Hnakkus: september 2006

27.9.2006 

Ómar virkjar landann


Gangan gegn virkjuninni í gær var merkileg upplifun. Loksins tóku Íslendingar sig saman um eitthvað annað en að horfa á Hemma Gunn. Ég vona náttúrulega að þessir fávitar sem stjórna landinu taki þessu alvarlega þó ekki væri nema bara til að bjarga eigin skinni. Ég er samt ekki vongóður...ennþá. Ef þessi fílingur sem var þarna í gær magnast og breiðist út þá er möguleiki á að þetta lið eigi að lokum ekki aðra valkosti en að hætta við. Vonandi tók fólk stemmninguna með sér heim þegar þessu lauk og gleymir því ekki hvernig það var að upplifa samstöðumátt fjöldans í 2 klukkustundir. Til þess gefast ekki mörg tækifæri á Íslandi því miður.

Ég er persónulega mjög æstur í að það verði ekki hleypt dropa í þetta lón og að þessi virkjun standi ónotuð að eilífu sem minnisvarði um verstu ríkisstjórn sem Ísland hefur þurft að þola. Mér er skítsama hvað það kostar. Við eigum nóg af pening.

Ég hefði ekki trúað að svona margir myndu mæta enda Íslendingar einir verstu mótmælendur í heimi. Íslendingar eru líka aldrei reiðir þegar þeir eru að mótmæla þá sjaldan að þeir verða nógu fúlir til að fara út og mótmæla einhverju. Ef einhver verður reiður og gólar eitthvað upphátt á mótmælum roðna allir og fara heim að horfa á Hemma Gunn. Íslensk mótmæli eru eins og ættarmót. Allir í góðu skapi að spjalla og skima eftir einhverjum sem þeir þekkja til að spjalla meira. Franskir fiskimenn voru greinilega ekki nógu duglegir að sprengja í Íslenskar ungmeyjar hér fyrr á öldum því þá væri vafalaust meira fútt í þessu og kannski yrði kveikt í einhverjum af þessum Range Rover jeppum sem liggja eins og hráviði meðfram öllum gangstéttum í Reykjavík. Löggan hérna hefði líka gott af að láta lemja sig aðeins við og við. Kannski myndi hún þá læra að telja.

Eins og venjulega taldi lögreglan mun færri en voru þarna. Mótmælahaldarar eiga það vissulega til að ýkja tölur um aðsókn dálítið en lögreglan hefur það fyrir sið að vantelja hrikalega svo oft munar meiru en helming. Ég man t.d. eftir einum íraksmótmælum fyrir utan stjórnarráðið þar sem lögreglan taldi 100 manns. Þegar vinur minn taldi hausana á mynd sem hann tók af mótmælunum taldi hann 250 hausa og þó vantaði hluta hópsins á myndina. Kannski síamstvíburar séu stór hluti mótmælenda á íslandi? Eða kannski þiggur lögreglan laun sín frá sama ríkisvaldi og skrifaði okkur fyrir Íraksstríðinu og vill nú drekkja hálendinu til að breyta Íslandi í álbræðslu? Spurning.

Ómar Ragnarsson á mikinn heiður skilinn fyrir góðan málflutning og gríðarlega seiglu í þessu máli. Hann á líka skilið hrós fyrir að koma þúsundum óframfærinna Íslendinga klappandi út á göturnar til að mótmæla yfirgangi stjórnvalda. Það eru ekki margir menn á Íslandi sem eiga nógu mikið kredit hjá þjóðinni til að leiða hana upp úr sófanum.

Næst mætti samt sleppa prestinum. Það er hægt að finna fullt af fólki sem getur sagt sögur um gömul hús án þess að fara líka að röfla um heilaga sköpun guðs og önnur langsótt ævintýri í miðjum mótmælum. Prestar sem vinna fyrir alltof há laun hjá íhaldssamasta batteríi þjóðarinnar við að viðhalda miðaldatrú, eiga ekki að þykjast vera svalir róttæklingar. Það er asnalegt. Steininn tók þó úr þegar presturinn fór að röfla um að enginn gæti átt land og að eignaréttur gæti ekki náð yfir þetta heilaga sköpunarverk guðs. Ég ætla að muna það næst þegar mig langar í laxveiði á einhverri kirkjujörðinni. Ég verð samt að játa að mér var skemmt þegar kirkjuklukkurnar í dómkirkjunni gripu freklega frammí fyrir prestinum í miðri ræðu. Skáldlegt réttlæti er þetta víst kallað.

