Hnakkus: maí 2006

30.5.2006 

Kvikmyndagagnrýni

Vangefni sonurinn

Í nótt sá ég mynd með Tom Cruise sem er ekki til. Að minnsta kosti ekki ennþá. Mig dreymdi hana nefnilega. Mér fannst þessi mynd svo fáránlega léleg að ég gat ekki beðið eftir að skrifa kvikmyndagagnrýni um hana hérna á síðunni svo að vonbrigðin voru mikil þegar ég vaknaði og fattaði að það væri engin mynd til að gangrýna. En ég ákvað svo að ég myndi ekki láta smáatriði eins og skort á tilvist myndar stoppa mig í að taka hana fyrir svo hér er fyrsta gagnrýnin á nýjustu mynd Tom Cruise.

Myndin fjallaði um besta lásabrjót í heimi og var hann leikinn af eilífðarfávitanum Tom Cruise. Hann gat opnað hvaða lás í heiminum sem er af því hann var með svo næma heyrn eða eitthvað álíka asnalegt (ekki vildi ég vera sá sem skrifaði handritið af þessarri þvælu). Eftirminnilegt er atriði í myndinni þar sem Tom Cruise situr á gólfinu fyrir utan baðherbergið heima hjá sér og pikkar upp lásinn með annarri hendi til að komast að vangefnum syni sínum sem hafði læst sig þar inni. Þetta tókst honum þrátt fyrir að tveir hressir vinir hans væru að reyna að trufla hann með allskyns hávaða af því þeir voru svo hressir stuðboltar. Þarna fengu áhorfendur að sjá hversu leikinn Tom Cruise er við iðju sína og hversu vangefinn sonur hans er. Þegar honum loks tókst að opna hurðina var sá stutti búinn að rústa baðherberginu og það voru slefslettur uppi um alla veggi. Þetta átti held ég að vera hjartnæmt atriði sem sýndi hvað Tom þætti vænt um börnin sín og hversu klár hann væri en mér fannst atriðið aðallega ógeðslegt útaf öllu slefinu. Einnig má geta þess að í öðrum atriðum var sonurinn ekki nærri því svona vangefinn heldur jaðraði í mesta lagi við að vera smá einhverfur kannski og var allur hinn rólegasti. Minnti þetta misræmi doldið á Adam Sandler í Waterboy þar sem Adam var afar mis vangefinn milli atriða. Tom Cruise átti líka dóttur í myndinni en hún kom lítið við sögu enda bara stelpa.

Myndin endaði svo upp úr þurru skömmu eftir baðherbergissenuna og gæti það tengst því að ég þurfti að vakna til að fara í sturtu svo það væri ekki vond lykt af mér í vinnunni. Afar endasleppt og vond mynd semsagt. Tom Cruise sannar það enn og aftur að hann er ömurlegur leikari sem tekst ekki einu sinni að forðast það að vera óþolandi þó honum sé leikstýrt af mér persónulega. Ég gef myndinni eina stjörnu af því það var hægt flissa að vangefna syninum við og við og ráðlegg lesendum að forðast hana. Ég man að vísu ekki hvað myndin átti að heita en ef þið sleppið bara öllum myndum með Tom Cruise þá ættuð þið að vera örugg.

Ef ég fengi tækifæri til að gera mynd í alvörunni með Tom Cruise í aðalhlutverki þá myndi mér takast að gera bestu mynd í heimi. Hún myndi byrja á stuttri kynningu á helstu persónum og enda á klukkutíma og korters langri senu þar sem ég kæmi hoppandi í gegnum múrvegg og berði Tom Cruise í fars (djöfuls vekjaraklukka!).

p.s. Ég fletti upp í draumaráðningabókinni hvað þessi draumur þýddi og þar stóð að hann þýddi að Tom Cruise væri fáviti.

