður með 2000 kall á mánuði gerir varla miklar kröfur.

Google gleymir engu



12.8.2008 | 15:10
Tvö ár... og komið að leiðarlokum

Komið er að leiðarlokum hjá mér á þessum vettvangi. Ég hef ákveðið að segja skilið við Moggabloggið eftir tveggja ára þátttöku hér, sem hefur verið ánægjuleg og góð í alla staði. Ég hóf nýlega störf sem blaðamaður á Eyjunni og vinn þar við hlið Hallgríms Thorsteinssonar og Eddu Jóhannsdóttur. Breytingum fylgja nýjir tímar og ég ætla að segja skilið við þennan vettvang í ljósi þess. Mun væntanlega fara að blogga á Eyjunni eftir smápásu.

Ég vil þakka kærlega öllum þeim sem ég hef kynnst í gegnum skrifin hér á Moggablogginu, öllum þeim sem lesið hafa vefinn á þessum tveimur árum og eins þeim auðvitað sem hafa orðið bloggvinir mínir á þeim tíma. Kærar þakkir fyrir góð og notaleg samskipti.

Vonandi eigum við áfram samleið á nýjum vettvangi.

kveðjur að norðan
Stefán Friðrik

http://209.85.215.104/search?q=cache:WuchQQIfyWcJ:stebbifr.blog.is/blog/stebbifr/entry/612978/+Tv%C3%B6+%C3%A1r...+og+komi%C3%B0+a%C3%B0+lei%C3%B0arlokum+site:http://stebbifr.blog.is&hl=en&ct=clnk&cd=1&gl=us

Nú er komið í ljós að þetta var misskilningur hjá Stefáni. Það var ekki hann sem átti að verða nýji eyjubloggarinn heldur Gísli Marteinn Baldursson. Þetta er skiljanlegt, SFS og GMB eru áþekkar skammstafanir.

Án þess að vinna ekki neitt eftir Stefán Friðrik
http://stebbifr.blog.is/blog/stebbifr/entry/617020/?t=1218924341

Hvar býr nýjasti milljónamæringur landsins?
from Pælingar Stefáns Friðriks Stefánssonar - stebbifr.blog.is
Fróðlegt verður að vita hvar nýjasti milljónamæringurinn á landinu býr. Heppnina vantar ekki í hans líf núna, enda situr hann einn að þessum veglega peningapotti. Var reyndar viss um þegar þessar tölur voru valdar að enginn hefði unnið pottinn, enda komu tölurnar 12, 13 og 15 allar upp. Ég vona að sá sem vinnur þennan pott ávaxti sitt pund mjög vel.

Það er reyndar orðið sjaldgæft að ég spili í Lottóinu. Veit ekki hvað ég hafði spilað þar oft án þess að vinna ekki neitt. Hef stundum keypt lottómiða þegar að vinningur hefur verið margfaldur. Neita því svo ekki að eftir að lottóvinningarnir fóru að koma hingað til Akureyrar í vænum skammti á síðustu mánuðum hefur maður velt því fyrir sér hvort Akureyringar séu að verða heppnari en annað fólk.

Vonandi er þessi heppni spilari hér.

Ég var líka sannfærður um að enginn hefði unnið þegar ég sá þessar kuldalegu og stingandi tölur. Augljóslega eru engar líkur á að 12, 13 og 15 komi upp. Það er t.d. miklu sennilegra að 8, 23, og 29 komi upp.

Hnakkus er bestur.
Tek ofan minn hatt fyrir þér.
Jazz

Í dag er stór dagur í lífi stebbifr. Í dag er fyrsti dagurinn þegar hann endurbirtir gamalt blogg með jafn kraftmiklum hætti:

http://stebbifr.blog.is/blog/stebbifr/entry/555376/

30.5.2008 | 18:44
Þingmaður tekur flugið með flugdólgi
Undir niðri er ekki hægt annað en hlæja að þessum flugdólgi sem tók flugið með Karli V. Matthíassyni, alþingismanni. Er samt frekar ömurlegt að lenda í svona fólki sem kann fótum sínum ekki forráð með drykkju og áreitir farþega í flugvélum. Þetta er sem betur fer ekki daglegt brauð, en eflaust gerist það æði oft að fólk fær sér einum of mikið neðan í því í fluginu og sumir fá sér ágætis skammt fyrir flugið. Fólk er mjög misjafnt fullt og það er fátt ömurlegra en lenda í að sitja með fólki sem hefur fengið sér of mikið og veit ekki alveg hvað þá á að gera nema að eyðileggja flugferðina fyrir öðrum.