26.9.2006 

Óverðskulduð einstaklingshyggja


Mogginn birti kostulega frétt í gær sem var þýdd úr Jyllandsposten. Fyrir þá sem eru of latir til að klikka á linka þá copy peista ég fréttina í heilu lagi:

"Danskir launamenn afþakka í æ ríkari mæli stöðuhækkanir sem þeim eru boðnar og á það bæði við um þá sem boðnar eru stöðuhækkanir á eigin vinnustað og þá sem boðið er í utan úr bæ. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

„Það er erfiðara en nokkru sinni fyrr að finna og halda í starfsfólk, sem ekki hefur aðeins grundvallarhæfni til starfsins heldur hefur einnig möguleika á að vinna sig upp innan þess og bindast því tilfinningaböndum. Starfsfólk tekur í æ ríkara mæli mið af eigin kröfum og væntingum,” Henrik Holt Larsen, prófessor við viðskiptaháskólann Copenhagen Business School.

„Það er sjálfsdýrkunin (narcissism) sem er öllu ráðandi. Slíkir einstaklingar einkennast af því að tryggð þeirra er ekki bundin fyrirtækinu þannig að viðkomandi skiptir oft um vinnu og er á sífelldum þvælingi. Þetta skapar ekki einungis rótleysi innan stofnunarinnar heldur gerir einnig alla þróun erfiða.”

Þá segir hann vitneskjuna um hinn sjálfsdýrkandi starfsmann vera takmarkaða en að ýmislegt bendi þó til þess að hann leggi mikið upp úr skemmtanagildi vinnu sinnar á sama tíma og hann forðist að axla ábyrgð."


Maður getur ekki annað en velt því fyrir sér hvað vaki fyrir mogganum með svona fréttaflutningi. Áður en ég kem að umfjöllunarefni fréttarinnar þá er gaman að benda á að mogganum finnst ekki ástæða til að geta þess hverjum þessar fullyrðingar um launamenn eru eignaðar. Vissulega er vitnað í einhvern prófessor í dönskum háskóla sem heldur hluta af þessum fullyrðingum fram en er það öll fréttin? Alhæfingar og hleypidómar einhvers dansks kennara um launafólk? Eða er þetta byggt á niðurstöðum einhverra rannsókna? Mogganum finnst það augljóslega ekki koma málinu við enda er áreiðanleiki fullyrðinganna ekki það sem skiptir máli heldur frekar að það komist skýrt til skila að launafólk sé heimtufrekt og sjálfselskt hyski sem hugsar frekar um sjálft sig en hendina sem fæðir það.

Segjum sem svo að bitrar fullyrðingar moggans eigi við rök að styðjast. Að hugsa sér! Fólk sem hugsar meira um sína eigin hagsmuni en hagsmuni atvinnuveitandans? Hvílíkir....einstaklingshyggjumenn! Ojbara!. Ekki furða að mogginn og danski kennarinn hneysklist yfir svona andkommúnísku pakki. Hvað varð um gamla samyrkjustemmarann sem mogginn var svo duglegur að boða? Síðan fylgir fréttinni mynd af fólki á sólarströnd og undir henni stendur "Danskir ferðamenn á sólarströnd". Eins og danskir ferðamenn á sólarströnd komi málinu eitthvað við?! ZzZzzzzZzz....fávitar.

Mogganum finnst greinilega að forstjórarnir og verðbréfabraskararnir eigi að geta stundað alvöru einstaklingshyggju og einkaframtak án þess að óbreytt launafólk skemmi partíið með því að gera sér grillur um að það sjálft skipti máli.

Þess má geta að ég er að blogga í vinnunni og sýni þar með hagsmunum vinnuveitanda míns hreina fyrirlitningu. Ég ætla að fara á eftir og biðja um launalækkun og spark í punginn. Svo ætla ég að hætta þessarri sjálfsdýrkun alltaf hreint.

19.9.2006 

Unglingavandamál


Ég var að skoða trackerinn minn til að sjá hvaðan ég er að fá heimsóknir á síðuna og sá að í dag hefur hrannast inn fólk af google í leit að einhverju um slagsmál fyrir aftan Háskólabíó sem nú eru orðin fræg. Ég var ekki með neitt um þessi slaxmál en ég vil ekki bregðast almúganum þannig hér hafiði allt sem ég hef að segja um þetta mál...

