Ókeypis HM
Ég rakst um daginn á síðu þar sem hægt er að horfa á beinar útsendingar á HM í gegnum ESPN2 sjónvarpsrásina. Af því ég er góður, fallegur og réttlátur maður hef ég ákveðið að deila þessum fjársjóði með ástkærum áhangendum mínum. Mér virðist fólk almennt vera haldið þeirri grillu að það þurfi annaðhvort að borga 365 ljósvakamiðlum þrefaldað áskriftargjaldið að Sýn, eða að sitja á reykfylltum knæpum til að sjá leikina. Það er mikill misskilningur.
Farið á www.viidoo.com. Þar þurfið þið að downloda smáforriti sem heitir TUV player og þá getið þið klikkað beint á hina ágætu rás ESPN2. Þar eru leikirnir sýndir í beinni í lýsingu tveggja amerískra þula sem þrátt fyrir þjóðerni sitt virðast vita muninn á football og soccer nægilega vel til að lýsa leikjunum af stakri fagmennsku. Ef ske kynni að einhverjir lesendur mínir hafi fæðst andvana þá verð ég víst að taka fram að þetta er að sjálfsögðu erlent niðurhal svo að ef þið eruð ekki að borga fyrir ótakmarkað niðurhal, þá mun óhóflegt HM gláp gegnum internetið mjög líklega verða ykkur dýrara að bíltúr af djamminu heim í Árborg. Mig rennir hinsvegar í grun að flest séuð þið klámsjúkar skepnur með öflugustu gerð af internettengingu og þurfið því engu að kvíða.
Nú er ég búinn að redda ykkur fríum fótbolta og finnst að þið ættuð að redda mér fríum bjór í staðinn svo ég geti setið ölvaður fyrir framan tölvuna og glápt á restina af þessu móti, marineraður í eigin góðmennsku og örlæti.
Niður með einokunarkaupmennina!

