Hnakkus: apríl 2007

29.4.2007 

Sieg hola

Image Hosting by PictureTrail.com

Grunnskólakennarinn Andrea Marta Vigfúsdóttir ætlar á næstunni að halda til Spánar og að eigin sögn "hafa það gott og lifa á örorkubótum í sex mánuði".

Þetta aldeilis frábæra plan væri varla í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá skemmtilegu staðreynd að fyrir nokkrum árum var Andrea innsti koppur í félagi Íslenskra þjóðernissinna ásamt bræðrum sínum tveimur sem gegndu hlutverki formanns og varaformanns. Á vefsíðu félagsins, sem nú hefur verið tekin niður, mátti finna grein eftir Andreu sem hét "Að vera Íslendingur". Greinin tók á málefnum innflytjenda á svo beinskeyttan hátt, að meira að segja Magnús Þór hafsteinsson hefði snúið sér við í gröfinni við lesturinn....og hann er ekki einu sinni dauður!

Þó greinina sjálfa sé hvergi að finna á netinu lengur er hún enn í fersku minni og finna má búta úr henni á bloggsíðum sem fjölluðu um málið á sínum tíma. Hér eru nokkrir góðir bútar:

"Þó höfum við hingað til verið nokkuð viss um að hér séu fallegustu konurnar, sterkustu mennirnir, fallegasta náttúran, besta vatnið, besta skemmtanalífið"

"Á Íslandi búa jú bara hraustir víkingar, sem geta hróðugir rakið ættir sínar til eigi ómerkari manna en Egils skalla Grímssonar!"

"Það að vera stoltur af því að vera Íslendingur og það hvítur, þykir ekki lengur gott, þaðer ljótt.
Að vísu þykir ekkert óeðlilegt við það að fólk af afrískum uppruna þrammi um jörðina í beltislausum buxum og hrópi hvað það sé stolt af því að vera frá Afríku og hvað hvíti maðurinn sé vondur við það"

"Þessi undirlægju- og væskilsháttur sem íslensk stjórnvöld sýna í hvívetna þegar kemur að þessum málum er með öllu óþolandi. Af hverju megum við bara ekki vera í friði hér á okkar litlu, köldu eyju þar sem engir aðrir en hvítir menn hefðu getað komist eins langt og raun ber vitni?"

"Ef við erum svona vond við útlendinga, afhverju geta þeir ekki bara farið eitthvað annað? Því miður hafa ekki komið fram nein skýr eða gáfuleg svör við þessum spurningum og er það því enn skoðun mín að fólk sem kemur hingað frá fjarlægum löndum til þess eins að lifa á félagslega kerfinu, stunda vændiog eiturlyfjasölu, gerir enga tilraun til að læra tungumálið eða samlagast okkar samfélagi á einn eða annan hátt, ætti bara að drífa sig til síns heima, og það hið snarasta!!"


Síðasti búturinn er í dálitlu uppáhaldi hjá mér. Ég trúi því ekki öðru en að verðandi innflytjandinn Andrea ætli að gera sitt ítrasta til að forðast þessar gryfjur sem innflytjendur falla gjarnan í að hennar mati. Að sleppa vændinu og eiturlyfjasölunni ætti að reynast henni hægur leikur þar sem tryggingastofnun sendir henni hluta af skattpeningunum mínum mánaðarlega til að draga fram lífið. Þar með lifir hún að vísu á félagslega kerfinu, en ekki á félagslega kerfinu í landinu sem hún býr í þannig að hún kemst lipurlega framhjá þeirri gryfju. Þá er aðeins eftir að huga að tungumálakunnáttu Andreu og aðlögun hennar og þar er ég tilbúinn að koma til bjargar. Ég gerði mér lítið fyrir og snaraði einum af bestu frösunum úr greininni hennar yfir á spænsku svo hún geti sagt öðrum innflytjendum til syndanna á lýtalausri spænsku.

"Þetta land var byggt upp fyrir okkur, ekki fyrir fólk frá öðrum löndum!"

Sem á spænsku myndi vera:

"Este pais fue hecho para nosotros, no para la gente de otro paises!"

Hafðu það annars gott í útlandinu Andrea, njóttu launanna minna vel, og láttu þessa skítugu útlendinga heyra það!

11.4.2007 

Stebbi stóð á ströndu

Stefán Friðrik Stefánsson er ókrýndur konungur moggabloggins og þess helsti sendiherra. Á blogginu sínu skrifar eilífðarungliðinn að norðan allt að sjö pistla á degi hverjum, án þess þó í rauninni að segja nokkurn skapaðan hlut. Hann er Íslandsmeistari í andlegu stórsvigi karla.

Stefán er frægur fyrir að klifa á því í annarri hverri setningu að hann hafi skoðanir sem hann sé óhræddur við að tjá. Téðar skoðanir eru engu að síður afar sjaldséðir gestir í pistlunum hans, sem eru mestmegnis endursagðar fréttir úr mainstream fjölmiðlum. Stílfræðilega myndi Stebbi líklega flokkast sem jórturdýr. Hann hefur þann háttinn á að hann tekur frétt sem allir eru búnir að lesa og umorðar í sífellu daufar hugleiðingar sínar um viðfangsefnið. Þannig tvítreður hann, þrítreður og margtreður strýið uns eftir stendur einhvers konar mantra sem lesendur geta kyrjað með sjálfum sér til að öðlast hugarró.

Ég læt hér fylgja uppskrift að Stebba pistli:

1 Stk. frétt af mbl.is.
1 Stk. of mikill frítími.
1 Stk. samheitaorðabók.

Umorðið efni fréttarinnar. Endurtakið eftir þörfum.