Síðan unglingar voru fundnir upp um miðja seinustu öld hafa þeir helst þjónað því hlutverki að gera foreldra sína gráhærða og gefa siðapostulum og smáborgurum eitthvað til að tala um á innsoginu. Í kastljósinu í kvöld voru sýnd slagsmál sem fram fóru fyrir aftan Háskólabíó milli tveggja táningspilta. Þau voru tekin upp og sett á netið og hafa valdið slíkri öldu af innsogum að súrefnisbirgðir jarðarbúa eru nánast á þrotum. Umræðan í kringum þetta er skondin. Margir virðast halda að unglingaslaxmál hafi verið fundin upp um leið og stafrænar vídeókamerur og háhraðatengingar og að þetta séu eitthvað sérstök slaxmál af því einhver var svo vitlaus að pósta þeim á netið. Það er auðvitað fjarri lagi. Unglingar hafa lengi haft þann sið að reyna að berja hvorn annan þrátt fyrir renglulega líkamsbyggingu. Þar að auki voru þetta mjög óspennandi og léleg slaxmál sem verðskulda ekki þjóðfélagsumræðu.

Það er vissulega alvarlegt unglingavandamál í gangi en ekki allir virðast átta sig á eðli vandamálsins. Vandamálið er að þessir gríslingar kunna ekkert að slást! Ég fékk næstum stjarfklofa af leiðindum þegar ég horfði á þessa rindla reyna af veikum mætti að sveifla handleggjunum í áttina að hvorum öðrum og ég hló eins og skepna þegar þeir fóru að kútveltast upp úr götunni eins og tveir flogaveikissjúklingar á meðan jóðlandi og bólugrafin unglingahjörð hvatti þá til að "Fokkin buffa" hvorn annan. Herdís Stoorgard þarf ekki að hafa áhyggjur af því að blessuð börnin slasi sig ef þetta er allt og sumt.

Kannski er ég orðinn skemmdur og dofinn tilfinningalega af því að horfa á of mikið af slaxmálakeppnum en eina vandamálið sem ég sá var að þessir litlu englar eru álíka góðir að slást og ég er að prjóna peysur. Hafandi smá sjálfsvirðingu myndi ég ekki mæla mér mót við nokkurn mann fyrir aftan Háskólabíó til að heyja prjónakeppni og þessir drengir ættu að láta líða langan tíma þar til þeir slást fyrir framan myndavélar aftur. Menn af þeirra kaliberi eiga að slást fyrir aftan myndavélar....eða bara við sængina sína. Það er fræðilegur möguleiki á að þeir næðu að "fokkin buffa" hana en bara ef koddarnir skipta sér ekki af.

Kaldlyndi mínu eru eflaust engin takmörk sett en mér er einhvern veginn alveg sama þó "Runni" (Wtf??!) og "Þorri" klóri og bíti hvorn annan fyrir aftan Háskólabíó. Mér er líka einhvern veginn alveg sama þó einhverjum misfullum gelgjum finnist skemmtilegt að horfa á atlotin. Ég er ekki að mæla með þessu og mér finnst þetta ekki gáfulegt athæfi, en þetta er ekkert nýtt og ekkert sem smáborgarar landsins ættu að vera að missa svefn út af. Þetta er hneyksli dagsins. Á morgun hneykslast fólk yfir einhverju öðru á meðan Þorri og Runni (Wtf??!) njóta útivistarbannsins sem þeir eru eflaust í þessa stundina.

 

Hér er komin lítil fluga


Davíð Þór er farinn að linka á mig og meira að segja kommenta líka. Það liggur við að ég roðni og skríki eins og skólastelpa enda er það ekki á hverjum degi sem hetjur úr æsku veita manni athygli. Ég ólst upp við radíusflugur Davíðs og Steins Ármanns áður en Steinn varð voða stór kall og meikaði það í KFC auglýsingum. Grímur vinur minn kóperaði flugurnar ólöglega úr útvarpinu (ég er með adressuna hans ef þú vilt buffa hann Davíð) og svo hlustuðum við á þetta aftur og aftur og grétum af hlátri yfir Jóa teik og fleiri góðkunningjum. Upphafsstefið úr radíusflugunum sem unnið var úr "Jailhouse rock" minnir mig enn þann dag í dag meira á flugur en Elvis. Ungar stúlkur brutu tennur til að líkjast Bjögga Halldórs en ég íhugaði að saga af mér fótinn eða skjóta mig í kinnina með kindabyssu af því það var svo fyndið. Eins gott að ég gerði það aldrei því þá hefðu flugurnar verið bannaðar fyrir slæm áhrif á æskuna eða eitthvað álíka bjánalegt.