21.5.2006 

Að gera það besta úr hlutunum

Í gær þegar ég ætlaði út úr húsi blasti við mér ófögur sjón. Björn Ingi lá hreyfingarlaus á ganginum við útidyrahurðina með galopin augun. "Úff var ég svona fullur í gær"...hugsaði ég og reyndi að muna hvar ég hefði síðast séð skófluna mína. Það var þá sem ég fattaði að þetta væri ekki Björn Ingi sjálfur heldur afar veglegir litprentaðir kosningabæklingar frá framsóknarflokknum. Framan á var mynd af Birni Inga í einhverskonar Clark kent grímubúningi. Einhver ósvífinn aðili hafði gerst svo fífldjarfur að henda þessu inn um bréfalúguna á húsinu sem ég bý í og það þrátt fyrir að á lúgunni sé miði sem afþakkar allan ruslpóst og alveg án þess að íhuga það hversu fast viðkomandi hefði verið skallaður í rot hefði ég staðið hann að verki. Ég hélt að það ætti ekki að leika nokkur vafi á því að allt sem tengist framsókn flokkast undir rusl en það eru ekki allir jafn vel gefnir og ég greinilega.

Ég ákvað samt að láta þennan leiðinlega atburð ekki skemma fyrir mér fallegan laugardag svo ég hélt aftur inn með bæklingana og ákvað að gera það besta úr þessu, bæði fyrir sjálfan mig og aðra Reykvíkinga sem mig grunar að hafi orðið fyrir svipuðu áfalli í gærmorgun.

Hvað skal til bragðs taka þegar kaffibrúnum fávitum er sturtað inn um bréfalúguna hjá ykkur? Hér eru nokkrar hugmyndir:




Sturtið Birni í klóið! Klassísk skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Nýfundin sólbrúnkan gerir það að verkum að hann verður í góðum félagsskap á ferðalagi sínu um holræsakerfi Reykjavíkurborgar. Ég hef aldrei verið eins sáttur við holræsaskattinn.

Hendið Birni Inga á grillið og kveikið í honum. Rándýri glansppírinn brennur að vísu frekar illa sem er eflaust úthugsuð brella en þetta hefst á endanum, trúið mér. Ertu með?


Gerið eins og ég og setjið á svið mannrán í þeim tilgangi að krefja framsókn um himinhátt lausnargjald fyrir Björn Inga. Líklega eru þeir búnir að eyða öllum peningunum í bæklinga og vita þar að auki að þetta er tóm hótun þar sem Björn Ingi er ekki kúlunnar virði...en það sakar ekki að reyna!


Síðast en ekki síst kemur gamla klósettpappírstrixið. Fáið krakkana með í að föndra framsóknarklósettrúllur. Björn Ingi er búinn að vera duglegur að kyssa á okkur rassgatið í fjölmiðlum undanfarið og nú fær hann að gera það bókstaflega! Ég hef aldrei verið jafn vel skeindur.

Skemmtið ykkur vel!

p.s. Ég vona að aðrir íbúar hússins fyrirgefi mér þjófnaðinn á framsóknarbæklingunum þeirra.

17.5.2006 

Undirheimar Garðabæjar?


Söguhetjurnar úr þessarri frétt eru sagðar þekktar í undirheimum garðabæjar. Fyrst hélt ég að átt væri við einhverja félagsmiðstöð þarna í Garðabænum en áttaði mig svo á að þetta væri meint í bókstaflegri meiningu.

Ég fyrir mitt leyti hafði ekki hugmynd um að rólegasta svefnhverfi á landinu hefði undirheima. Ég er af kynslóð sem er ennþá að melta það að Reykjavík hafi alvöru undirheima og ég kemst aldrei hjá því að hugsa að það hljóti að vera frekar sveitó undirheimar miðað við það sem gengur og gerist í erlendum höfuðborgum. Þessir jaxlar úr Garðabænum láta samt ekki smæð samfélagsins stöðva sig í að hugsa stórt og hafa afrekað að verða þekktir í þessum nýju undirheimum sem enginn vissi að væru til. Maður spyr sig samt óneitanlega hjá hverjum nákvæmlega þeir séu þekktir þarna niðri? Hjá hvorum öðrum?

En ég vil ekki taka neitt af þeim því þetta eru augljóslega miklir afreksmenn á sviði glæpa og líkamsmeiðinga og eiga eflaust eftir að ná langt í undirheimum Garðabæjar.

(Nú verð ég laminn með sveðju.....sem er ekki alslæmt því mér leiðist þá varla á meðan.)

