Hnakkus: janúar 2006

30.1.2006 

Et tu Björn

Björn gefur skít í þig. Gefðu skít í Björn.

Þetta er líka skemmtilegt...ég er búinn að vera fastur í tvo daga.

Svo verður þetta að fá að fljóta með fyrst ég var í dvala þegar Davíð kvaddi.

Og að lokum kemur eina góða ástæðan til að opna heimdellingavefinn.

Njótið vel.

28.1.2006 

Smáralind-Kringlan

Idolið er brilliant. Þar keppa nokkrir krakkar um íslandsmeistartitilinn í karíókí á sviði í verslunarsmiðstöð og sá sem er betri en öll hin og vinnur keppnina fær að syngja í verslunarmiðstöðvum á laugardagseftirmiðdögum það sem eftir er. Hversu viðeigandi er það?

25.1.2006 

Return of the king?

Ég er dálítið að pæla í að byrja að blogga aftur. Það er alveg möguleiki allavega. Til þess að auka líkurnar á því væri ekki óvitlaust að sleikja á mér botninn...á stafrænan máta að sjálfsögðu, og grátbiðja mig um að koma aftur og segja ykkur hvað ykkur á að finnast um lífið og tilveruna. Ég gæti svo sagt ykkur skemmtilegar sögur úr lífi mínu til að lífga upp á langdregna bið ykkar eftir dauðanum. Ég gæti til dæmis sagt söguna af því þegar ég var að elda um daginn og fór í hugsunarleysi beint að pissa án þess að þvo mér um hendurnar eftir að hafa verið að meðhöndla og saxa rauðan chili fyrir pottrétt sem ég var að græja. Það væri til dæmis mjög skemmtileg saga.