Radíusflugurnar voru fyrsta fyndna stöffið á Íslandi. Áður en þær komu til sögunnar hlógu íslendingar helst að Halla og Ladda og Bjössa bollu. Ef ekki væri fyrir radíusflugurnar væri ég mjög líklega hlaupandi um í matrósafötum eins og Bjössi Bolla. Ég stend því í augljósri þakkarskuld við Davíð.

17.9.2006 

Trúarlúðar

Image Hosting by PictureTrail.com


Trúarbrögð eru svo drulluheimsk. Sjáið nýjasta dæmið? Páfinn móðgar múslima með því að ýja að því að þeir séu ofbeldisfullir og sumir múslimar verða svo sárreiðir að þeir hóta að láta drepa páfa fyrir þessi ósanndindi. Líklega eiga svo einhverjir vegfarendur einhversstaðar eftir að láta lífið af handahófi af því einhver sanntrúaður heimskingi ákveður að hefna sín á páfanum og öllum sem trúa ekki sömu þvælunni og hann sjálfur, með því að sprengja strætó í sundur einhversstaðar svo hann komist til himna til að afmeyja 72 hreinar meyjar sem bíða hans í röðum.

Páfinn sem telur sig hafa efni á að gagnrýna aðra gengur um í kjól og boðar það að almáttugur ofurdraugur sem er einn en samt þrír hafi barnað stúlku til þess að hún myndi eignast son hans en samt hann sjálfan svo hann gæti boðað kenningar sínar á jörðu og síðan látið krossfesta sig til að taka á sig syndir mannanna. Síðan á þessi partur af ofurdraugnum að hafa skotist aftur upp til himna til að sitja við fótskör föður síns...eða sjálfs síns. Ruglingslegt? Já. Heimskulegt? Ó já. Þessu trúir harðfullorðinn maðurinn auk milljarðs manna í viðbót sem lítur á páfann í kjólnum sem umboðsmann almáttuga ofurdraugsins á jörðinni. Hvað vantar í fullorðið fólk sem trúir svona bulli? Þetta er enn ein sönnunin fyrir því að tveir þriðju hlutar mannkyns eru heimskingjar.

Það versta við þetta trúarbragðarusl allt saman er að ég er vakandi kl hálf tíu á laugardagsmorgni að röfla í ykkur og leika mér í microsoft paint af því að helvítis Hallgrímskirkjan vakti mig með vondri tónlist eins og svo oft áður. Ekki nóg með að þessir trúarlúðar spili einhver fokk leiðinleg lög á þetta bjánalega klukkuspil sitt eldsnemma á morgnana, heldur er stærsta bjallan blöstuð nokkrum sinnum í lok hvers lags til að tryggja það að enginn í hverfinu sofi þetta af sér. Líklega eru þessir pisshausar að vonast til þess að ég muni drattast í messu og leggjast á skeljarnar til að tilbiðja þennan þykjustuguð þeirra ef þeim tekst að vekja mig. Think again fávitar!

Ætli eðlilegt fólk fái einhvern tíma að lifa í friði fyrir þessum aumingjum?

16.9.2006 

Glens dagsins


Ég er óðum að jafna mig eftir nýjasta ritstuldarmálið tengt þessarri síðu. Áður hafa Baggalútur og Hannes Hólmsteinn seilst í mína smiðju eftir efni og nú hefur keðjubréfahyskið tekið sinn skerf.

Hér er lítill brandari handa ykkur. Sjáum hver verður fyrstur til að stela honum.

Tekið úr dagbók lögreglunnar í Grafarvogi:
"Líkbíll hafnaði utanvegar á fjórða tímanum í gær. Ökumann líkbílsins sakaði ekki en farþegi í bílnum var látinn þegar að var komið.
".

Segið svo að Séð og heyrt sé eina uppspretta góðra brandara á Íslandi í dag.