15.5.2006 

Pólitísk ráðlegging



Eyþór Arnalds er fallinn ekki ósvipað ljósastaurnum sem honum mistókst að keyra framhjá um helgina. Ólíkt ljósastaurnum verður Eyþór hinsvegar ekki svo glatt reistur við á ný.

Þessi yfirlýsing sem Eyþór kom með var moðvolg og veik. Hún mun ekki hjálpa honum og hún mun ekki hjálpa flokknum. Ég er með betri lausn...

Harakiri!

Með harakiri endurheimtirðu heiðurinn Eyþór, og það sem meira er...þú endurheimtir rokkið!

Sayonara gamli vinur...sayonara!

11.5.2006 

Léleg blaðamennska


Myndin er sviðsett


Mér finnst þessi frétt mjög fyndin sem er kannski merki um brenglað skopskyn því auðvitað eiga svona vinnubrögð ekki að vekja kæti. Fréttin fjallar um það að "líklega" hafi tveir af sprengjumönnunum í London, hitt höfuðpaur Al qaeda samtakanna í Pakistan. Fréttin virðist vera unnin úr einhverri skýrslu sem blaðamanni finnst greinilega ekki mikilvægt að kynna frekar til leiks. Fréttin hljóðar svo:

"Tveir af fjórum mönnum, sem frömdu sjálfsmorðsárásir í Lundúnum 7. júlí á síðasta ári, höfðu líklega eitthvað samband við hryðjuverkasamtökin al-Qaeda, að því er kemur fram í skýrslu sem birt var í dag.

Í skýrslunni er hins vegar vísað á bug kenningum um að fimmti maðurinn hafi verið hugmyndafræðingur árásanna og hann hafi flúið Bretland í kjölfarið.

Vitað er að tveir af árásarmönnunum, Mohammad Sidique Khan og Shehzad Tanweer, fóru til Pakistans skömmu áður en árásin var gerð. Í skýrslunni segir, að ekki sé vitað hverja þeir hittu en líklegt sé að þeir hafi haft samband við einhverja af forsprökkum al-Qaeda."


Aldrei er tekið fram á hverju það er byggt að það sé "líklegt" að mennirnir hafi hitt forsprakka samtaka sem eru ekki til í alvörunni. Það er hinsvegar tekið nokkuð skýrt fram að samkvæmt skýrslunni dularfullu viti enginn neitt um hverja þeir hittu svo þetta meikar allt voða lítið sens.

Samkvæmt skýrslu sem birt var í dag er líklegt að blaðamaðurinn sem sá um þessa frétt sé vangefinn.

 

Ég þarf...


...að fara að koma upp linkum á aðra bloggara hérna til hliðar. Það eru þónokkrir sem ég glugga í reglulega en þar sem ég er mjög óskipulagður í eðli mínu sökum óðelilega hás testósterónmagns í blóði er ég vís til að gleyma einhverjum og valda þar með móðgelsi, óvild eða milliríkjadeilum. Mín lausn á svona málum er venjulega að ýta þeim á undan mér þangað til þau leysast af sjálfu sér. Mig vantar einkaritara.

10.5.2006 

Hundaæði



Í morgun vaknaði ég tímanlega til vinnu eins og ég á til að gera og var í mestu makindum að hafa mig til þegar ég heyri ógurlegan bægslagang úr bakgarðinum heima hjá mér. Þar sem mér er litið út sé ég köttinn minn hann Jóakim koma á harðahlaupum yfir garðinn með kolvitlausan hund á eftir sér sem augljóslega ætlaði að éta hann. Rófan á Jóakim var á þykkt við jólatré og hárin á bakinu stóðu beint upp í loft. Ég sá ekki hvaða tegund af hundi þetta var nákvæmlega en sögunnar vegna gæti ég trúað að þetta hafi verið hálfur grábjörn svo hroðalegur var hann. Hann var dálítið líkur íslenskum hundi nema öðruvísi á litinn og vitanlega voru augun á stærð við undirskálar.

