Hnakkus: júlí 2007

25.7.2007 

Hver er ég?

Image Hosting by PictureTrail.com

Ég er Albert Jensen trésmíðameistari.

21.7.2007 

Ofbeldisjöfnun

Image Hosting by PictureTrail.com

Núorðið kannast flestir við hugtakið "kolefnisjöfnun". Fæstir hafa nennt að kynna sér hvað þetta hugtak þýðir og gera sjálfkrafa ráð fyrir því að hér sé á ferðinni einhverskonar tískuhippahugtak fyrir miðstéttafólk með samviskubit. Það er vissulega skarplega ályktað en svo ég útskýri í stuttu máli hvað þetta gengur út á nákvæmlega, þá er þetta sjóður sem þú borgar í ef þig langar að gera yfirbót fyrir mengunina sem jeppinn þinn veldur. Þá ferðu á síðuna Kolviður.is, lætur fé af hendi rakna í samræmi við umhverfissyndir þínar og greiðir þannig laun einhvers framkvæmdastjóra sem eflaust eyðir þeim í sinn eigin jeppa. Þegar laun framkvæmdastjórans hafa verið greidd fer eitthvað af peningunum í að gróðursetja tré til að bjarga heiminum því eins og allir vita er allt í lagi að menga svo lengi sem samviskan er friðuð með því að borga öðrum fyrir að planta trjám fyrir sig. Eða eitthvað.

Eins bjánalegt og þetta allt hljómar varð þetta engu að síður kveikjan að snjallri hugmynd. Þannig er mál með vexti að við búum í heimi fullum af óþolandi fólki sem segir og gerir allskyns vitleysu. Hegðun þessa fólks er í öllum tilvikum afleiðing nokkurs sem ég kýs að kalla vanbeldi. Þetta stefni ég á að laga með ofbeldisjöfnun.

Svo ég renni örstutt í gegnum það hvað vanbeldi er, fyrir þá sem hafa ekki lesið visku mína frá upphafi, þá er vanbeldi skortur á hæfilegu magni beldis og hefur oft hræðilegar afleiðingar í för með sér. Aðallega fávitahátt allskyns. Beldi er skilgreint sem það magn líkamsmeiðinga sem hver og einn þarf á að halda til að verða ekki fífl. Hæfilegt magn er áætlað í samræmi við það hversu mikið fífl blundar í hverjum og einum. Ef einstaklingur þjáist af vanbeldi þarf að beita ofbeldi til að jafna um hann. Sé ofbeldið í réttu hlutfalli við fyrra magn vanbeldis verður ofbeldið að beldi. Gæta skal þess vandælega að beita ekki of miklu ofbeldi því þá verður einstaklingurinn fórnarlamb ofbeldis og það er ljótt eins og allir vita. Hafa ber þó í huga, nú sem endranær, að betra er 'of' en 'van'.

Image Hosting by PictureTrail.com

Planið er að stofna sjóð til að laga ójafnvægið milli vanbeldis og ofbeldis. Hugmyndin er að láta sjóðinn heita "Klofvið" þar sem pungspörk verða ein helsta söluvara sjóðsins. Sjóðurinn mun virka þannig að menn munu fara á heimasíðu þar sem þeir geta reiknað út hversu miklir fávitar þeir eru með aðstoð reiknivélarinnar okkar. Þeir verða síðan rukkaðir í takt við niðurstöðuna og síðan lamdir passlega í harðfisk eftir þörfum. Ég sé fram á að þetta muni stórbæta veröldina á einhvern óljósan máta auk þess að borga undir mig stóran og mengandi jeppa sem ég ætla svo að keyra í hringi daginn út og inn til þess eins að græta fábjánana í Saving Iceland.

Image Hosting by PictureTrail.com

Hér að neðan má sjá spurningalista sem ætlað er að reikna út vanbeldisstuðul hvers og eins á óvísindalegan máta. Því fleiri stig sem þú færð, því meiri barsmíðar þarf til að ofbeldisjafna þig:

Image Hosting by PictureTrail.com

Það er ekki eftir neinu að bíða! Láttu jafna um þig strax í dag!

16.7.2007 

Loksins hefur líf mitt öðlast tilgang!

Tilgangur lífs míns er að lifa Stefán Friðrik Stefánssson svo hann skrifi ekki um mig minningagrein korteri eftir ég drepst.

10.7.2007 

Af þjófum og ræningjum

Ég lenti nýverið í því að þjófar brutu sér leið inn um glugga hjá mér meðan ég var fjarverandi og svívirtu heimili mitt með nærveru sinni. Auk þess stálu þeir frá mér þremur líters flöskum af sterku áfengi sem ég hefði ekkert haft á móti að fá að svolgra í mig við tækifæri, en skildu eftir öll alvöru verðmæti. Ef þú ert að lesa þetta þjófur þá misstirðu af 30 þúsund króna seðlabúnti sem lá á frekar áberandi stað rétt hjá vínflöskunum sem þú tókst. Nei þetta er ekki lygi til að láta þér líða enn verr með tilgangslausa tilveru þína. Þú ert virkilega svona heimsk/ur.

