
Síðast þegar ég bloggaði um rappara fylltist gestabókin á gamla blogginu mínu af allskyns hótunum og djöfulgangi. Áhangendur glæparapparans Móra voru staðráðnir í að myrða mig vegna skrifa minna um kappann ef eitthvað var að marka gallharðar internethótanirnar. Ég er ennþá að jafna mig og því ætla ég að vera jákvæður og uppbyggilegur í skrifum mínum um rappara, bæði í þessarri færslu sem og framvegis því hver vill láta fylla sig af blýi fyrir að tjá sig á internetinu? Ekki ég allavega
Á vafri mínu um internetið rakst ég á íslensku rappsveitina Busta Bitches úr Árbænum. Ef maður rýnir í texta drengjanna í Busta Bitches sést fljótt að þarna eru á ferðinni harðir gangsterar sem gera fátt annað en að flengja kellingar og drepa eða berja þá sem bögga þá. Þetta væri svosem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þeir félagar eru varla 40 kíló að þyngd og ekki kynþroska enn. Þeir eru nefnilega 12 ára.
Við skulum líta á nokkur textabrot af heimasíðu þeirra félaga og byrjum á laginu I'm" a hustler:
"L.A.P.D. chasing me/
Acting like they can arrest a B'/
i´ma gangster somthing like that/
Don´t go around not bringing a gat/
Báðir
I´ma i´ma hustler/
Bonafide...BUSTA/
I'ma i'ma hustler/Bonafide...BUSTA/"
Eins og sjá má er hægt að læra margt af því að hlusta á rapptónlist. Þarna komst ég til dæmis að því að lögreglan í Los Angeles virðist vera með lögsagnarumdæmi í Árbænum þar sem hún eltir 12 ára krakka sér til skemmtunar. Það vissi ég til dæmis ekki áður.
"Yeahh i allways got a pistol in my pant's/
nife in my sock/
and a sticker in my pocket/
to sign these autograph's/
yeahh i'm so toff i only sign breast's with my hands/
Yeah i'm so toff/
to fucking BUFF/"
Af myndunum af Þeim félögum að dæma er engu til logið í þessum texta. Þeir eru hættulegir að sjá og eflaust með sokkana alveg stappfulla af hnífum og öðrum heimilisáhöldum. Auk þess eru þeir svo sannarlega "Too fucking BUFF" báðir tveir. Það er langt síðan ég hef séð svona massaða tólf ára stráka og þeir verða eflaust enn hrikalegri þegar þeir ná kynþroska. Ef áfram heldur sem horfir verða þeir kannski orðnir jafn stórir og sumar stelpurnar í bekknum innan skamms og þá kannski þurfa þeir ekki að standa upp á stól til að árita brjóstin á aðdáendum sínum.
Næsta lag með þeim félögum heitir I know you like me og er ekki síður merkilegt en hið fyrra. Þarna telja strákarnir upp hinar ýmsu ástæður fyrir því að stelpurnar er vitlausar í þá:
"Danni suco rappar
i know you like me cuz i'm rich,pretty and nice/i know you like me cuz always when were to gather we have realy good time’s/i know you like meeee/I know you like me girl when I bang you in my bed/I know you like me when I tung kiss you like that/
fannar rappar/
yeah i'm never going back do L.A./
those bitches never pay/
if you get an tatto it will never go away/
cuz i ain't no gay/
i'm just siting here and i will stay/"
Ýmislegt hefur greinilega breyst síðan ég var barn. þegar ég var tólf ára þá voru stelpur ekki alveg hættar að vera ógeð og það eina sem maður gerði í rúminu var að sofa. Rúmið mitt var ekki beint skakkt og snúið eftir óteljandi nætur af villtu kynlífi. Maður var heldur ekki nógu duglegur að ferðast til LA til að eltast við tíkur og fá sér tattú. Þeir hljóta að fá meiri vasapening en ég var með. Ég þarf að ræða þetta mál við mömmu við fyrsta tækifæri því það er ljóst að ég var hlunnfarinn!
Skýringunaa á drjúgum fjárráðum þeirra félaga má kannski finna í þessarri færslu af bloggsíðunni þeirra:
"20/4/06
Röppuðum á sumardegi 1 .Fengum þúsund krónur á man.."
Tveir dauðir biskupar! Ekki slæmt strákar! Ég veit ekki hvað maður fær mikið af bling bling og tíkum fyrir 1000 kall nú til dags en ef þið haldið áfram að troða upp fyrir stóra seðla þá er þess varla langt að bíða að þið verðið jafn tattúveraðir og Bubbi Morthens og Sigga Beinteins til samans!
En áfram með smjörið!:
"I know you like meee/For beying a G’/I know you like meee/Cuz I get it for free/"
Þarna er rappað um kvenhyllina sem hlýst af því að vera í fríu fæði og húsnæði hjá mömmu sinni. Það er allavega það sem ég held að sé átt við þar sem 12 ára strákar fá varla mikið annað frítt í þessum heimi. Ég tek það fram að það eru liðin nokkur ár frá því ég var lítill strákur svo það er séns á að ég hafi rangt fyrir mér.
Ég rakst síðan á þessa Íslensku rímu þar sem Danni Suco tjáir sig um textasmíðar sínar og lífsstíl:
"ég reini að semja hvað sem er það kemur ekkert/
það eina sem kemur er enskur TEXTI!!/
fólk segir a' eg se að gera brandara úr mér/
þvi eg rappa a ensku og rappa um að eg se hustler/
og þvi að eg klæði mig eins og svertingi spila körfubollta/
og drekk eins og alvöru coce-isti/"
Þarna er nú aldeilis ekki að sjá að það komi eingöngu enskur TEXTI frá rapparanum unga enda er þarna komin þessi líka flotta ríma á gullaldar íslensku. Reyndar mætti hún actually ríma...en hey...það er hugurinn sem gildir! Stay black!
Danni Pí á svo líka texta á móðurmálinu sem slær þeim hér að ofan ekkert við:
"Geng í Gallabuxum og exodus húfu/
Abbast uppá mig/
Mun ég brjóta þína rúðu/
7.undi IH er minn bekkur/
Gangsta rapp er minn smekkur/
Busta-bitches er nafnið á mínu Crewi/
Þun lína milli klappi og búúúúúi/
Í lífinu vilja allir komast langt/
En fyrir það gera margir rangt/
Ég reyni að ekki berja fólkið sem ég sé/
En ég verð stundum svo æstur að ég get ekki hjálpað mér/"
Eins og þið sjáið var mjög skynsamlegt hjá mér að skrifa uppbyggilega um strákana í Busta bitches því annars myndi ég enda með brotna rúðu! Beat that Tupac! Hver þekkir svo ekki þessa þörf sem kemur upp þegar maður sér fólk? Maður reynir að ekki berja það en stundum verður maður svo æstur að maður getur ekki hjálpað sér. Mössuðu folarnir í Busta bitches ríma um þessa litlu hluti í daglega lífinu sem allir kannast við og það er held ég það sem gerir tónlistina þeirra svo aðgengilega.
Ég vona að þið, lesendur, góðir hafið haft gaman að þessarri tónlistarumfjöllun. Ég bíð að minnsta kosti spenntur eftir fyrstu plötunni og kem til með að standa í biðröð í Skífunni til að láta árita á mér kassann. Píz át my niggaz.