Eins og allir vita er ég ekki hræddur við neitt (nema rappara úr árbænum og tortillur með hangikjöti) svo ég reif upp hurðina sem liggur beint út í garð, rauk út eins og elding og var kominn út í garð áður en ég vissi hvað var að gerast og alls ekki meira en sekúndubroti áður en Jóakim hefði verið gleyptur í einum munnbita! Ég hljóp í áttina að hundskrímslinu og rak upp ógurlegasta öskur sem heyrst hefur hér á jörð síðan á steinöld. Hundspottið steingleymdi væntanlegum málsverði þegar það stóð andspænis þessum háværa brjálæðingi sem nálgaðist óðfluga á sokkaleistunum, snerist á staðnum og hvarf aftur yfir vegginn þaðan sem það hafði komið í leit að auðveldum bita. Eftir stóð ég með náladofa í kinnunum og í adrenalínvímu, og tuðaði eitthvað sem ég held að hafi verið..."Druuulllaðu þér úr garðinum addna!". Það var ekki fyrr en þá sem ég sá eiganda hundsins standa hinu megin við vegginn. Smávaxna konu í eldri kantinum sem horfði á mig gjörsamlega steinrunnin af undrun og einhverju sem ég kýs að túlka sem óttablandna virðingu. Konan smellti hundinum aftur í fjötrana sem hún hefði aldrei átt að sleppa honum úr til að byrja með og lét sig hverfa, eflaust guðs lifandi fegin að þurfa ekki að borga fyrir uppstoppun á hundinum sínum eins og stefndi í. Ég labbaði aftur inn og reyndi að bera mig eins og ekkert væri eðlilegra en að ryðjast út eins og snjóflóð eldsnemma á morgnana öskrandi og gargandi. Mestu adrenalínvímuna lét ég svo rjátlast af mér á leið í vinnuna.

Hundarnir í hverfinu eiga aldrei eftir að koma nálægt garðinum mínum aftur. Reyndar á fólkið í hverfinu líklega ekki eftir að koma neitt sérlega nálægt honum heldur.

4.5.2006 

Má ég biðja um bílslys takk?



Viðskiptavinir Flugleiða geta nú hlýjað sér við þá tilhugsun að okurflugfargjöldin sem þeir borga fari í að styrkja ólöglegan götukappakstur milljarðamæringa gegnum nokkrar álfur. Hluthafar í Flugleiðum geta líka glaðst yfir því að stjórn fyrirtækisins hlúi vel að ímynd fyrirtækisins útávið af óeigingjörnum hvötum og án þess að það spili inn í á nokkurn hátt að sjálfur forstjóri fyrirtækisins sé meðal keppenda. Ég er að spá í að sækja um styrk til flugleiða til að halda ólöglegan götukappakstur um þingholtin. Þeir færu varla að neita að styrkja gott málefni allt í einu!

Í einhverju blaði í gær las ég svo ein furðulegustu ummæli ársins en þau átti einhver snillingur hjá umferðarstofu um millakappaksturinn. Hann vildi meina að í rauninni væri allt í lagi að stunda ólöglegan götukappakstur því að milljarðamæringarnir ættu nefnilega á hættu að vera stöðvaðir fyrir of hraðan akstur og því væri þetta sambærilegt við kappakstur sem er haldinn á þar til gerðum lokuðum kappakstursbrautum. Honum finnst semsagt allt í lagi að menn á of kröftugum bílum og með of mikinn frítíma eyði téðum frítíma í að leggja venjulegt fólk í stórhættu með ofsaakstri í gegnum hin og þessi lönd svo lengi sem þeir eigi yfir höfði sér sektir og hugsanlega ökuleyfissviptingu í viðkomandi landi. Eins gott að hið opinbera er með svona snillinga í fullri vinnu við að huga að umferðaröryggismálum.

Nýjustu fréttir herma að minn fyrrum vinnuveitandi og fornvinur Jón Ásgeir Jóhannnesson hafi verið stöðvaður oftsinnis nú þegar fyrir ofsaakstur í kappakstrinum góða. Nú er ég að velta fyrir mér...væri ekki hægt að láta þetta lið keppa í rússneskri rúllettu í staðinn? Það hlýtur að vera hægt að gera hana trendy einhvern veginn. Það myndi bæði auka umferðaröryggi og minnka líkurnar á að milljarðamæringarnir þurfi að eyða einum milljónasta af laununum sínum í sektir fyrir hraðakstur. Svo yrði þetta líka skemmtileg viðbót við helgarsportið.