En víkjum aftur að sögunni. Eftir að lögreglan hafði verið hérna og náð fyrirtaks fingraförum og skóförum (já, þú ert verulega heimsk/ur) hófst ég handa við að tryggja að þetta gerðist ekki aftur. Ég setti upp nýjar og betri læsingar á gluggana hjá mér og lét setja upp öryggiskerfi auk þess að leggja drög að djöfullegum gildrum fyrir þjófa framtíðarinnar.


Skemmtu þér á Hrauninu hálfviti. Bið að heilsa Bóbó.

Þegar ég var búinn að tryggja heimilið og restina af vínbirgðunum fyrir frekari árásum (já þú skildir allt besta stöffið eftir smekklausi aumingi) ákvað ég að hafa samband við tryggingafélagið sem ég hef greitt hluta af laununum mínum til síðustu árin. Ég fyllti heiðarlega út það tap sem ég hafði orðið fyrir, þrjár vínflöskur og ónýta gluggalæsingu samtals að andvirði 14200 krónur.

Hér má sjá svarið sem ég fékk tveimur tímum seinna frá honum Jóni sem er tryggingakall hjá Verði:

"Sæll.

Við höfum móttekið tjónatilkynningu frá þér.
Þessu tjóni er hafnað á þeirri forsendu að tjónsbætur ná ekki eigináhættu.

Vakin er shygli vátrygða á því að telji hann niðurstöðu þessa ranga þá er mögulegt að óska álits tjónanefndar vátryggingafélaganna um Kröfu um vátryggingarbætur.Tjónanefnd vátryggingafélaga er starfrækt á vegum samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).

Vinsamlegast hafið samband við Vörð tryggingar hf. Til að fá alit nefndarinnar eða frekari upplýsingar um starfsemi hennar."


Image Hosting by PictureTrail.com

Þver neitun, án allrar kurteisi, í tveimur línum af vondri íslensku og nokkrar línur í viðbót af enn verri copy peistaðri íslensku með hvorki meira né minna en fimm villum í. Þetta var allt og sumt eftir að hafa borgað þessum hundingjum með svita mínum og tárum í fleiri ár. Ég gerði það sem mig hefur alltaf langað að gera en aldrei fengið tækifæri til sökum hamlandi skorts á samkynhneigð. Ég skrifaði "Kæri Jón bréf" og sagði Jóni upp. Þegar því var aflokið stóð eftir þessi líka fíni rantur sem ég varð að deila með ykkur. Það er ekki hægt að sóa góðum ranti á mann eins og hann Jón.

"Sæll Jón og takk fyrir að vekja "shygli" mína á þessu áhugaverða og skemmtilega atriði úr smáa letrinu ykkar.

Ég var reyndar að muna núna að ég gleymdi að minnast á allar fartölvurnar sem þeir tóku og gullklumpinn stóra sem ég geymdi undir rúmi. Hvað þarf Lalli Johns annars að ræna miklu af mér til að það borgi sig mögulega að vera í viðskiptum við ykkur? Nefndu tölu svo ég muni hvað fartölvurnar voru margar og klumpurinn þungur.

En svona án gríns þá er þetta bara hlægilegt svar hjá ykkur og þá er ég ekki bara að tala um allar mál- og stafsetningarvillurnar. Ég veit vel að ég skrifaði undir einhvern langan og leiðinlegan samning með einhverju smáu letri þar sem þetta stendur allt svart á hvítu en þið vitið vel að enginn les það og að jafnvel þó einhver myndi þræla sér í gegnum þetta torf, þá myndi það engu skipta enda eru öll tryggingafélögin með nákvæmlega eins lélegar tryggingar.

Hvað gerist svo þegar eitthvað þjófahyski brýst inn hjá mér og ég, verandi temmilega eðlilega innréttaður einstaklingur, sendi inn alltof heiðarlega kröfu vegna tiltölulega ódýrs tjóns sem ég vil samt sem áður fá bætt eftir að hafa borgað ykkur samviskusamlega ár eftir ár? Þið sendið mér tvær línur úr smáa letrinu, segið að kröfunni sé hafnað útaf "eigináhættu" og ætlist örugglega til að ég haldi áfram að moka í ykkur seðlum svo þið getið haldið áfram að bombardera mig með auglýsingum um hvað þið séuð æðislega örlátir og ómissandi??

RANGT!

Það sem ég geri náttúrulega í framhaldinu er að segja þessarri svokölluðu tryggingu upp og legg svo í framhaldinu samsvarandi upphæð inn á banka í hverjum mánuði og á bara sjálfur fyrir tjóninu ef einhver af kollegum ykkar í ræningjabransanum ákveður að ryðjast inn til mín í framtíðinni, óður af þorsta og stelsýki. Það eru líklega talsvert meiri líkur á að vextirnir dugi fyrir tjóninu en að þið komið mér til bjargar. Ef Lalli sest svo öllum að óvörum í helgan stein og kemur aldrei til að sækja restina af draslinu mínu þá á ég fullt af pening inn á banka og get keypt mér brennvín fyrir hann allan. Kannski fæ ég þá líka að drekka það sjálfur til tilbreytingar!

Þú ollir mér vonbrigðum í dag Jón. Ég myndi sækja um Jónsbætur ef ég væri ekki handviss um að smáa letrið coveri það eins og annað.

Kveðja,
Þinn fyrrum kúnni