Hnakkus: Upprisa

« Home | Hnakkus frændi » | Þú veist að þú ert rasisti þegar.... » | Hleranir » | Er nauðsynlegt að skjóta þá? (fokk já!) » | Hvalreki » | Orð mín að lögum » | Kominn aftur » | Farinn » | Meira um ökufanta » | Flugpóstur » 

15.12.2006 

Upprisa

Bloggleti er þekkt hugtak í nútímanum. Helst kýs ég að tala sem minnst um slíka leti þegar hún kemur upp svo ég endi ekki eins og gelgjurnar á blog.central.is sem blogga helst ekki upp neitt annað en hvað þær séu latar að blogga.

Margir halda eflaust að ég sé ennþá í Garðabænum, kominn með eigið einbýlishús og jeppling. Aðrir halda að ég sé dáinn að innan eftir að hafa farið yfir bæjarmörk Garðabæjar. Það er nær lagi en fyrri kenningin, en þó ekki alveg rétt. Ekki einu sinni Garðabærinn getur drepið Hinn Mikla!

Barnapössunin (endurforritunin) gekk vel. Ég tók elsta strákinn með mér á slaxmálamót og leyfði honum að berja augum þetta æðsta stig mannlegrar tjáningar sem slaxmál milli tveggja einstaklinga er.

Yngsti strákurinn staulaðist um hálfa helgina með leikfangaborvél og leikfangaborðsög í hendinni og hélt eflaust að hann væri "Bubbi byggir" eða eitthvað álíka lúðalegt. Ég leiðrétti það og kenndi honum að ota bornum að fólki og segja.."Ég er handrukkari!". Eftir nokkrar æfingar var hann farinn að segja þetta tiltölulega skiljanlega og á örugglega eftir að græða vel á því að rukka félagana á leikskólanum. Vasapeningarnir í Garðabænum eru varla neitt slor svo það gæti svo farið að maður gerði kröfu um prósentur.

Ég vona annars að fólk lái mér ekki örlitla andlega deyfð eftir að hafa andað að mér garðbæsku lofti í þrjá heila sólarhringa. Þið ættuð bara að þakka fyrir að ég sé á lífi! Hvar væruð þið án mín þið andans heimalingar? Vafalaust rápandi um í Kringlunni í takt við jólalög Helgu Möller eins og aumingjar, löðrandi í eigin plebbaskap! Aðeins með minni leiðsögn eigið þið von um sjálfsvirðingu og dug!

Eitt Fólk, einn Hnakkus!

Velkominn aftur gamli...
Var farinn að svipast um eftir þér inni á Barnalandi...

Þú ert þá lifandi ennþá. Vorum farin að halda að börnin hefðu alveg gengið frá þér.

Mér finnst harkalega vegið að mér í þessu bloggi.

Annars finnst mér að þú eigir að gefa út bók eins og Maddox, Alphabet to Manliness.

Merkilegt. Hafði ekki kíkt á þig síðan þú fórst í Garðabæinn. Missti semstagt ekki af neinu. Velkominn til baka

Skrifa ummæli

Linkur á færslu

Búa til tengil