15.9.2006 

Líf mitt sem ruslpóstur




Í dag var forwardað á mig einum af þessum sniðugu ruslpóstum sem eru svo ómótstæðilega fyndnir að fólk ræður ekki við sig af kæti og finnur sig tilneytt að deila glensinu með öllum á póstlistanum sínum. Ég byrjaði að lesa þessa bráðsmitandi snilld og var að hugsa hvað höfundur pistilsins hlyti að vera gáfaður og vöðvamikill þegar ég fattaði að vissulega er hann það og meira til. Þetta var Rockstar pistillinn minn.

Einhver ákvað að í stað þess að benda fólki á að heimsækja heimasíðuna mína og lesa sér til betrunar, væri betra að copy peista hugsanir mínar í tölvupóst og senda þær af stað í ferðalag um internetið án þess að geta heimilda. Alltaf gaman að því. Eins mikill heiður og það er að vera orðinn virkur partur af ruslpóstflóðinu þá eru tilfinningar mínar vissulega blendnar yfir þessu.

Á ég að vera þakklátur því að sauðsvartur almúginn skuli þrátt fyrir alla sína annmarka bera skynbragð á fagurbókmenntir og að ódauðleg skrif mín nái til fleiri en ella? Eða á ég að vera brjálaður yfir að fólk sé að senda lífsmótandi ávörp mín á gamlar frænkur sínar og aumingjana sem það vinnur með, án þess að geta heimilda og án þess að borga mér feita seðla fyrir að gera líf þeirra þess virði að lifa um stund?

p.s. Ef þú lesandi góður fékkst umræddan pistil í pósti, vinsamlegast styddu þá á "reply" hnappinn og bentu viðkomandi á að hann skuldi mér frumburð sinn, hálfa milljón í ómerktum seðlum og kassa af rommi.

11.9.2006 

Dómgreindarleysisráðherra


Umræða um þjóðfélagsmál er ekki alltaf á gáfulegum nótum og margir virðast frekar vilja röfla og berja sér á brjóst í stað þess að kryfja málin, velta upp athyglisverðum vinklum og öðlast meiri skilning en þeir höfðu áður ásamt því að miðla þeim skilningi til annarra. Sumir fá einhverja andlega fróun út úr því að allt sé að fara til andskotans og nota einstaka atburði úr lífi annarra sem dúkka upp í fréttum sem ófrávíkjanlegar vísbendingar þess efnis. Gott dæmi um slíkt nöldur má finna hér. Svona tuð er tiltölulega saklaust þrátt fyrir algjört tilgangsleysi. Leiðinlegt aflestrar vissulega, en ólíklegt til að valda hörmungum nema þá helst ef menn hrynja ofan á háa hestinum og lenda á einhverjum. Fregnir af einstökum atburðum segja einfaldlega yfirleitt ekki neitt um neitt nema akkúrat þann atburð og þá sem honum tengjast. Því miður er umræðan oft á þessum nótum og margar undarlegar ályktanir dregnar út um allan bæ.

Verra er hinsvegar þegar valdamiklir aðilar með ábyrgð nota einstaka atburði og hamfarir í lífi annarra til að afla sínum hagsmunum og áhugamálum fylgis í þjóðfélaginu.

Gott dæmi um smásál sem leggur stund á slíkt er okkar ástkæri dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason. Á heimasíðu sinni seinasta sunnudag birtir Björn pistil þar sem hann tuðar áfram um þörfina á íslenskri leyniþjónustu. Þráhyggja Björns fyrir herjum og leyniþjónustum til að berjast við alla ljótu kallana í hausnum á sér er vel þekkt. Það sem stakk hinsvegar í augu þarna, var það hvernig hann kaus að nota mál sýnilega truflaðs unglingspilts til að ýja að því að leyniþjónustu sé þörf á Íslandi. Orðrétt skrifar Björn:

"Ég nefndi einnig frétt, sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins í dag, um að 16 ára piltur hefði náð sambandi við mann í gegnum netið í þeim tilgangi að stinga hann á hol til að drepa hann. (Geðlæknir segir, að ætla megi, að drengurinn sé haldinn skertu veruleikaskyni vegna tölvuleikja eða vídeómynda. ) Spyrja má: Hvað ef honum hefði dottið í hug að búa til sprengju til að sjá, hvaða tjóni hann gæti valdið?

Í vikunni hefði danska leyniþjónustan eða öryggisþjónustan PET gripið unga menn í Odense við undirbúning þeirra á hryðjuverkum. Spurningar hefðu vaknað um það í Danmörku, hvort gögn PET dygðu til að fá þá dæmda í gæsluvarðhald en það hefði gengið eftir. Það væri fráleitt að láta eins og við þyrftum ekki ráðstafanir hér á landi til að bregðast við annars konar hættu að öryggi borgaranna en áður."


