Hnakkus: september 2007

8.9.2007 

Fyrirmæli til aðdáenda minna

Ljósmyndaverslunin Beco á Langholtsvegi er okurbúlla og ykkur er hér með bannað að versla þar. Þangað fór ég áðan til að kaupa hreinsigræjur fyrir myndavélina mína og labbaði út átta þúsund krónum fátækari með nokkra hreinsipinna, litla flösku af hreinsilegi og lítinn fýsibelg úr gúmmíi. Af hverju lét hinn mikli bjóða sér slíka vanvirðu? Af hverju löðrungaði ég ekki afgreiðslumanninn fyrir ósvífnina og neyddi hann til að éta innkomu dagsins beint upp úr búðarkassanum? Af hverju tók ég ekki tvöfalt hringspark með heljarstökki og skrúfu beint upp í okrandi anusinn á öllum þarna inni???!

Þannig er mál með vexti að ég fékk að vita með mjög stuttum fyrirvara að ég sé á leið til Kína að sinna mikilvægum sérfræðistörfum og þurfti því nauðsynlega að hreinsa myndavélina mína og linsurnar svo það væru ekki einhver punghár á öllum myndum sem ég tek í alþýðulýðveldinu. Fyrirvarinn er stuttur og ég fann svona hreinsisett ekki í öðrum verslunum en var sagt að þetta fengist í Beco. Þangað fór ég og þaðan kom ég, misnotaður og reiður.

Ósvífni hundingjanna í Beco takmarkast ekki við að níðast á þjóðhetjum eins og mér heldur nær hún slíkum hæðum að þeir dirfast að kalla það tilboðsverð þegar þeir leggja nærri 500% á vöru. Ég fann sama hreinsisett á erlendri heimasíðu á cirka 1200 kall en á heimasíðu beco er það flokkað sem tilboðsvara þó verðið sé skyndilega komið upp í 5490 krónur. Lítinn fýsibelg úr plasti seldu þeir mér svo á 2500 krónur þó hann kosti ekki nema 500 kall á erlendum heimasíðum. Mér líður óneitanlega dálítið eins og Beco hafi átt mök við anusinn á mér en þið áhangendur góðir getið hjálpað mér að endurheimta fyrri reisn og að ná fram hefndum. Ef þið hjálpið mér öll að sniðganga þessa tussuverslun það sem eftir er, þá tapa þeir á endanum á því að hafa okrað á mér. Segið öllum sem þið þekkið að Hnakkus mæli svo fyrir að verslunin Beco sé bannsvæði. Ef einhver sem þið þekkið kaupir eitthvað í Beco, dragið hann út í port og skjótið hann. Dragið hann svo inn aftur og skjótið hann aftur bara til að sýna honum að þið séuð ekkert að grínast! Ég tek það fram að þessi regla er ekki afturvirk svo ég frábið mér að vera margskotinn af aðdáendum mínum fyrir innkaup dagsins.

Hámark kaldhæðninnar er svo uppgötvun sem ég gerði þegar ég opnaði hreinsisettið dýra og rak augun í lítinn hvítan miða sem á stóð...."Made in China". Djöfull er ég pirraður!

Image Hosting by PictureTrail.com
Fokkaðu þér Beco!