Peningar
Það nýjasta í bloggbransanum er að bankar borgi vel sóttum bloggurum fyrir að ræpa á internetið í skiptum fyrir að fá að setja auglýsingabannera á bloggið þeirra. Hingað til virðist þessi tíska aðallega vera bundin við moggabloggið eins og allt sem er rangt í þessum heimi og ég bíð spenntur eftir því að Stebbifr fari að fá greitt fyrir að umorða morgunblaðsvefinn. Af einskærri góðmennsku vil ég bara benda tilvonandi styrktaraðila Stefáns á að semja ekki um borgun per orð. Það væru alvarleg mistök. Jafnvel fyrir banka.
Fyrirtæki hafa hingað til ekki haft sýnilegan áhuga á að fjármagna mín skrif sem er kannski ekki skrýtið miðað við það hvað mér finnst gaman að móðga fólk sem ég hef aldrei hitt. Áhugaleysi peningaaflanna á mér helst reyndar blessunarlega í hendur við áhugaleysi mitt á peningum annarra, og það hversu lúðalegt mér fyndist að láta einhvern banka borga mér fyrir að stunda mín áhugamál. Ef ég væri í boði banka ætti ég líka ekki jafn hægt um vik með að gera grín að bankastjórum Kaupþings. Þessum sem líta út eins og Gög & Gokke.

Þessar pælingar kveiktu engu að síður hugmynd í mínu fagra en banvæna höfði. Ætli til sé það fyrirtæki á Íslandi sem væri til í að borga 50 þúsund krónur á mánuði til SOS barnaþorpanna í skiptum fyrir penan auglýsingaborða á síðunni minni? Díllinn yrði þannig að ég myndi vilja fá kvittunina senda í hverjum mánuði og ég myndi áskilja mér þann rétt að sýna hana öllum þeim sem bæðu um það. Einnig yrði skýrt tekið fram að viðkomandi fyrirtæki hefði engin áhrif á það hvað ég skrifa eða hvernig ég skrifa það, og að þeim yrði vinsamlegast bent á að fokka sér ef einhverjir slíkir tilburðir yrðu hafðir í frammi.
Mér finnst þetta ekki slæm hugmynd. Ef viðkomandi fyrirtæki lenti í böggi fyrir að styrkja sóðakjaft á netinu þá væri allavega hægt að benda á að peningurinn færi óskiptur til góðgerðamála en ekki beint í að fjármagna neteinelti á Stebbafr og Guðmund í Byrginu. Þetta væri líka fínt fyrir mig og bloggletina því ef ég hætti að blogga þá deyr fullt af litlum börnum í Afríku.
Netfangið er hnakkus@gmail.com ef einhver hefur áhuga.