Burtséð frá því það þetta er heimskuleg, langsótt og tilgangslaus vangavelta, þá er í meira lagi ósmekklegt að Dómsmálaráðherra sé að fabúlera svona um einstaklinga sem nýbúið er að dæma í gæsluvarðhald og að hann sé að nota þá í furðulegar dæmisögur sínar úr Bjössalandi.

Segjum svo að þetta væri röksemdafærsla sem væri þess virði að svara með mótrökum, hver ætti þá ávinningurinn af leyniþjónustu að vera í svona máli? Ætti leyniþjónustan að njósna um öll samskipti borgaranna, t.d. á netinu, og koma svo í veg fyrir að fólk reyni að hitta annað fólk? Helst þyrfti bara að lesa hugsanir fólks og handtaka það fyrir að hugsa um að fremja glæpi. Öðruvísi sé ég ekki hvernig koma hefði mátt í veg fyrir þann glæp sem var framinn í raunveruleikanum. Hvað varðar ímyndaða glæpinn sem var aðeins framinn á frjóum gresjum ímyndunarafls Björns Bjarnasonar, þá held ég að best sé að slíkir glæpir séu áfram meðhöndlaðir af ímynduðum leyniþjónustum.

8.9.2006 

Rockstar 101




Ég verð að játa lítið og ljótt leyndarmál. Ég hef horft á Rockstar í sjónvarpinu. Þó hef ég ekki gert þau mistök eins og svo margir að taka þetta alvarlega eða halda að þetta skipti einhverju máli. Ég hef heldur aldrei kosið Magna. Ef ég væri týpan sem kýs í raunveruleikaþáttum þá myndi ég kjósa Toby jafnvel þó tilviljun hafi ráðið því að ég og Magni fæddumst í sama landi. Toby er miklu betri og ég hafði heldur aldrei látið hann fara í taugarnar á mér fyrir keppnina, sem er plús.

Maður fær einhverja pervers ánægju út úr því að horfa á raunveruleikaþætti. Það er gaman að hneykslast á öllu sem illa fer og njóta þess hversu æðri maður er öllum sem keppast við að skíta á sig á skjánum á meðan maður situr heima á nærbuxunum fyrir framan sjónvarpið með bjór í hendinni, fullkominn og ósnertanlegur. Til dæmis horfi ég alltaf á Contender sem er langbesti raunveruleikaþátturinn. Í contender er einn keppandi alltaf laminn í kæfu í lok þáttarins áður en hann er sendur heim. Það er eitthvað sem aðrir raunveruleikaþættir mættu taka sér til fyrirmyndar.

En rennum aðeins í gegnum þá sem eftir eru í rockstar.

Dilana er dvergur með prúðuleikarahár og rónarödd. Dramadrottning og væluskjóða. Hótaði því framan af að vera töff en varð þreytt fljótt og er orðinn óþolandi núna undir lokin. Vinnur ekki og endar í sirkus.

Toby er metró softrokkari og kvennagull. Á ennþá eftir að skíta á sig. Toby er ástralskur og það er töff að vera ástralskur. Vinnur vonandi keppnina svo einhver í Supernova fái að ríða.

Magni er eini keppandinn sem er bakkaður af banka, flugfélagi og 300.000 þjóðernissinnuðum internetsjúklingum. þyrfti að lyfta slatta til að vera meira töff á sviði. Það dugir ekki að vera bæði sköllóttur OG rýr. Menn verða að velja. Fín rödd en viðbjóðslegi "á móti sól" framburðurinn reynir að brjótast fram í hverju lagi. Magni er óvitlaus og kann á aðstæðurnar. Vinnur ekki en fær samt blóm á flugvellinum þegar hann kemur heim.

Lucas er asnalegur. Hann er eins og stórt fóstur með strípur. Gangandi klisja sem gæti ekki sungið sig út úr blautum bréfpoka. Ofmetinn og leiðinlegur karakter. Ég er ekki að segja að ég vilji sjá hann hrapa fram af hömrum...en það væri ekkert fúlt að sjá hann lenda.

Bandið sem allir rembast svo við að komast í er gamalt og súrt og samsett úr rokkafgöngum. Enginn þeirra þriggja var burðarmaður í sínu bandi og enginn þeirra kann að semja góð lög. Allir eru komnir vel yfir síðasta söludag. Þeir eru desperate og glataðir...sem auðvitað gerir þetta enn skemmtilegra.

