Hnakkus: febrúar 2006

26.2.2006 

Hnakkus Vs. Guð

Þetta bréf skrifaði ég áðan og sendi á Hallgrímskirkju. Tilefnið útskýrir sig sjálft.

Góðan og blessaðan daginn.

Sveinn heiti ég og er nágranni ykkar en ég bý við rætur Hallgrímskirkju. Í dag var ég að reyna að taka hvíldardaginn alvarlega og leggja mig í eftirmiðdaginn eins og drottinn ætlast til af mér, en vaknaði með andfælum aftur og aftur þegar kirkjuklukkurnar fóru af stað og léku sín lög. Nú veit ég að ykkur finnst gaman að spila ykkar músík og að ykkur finnst hún hljóma best þegar hún er spiluð hátt. Ég virði það. Sjálfum finnst mér Debaser með Pixies hljóma best á hæsta styrk og ef ég ætti 200 milljónir til að byggja mér turn og setja í hann hátalarasystem þá myndi ég eflaust halda fyrir ykkur öllum vöku með því að spila ekki bara Debaser, heldur fullt af lögum með Pixies, Billy Idol, Public enemy og fleiri ódauðlegum tónlistarmönnum. Heppin þið að ég á ekki turn og rándýrt hátalarakerfi.

Nú er ég viss um að þið sem lesið þetta eruð öll að signa ykkur í bak og fyrir af létti yfir því að ég eigi ekki 200 milljónir til að byggja turn og setja í hann hátalarakerfi því eitthvað segir mér að þið mynduð ekki vilja vakna í tíma og ótíma við gargið í reiðum pönkurum og pólitískum blökkumönnum. Ég var því að velta fyrir mér hvort við gætum ekki komist að samkomulagi. Þið parkerið klukkunum og ég byggi ekki minn eigin turn. Var það jú ekki Jesú sem sagði ”Gjörið ekki öðrum það sem þér viljið ekki að yður sé gjört?” Eða var það kannski Billy Idol?.

Yðar kristilegi nágranni,
Sveinn.


Ég læt ykkur vita ef ég fæ svar frá almættinu einhvern tíma á næstunni.

23.2.2006 


Vinnusiðferði

Í fréttablaðinu í dag var viðtal við einhvern hlunk sem rekur Bónstöð og var að barma sér yfir lélegu vinnusiðferði landans. Hann kvartaði yfir því að íslendingar nenntu ekki að vinna lengur fyrir lágmarkslaun og að menn fullnýttu veikindadaga og að þegar menn hættu, þá hættu þeir bara að mæta án þess að láta vita og bla bla bla. Ég man að ég fann mikið til með honum áður en ég missti meðvitund af leiðindum.

Hvað halda svona kallar að þeir fái fyrir lágmarkslaun annað en lágmarksmetnað?? Fávitar. Einu sinni þegar ég var strákur hætti ég í svona skítavinnu án fyrirvara af því hún sökkaði og af því einhver aðeins minni fáviti bauð mér aðeins minni skítavinnu fyrir 50 kall meira á tímann. Það var mjög gaman. Al Cabón þarna sem grenjaði eins og laminn leikskólakrakki yfir því að eiga svo bágt, ætti kannski að prófa að borga mönnum aðeins meira fyrir heiladauðu vinnuna sem hann lætur þá vinna og þá kannski myndu menn allavega nenna að hringja í hann og segja honum að fokka sér þegar þeir hætta að nenna að mæta í vinnuuna.

11.2.2006 

Ég er að spá....


...hvort hlýnun jarðar stafi kannski af öllum þessum logandi dönsku fánum?

9.2.2006 

Að meika það í útlöndum

Ansi skemmtileg forsíðufréttin á DV í dag en þar segir frá manni nokkrum sem ónaneraði fyrir framan lífverði hennar hátignar Margrétar danadrottningar og var boðin gisting í fangageymslum fyrir frammistöðuna. Svo virðist sem það þyki allt í einu stórtíðindi að heilbrigður karlmaður finni sig knúinn til að kippa í við það að rekast á lífverði danadrottningar á leið sinni heim af öldurhúsi. Eins og hann sé sá fyrsti til að verða kynferðislega æstur við að standa fyrir framan vopnaðan mann með dauðan björn á höfðinu. Líklega þótti þetta stórfrétt vegna þess að þarna átti Íslendingur í hlut enda þykir okkur íslendingum fátt merkilegra en þegar landar okkar vekja eftirtekt utan landsteinanna. Friðrik Weishappel skammast sín að vísu fyrir þjóðerni sitt vegna hins kynorkumikla landa síns sem otaði vopni sínu að þrautþjálfuðum dátunum og lifði til að segja frá því. Hann vill meina að þetta sé hrikaleg skömm fyrir land og þjóð og segir þetta gera það erfitt að vera íslendingur í Kaupmannahöfn. Ég held að Frikki sé bara abbó af því hann hefur aldrei verið handjárnaður af öðrum karlmanni eftir að hafa veifað framan í hann skaufanum.

Það besta við þessa frétt fannst mér samt vera það sem flassarinn sjálfur hafði um málið að segja. Hann vildi meina að hann hafi bara verið vitlaus maður á vitlausum stað. Hann vill semsagt meina að ef hann hefði verið einhver allt annar en hann er, og á einhverjum allt öðrum stað...að þá hefði hann líklega aldrei rúnkað sér framan í lífverði Margrétar Þórhildar danadrottningar og endað bæði í fangelsi og á forsíðu Dv fyrir vikið. Það er skarplega athugað.