Hnakkus: ágúst 2007

4.8.2007 

Veðurfræði götunnar

Nýjustu fréttir af einelti á veðurstofunni eru hræðilegar. Veðurstofan er greinilega hart pleis. Oft hafa veðurfræðingar gefið mér góð ráð varðandi veður svo ég ætla að launa þeim greiðann og bjarga þeim frá einelti.

Fyrsta daginn sem nýr veðurfræðingur hefur störf á veðurstofunni þá þarf hann að labba beint upp að stærsta og massaðasta veðurfræðingnum og lemja hann í klessu eða stinga hann nokkrun sinnum með ydduðum hitamæli. Það er eina leiðin til að fá virðingu og frið á svona hörðum stað. Ef þetta klikkar þá er hætta á að viðkomandi veðurfræðingur verji restinni af dvöl sinni á veðurstofunni sem tík annars veðurfræðings.