Gilby, sem hlýtur að vera launsonur Ingólfs Guðbrandssonar, er líklega sá þeirra kumpána sem meikar mest sens. Fínn gítarleikari og er líklega skarpari en hinir tveir til samans. Það segir samt ekki mikið.

Jason er lúði. Þrátt fyrir að hafa spilað með Metallica í fjölda ára tókst honum ekki að pikka upp nein tips um hvernig á að vera töff. Hvernig hægt er að túra með Lars Ulrich hálfa ævina án þess að læra neitt um "kúl" er ofar mínum skilningi. Líklega er þetta einhverskonar meðfædd fötlun. Hann væri samt fínn í hundamat. Hundar éta allt.

Tommy Lee þarf svosem ekki að fjölyrða um. Hann hafði vit á að documentera það þegar hann makaði sig með Pamelu. Það aflaði honum meiri frægðar en slakur tónlistarferillinn. Tommy er með mörg tattoo og á mikið af fötum. Hann kann samt ekki mjög mörg orð. Hann er frægastur þeirra þriggja og líklega sá eini sem pöpullinn þekkti fyrir þáttinn. Hinir hefðu betur makað sig með Pamelu.

Dave Navarro er svo hafður með af einhverri ástæðu þó hann fái ekki að vera með í bandinu. Hann virkar oftast frekar bitur og súr. Dave Navarro, er fyrir þá sem ekki vita, maðurinn sem til skamms tíma deitaði Jennu Jameson áður en hún sagði honum upp fyrir að vera of kvenlegur. Það hlýtur að vera niðurlægjandi fyrir karlmann að vera dömpað fyrir að vera of kvenlegur, af konunni sem lék aðalhlutverkið í myndinni "Jenna loves Janine". Ekki furða að hann sé doldið súr kallinn.

Þar hafið þið það kæru lesendur. Nú er komið á hreint hvað snýr upp og niður í þessum blessaða þætti sem allir eru að tala um. Nú þurfið þið ekki lengur að sitja með tómt og ruglinslegt augnaráð og pæla í því heilu og hálfu dagana hver sé nú bestur, og hvort Supernova sé í alvörunni svalt band á meðan þið þurrkið slefið úr munnvikinu. Þið eruð heppin að eiga mig að.

5.9.2006 

Tobyvaka



þórdís frænka er skynsöm og ætlar ekki að vaka fram á morgun og stunda kosningasvik Magna í hag. Ég ætla hinsvegar að bæta um betur. Ég ætla að vaka í alla nótt og kjósa Toby mörg þúsund sinnum og tryggja þannig að þið vakið öll til einskis.

Á morgun, þegar þið sitjið rauðeygð af þreytu í vinnunni og grenjið af pirringi yfir því að Magni sé á leiðinni aftur heim til að syngja í hreðavatnsskála fyrir sveitavarg í blackouti...hugsið þá til mín

 

Haha



Þessi frétt er mjög skemmtileg vægast sagt.

"Unglingsstúlkur ógnuðu lögreglu í Reykjavík

Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tveimur unglingsstúlkum, 12 og 13 ára, sem létu mjög ófriðlega í fjölbýlishúsi í borginni í gærkvöld. Hvorug þeirra býr á umræddum stað en íbúar hússins kvörtuðu sáran undan framferði þeirra, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

„Lögreglan hugðist koma stúlkunum til síns heima en þær brugðust ókvæða við og var þá afráðið að flytja þær á lögreglustöð. Á leiðinni þangað hótuðu þær lögreglumönnum öllu illu og viðhöfðu svívirðingar sem ekki er hægt að hafa eftir. Lögreglumenn eru ýmsu vanir en þarna keyrði um þverbak enda var munnsöfnuður stúlknanna óhugnanlegur. Í framhaldinu var haft samband við forráðamenn þeirra sem komu og sóttu stúlkurnar," að því er segir á vef lögreglunnar.
"

Hvernig væri að byrja á að þjálfa lögregluna svo hún ráði við litlar stelpur áður en farið er að huga að stórum sérsveitum og leyniþjónustum? Vesalings löggan. Ég vona að þeir jafni sig áður en næsta unglingsstúlka lætur til skarar skríða og segir eitthvað ljótt við þá.