Var reyndar einu sinni í flugstöð á Bretlandi fyrir nokkrum árum og þar tók ég einmitt eftir einum manni sem lá greinilega mjög vel áfengismareneraður á bekkjarunu í bið eftir flugvél. Hann var þó ekki dauður eins og við segjum en það varð að benda honum nokkuð vel á að vélin væri að fara, þegar að kallið kom. Og hann staulaðist um borð, náði að redda því og fékk sér meira og svaf hinu værasta á leið til Íslands. Hann missti sig reyndar aðeins í vélinni og tók væn köst en bar sig að öðru leyti sig vel. En hann náði athygli allra um borð. Stjarna flugsins.

Varð loks rólegur og settlegur er Keflavík var í sjónmáli. Hef heyrt í mörgum sem hafa upplifað vissa dramatík í fluginu yfir Atlantshafi með þeim sem hafa gengið lengra. Frægust er sennilega sagan sem ég heyrði af einum í fluginu með tannlækninum sem tók vænt kast og allt varð vitlaust út af. Man mjög vel eftir viðtalinu við hann eftir á þar sem hann vildi skaðabætur frá flugfélaginu og alles. Reyndar ekki heyrt af málinu síðan, nema þá í fyndinni ferðasögu, sem viðstöddum fannst reyndar ekki fyndið meðan á henni stóð.

Held af lýsingum að dæma að þessi maður hafi ekki beint fengið blessunarorð frá þingmanninum og klerkinum Karli, en vonandi hefur Guðs blessun samt tekið við eftir að maðurinn var yfirbugaður og fékk loks að sofa úr sér gleðivímuna og lætin.


http://stebbifr.blog.is/blog/stebbifr/entry/618958/

19.8.2008 | 11:15
Sagan af hinum óþolandi flugdólgum
Undir niðri er ekki hægt annað en hlæja að þessum flugdólgum, en mikið skelfilega er nú leiðinlegt að lenda í svona fólki sem kann fótum sínum ekki forráð með drykkju og áreitir farþega í flugvélum. Þetta er sem betur fer ekki daglegt brauð, en eflaust gerist það æði oft að fólk fær sér einum of mikið neðan í því í fluginu og sumir fá sér ágætis skammt fyrir flugið. Fólk er mjög misjafnt fullt og það er fátt ömurlegra en lenda í að sitja með fólki sem hefur fengið sér of mikið og veit ekki alveg hvað þá á að gera nema að eyðileggja flugferðina fyrir öðrum.

Var reyndar einu sinni í flugstöð á Bretlandi fyrir nokkrum árum og þar tók ég einmitt eftir einum manni sem lá greinilega mjög vel áfengismareneraður á bekkjarunu í bið eftir flugvél. Hann var þó ekki dauður eins og við segjum en það varð að benda honum nokkuð vel á að vélin væri að fara, þegar að kallið kom. Og hann staulaðist um borð, náði að redda því og fékk sér meira og svaf hinu værasta á leið til Íslands. Hann missti sig reyndar aðeins í vélinni og tók væn köst en bar sig að öðru leyti sig vel. En hann náði athygli allra um borð. Stjarna flugsins.

Varð loks rólegur og settlegur er Keflavík var í sjónmáli. Hef heyrt í mörgum sem hafa upplifað vissa dramatík í fluginu yfir Atlantshafi með þeim sem hafa gengið lengra. Frægust er sennilega sagan sem ég heyrði af einum í fluginu með tannlækninum sem tók vænt kast og allt varð vitlaust út af. Man mjög vel eftir viðtalinu við hann eftir á þar sem hann vildi skaðabætur frá flugfélaginu og alles. Reyndar ekki heyrt af málinu síðan, nema þá í fyndinni ferðasögu, sem viðstöddum fannst reyndar ekki fyndið meðan á henni stóð.

Held af lýsingum að dæma að þessir menn eigi ekkert erindi um borð í flugvél. Þeir hafa verið best geymdir á fjarlægum stað að sofa úr sér gleðivímuna og lætin.

35þús kall! Eru það ekki einmitt lægstu örorkubæturnar?

Skrifa ummæli

Linkur á færslu

Búa til tengil