Tveir af nýjustu pistlunum hans eru æði og ég verð að minnast á þá sérstaklega(Þessi og þessi). Í þeim fyrri furðar Stebbi sig á athyglinni sem fjölmiðlar veita lífi stjarnanna en í þeim næsta beint á eftir japlar hann á faðernismálum Önnu Nicole Smith af miklum móð auk þess sem hann fellir dóm um ævi hennar, en samkvæmt Stebba var hún ein samfelld sorgarsaga. Þetta fannst mér skondinn dómur komandi frá Stebba þar sem ég er nokkuð viss um að Anna Nicole hefur oft skemmt sér betur á einu kvöldi en Stebbi á allri sinni ævi. Kannski er hann bara súr af því faðernisprufan féll honum ekki í vil.

8.4.2007 

Helgidagar = anus

Image Hosting by PictureTrail.com


Helgidagar sökka. Ég veit að Egill Helgason og Guðmundur Steingríms eru ósammála mér en það verður að hafa það. Ég verð víst að reyna að lifa með því að einstaka athyglissjúk meðalmenni sjái hlutina ekki jafn skýrum augum og ég og finnist allt í lagi að þvinga trúarhátíðum upp á almenning með lögum bara af því þeim sjálfum finnst svo næs að hanga heima á nærbuxunum og éta páskaegg. Æskuminningar brátt miðaldra dálkahöfunda um kleinur hjá ömmu, páskaegg og lambalæri, eru auðvitað bestu rökin fyrir lagabanni á skemmtanahald almennings og fyrir hávaða á morgnana.

Í morgun á slaginu átta vaknaði ég einmitt með andfælum við dynjandi málmglamur. Ég hélt fyrst að ég hefði rekið annan upphandleggsvöðvann utan í, en fattaði fljótt að einhver hefði stillt risavöxnu vekjaraklukkuna á Skólavörðuholtinu á hæsta styrk. Í tilefni þess að fyrir ca. 2000 árum reis hræ eitt á lappir og flaug til himna, þótti kroppinbökunum í Hallgrímskirkju augljóslega við hæfi að sleppa öllu hálfkáki. Í stað þess að spila leiðinlega lagstúfa á hinar ýmsu bjöllur eins og á venjulegum Sunnudegi var stærsta og hávaðasamasta bjallan barin stanslaust í korter án minnstu tilraunar til að dulbúa glamrið í tónlistarbúningi. Í þetta skiptið voru skilaboðin skýr. Allir í hverfinu áttu að drullast á fætur og minnast hálsskrauts kristinna manna hvers aftöku og lifnipilluáti er fagnað á hverju einasta helvítis ári.

Hvað er þetta annars með kristið fólk? Getur það ekki haldið upp á sína helgidaga án þess að troða þeim upp á aðra með lagasetningum og óhljóðum? Getur þetta ekki notast við póstlista eða símhringikeðju eða eitthvað? Þarf það alltaf að vekja mig ef það stendur eitthvað til hjá þeim? Klagar það eitthvað upp á þetta lið þó að annað fólk sinni sínum eigin áhugamálum í friði í stað þess að rífa sig á lappir í dögun til að velkjast í volæði þeim til samlætis yfir löngu dauðum kalli?

Sem minnir mig á annað sem ég hef viljað koma að. Af hverju var sá góði siður að kasta kristnu fólki fyrir ljónin lagður af? Ekki misskilja mig. Í þessarri vangaveltu er engin heift fólgin. Það var ekki eins og þeir kristnu hafi haft eitthvað á móti því að enda jarðvistina sem ljónasnarl. Kristnir trúa því jú að þeir fari beint til himna og dvelji þar til eilífðar í sæluvímu eftir dauðann. Að því gefnu að þeir séu ekki bara að þykjast trúa, þá getur þeim ekki verið illa við að fá smá aðstoð við að klára þetta langdregna formsatriði sem jarðlífið er samkvæmt þeirra eigin stjórnarskrárbundnu kenningum. Þetta var svo ágætt fyrirkomulag fyrir alla þarna í gamla daga! Hinir kristnu fengu aðstoð við að komast til Jesú síns, ljónin fengu geðveika máltíð (pun intended) og allir aðrir fengu krassandi sjóv. Rómverjarnir leyfðu meira að segja fólki að hætta við að gerast ljónafóður ef andfýlan úr organdi ljóni hjálpaði þeim að átta sig á því að það væri ekkert svo trúað eftir allt saman. Hvar nákvæmlega eru slæmu hliðarnar??!

Ef einhver kristinn er að lesa þetta þá mætti hann/hún endilega útskýra fyrir mér hvað er að því að vera grýtt í ljónskjaft svo lengi sem við gefum okkur augnablik að biblían sé ekki bara bull sem allir þykjast trúa til að falla í kramið? Mig langar að vita það.

Ef ég hinsvegar fæ góðar viðtökur við þessarri hugmynd þá er ég alvarlega að spá í að opna sædýrasafnið aftur í fyrri mynd og halda fóðursýningar á hverjum degi uns ég hef aðstoðað alla sannkristna Íslendinga á áfangastað og frelsað hina undan oki ranghugmynda sinna. Ég lofa samt að nota kurteislegri aðfarir við að tilkynna sýningartíma heldur en þjóðkirkjan gerir og enginn verður skikkaður til að mæta. Ólíkt sumum virði ég áhugaleysi annars fólks á mínum áhugamálum.

6.4.2007 

Föstudagur til fjár

Image Hosting by PictureTrail.com


Ég var að uppgötva að ég og Júdas eigum margt sameiginlegt. Báðir fáum við mjög vel greitt á föstudaginn langa á meðan sumir hanga aðgerðalausir.