Hnakkus: Orð mín að lögum

« Home | Kominn aftur » | Farinn » | Meira um ökufanta » | Flugpóstur » | Ofsaakstur » | Náttúrulækningar » | Ómar virkjar landann Gangan gegn virkjuninni í g... » | Óverðskulduð einstaklingshyggja Mogginn birti kos... » | Unglingavandamál Ég var að skoða trackerinn min... » | Hér er komin lítil fluga Davíð Þór er farinn að l... » 

20.10.2006 

Orð mín að lögum

Hjálmar Árnason þingmaður Framsóknarflokksins hefur skipað sér í flokk með Baggalúti, Hannesi Hólmsteini og fjöldapóstgelgjunum og notað efni frá mér við störf sín. Ég ákvað að líta þetta jákvæðum augum enda alltaf nýtilegt að eiga eldheitan aðdáanda og skósvein á Alþingi. Ég ritaði Hjálmari því bréf og sendi honum. Það hljóðaði svona:

"Sæll vertu Hjálmar.

Hnakkus heiti ég. Nýverið skrifaði ég pistil á heimasíðuna mína þar sem ég tilgreindi hvernig ætti að leysa vandamál tengd ofsaakstri. Síðan rak ég augun í þessa frétt: http://visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061019/FRETTIR01/61019043/1092 þar sem sagt er frá því að til stæði að gera orð mín að lögum og að þú stæðir á bakvið gjörninginn. Vissulega er það ákveðið sjokk að framsóknarmaður sé sammála manni um eitthvað. Ekki laust við að manni líði dálítið eins og Sjálfstæðisflokknum. Á sama tíma gefur það manni að vissu leyti von um betri framtíð, að alþingismenn séu æstir í að gera orð manns að lögum. Planið hjá mér var alltaf að gera þau að lögum sjálfur með byltingu, en sannast að segja er ég alveg sáttur við að þú sjáir um erfiðið fyrir mig og klárir þetta með einhverju þrasi í Alþingi enda er ég frekar latur að eðlisfari.

Þar sem þú ert byrjaður að seilast í mínar hirslur eftir hugmyndum að nýjum lögum, vil ég benda þér á að það er af nógu að taka. Vinsamlegast farðu á www.hnakkus.blogspot.com og græjaðu restina fyrir mig. Þú mátt byrja á að setja lög gegn óþarfa hávaða í íbúðarhverfum og láta slökkva á glamrinu í Hallgrímskirkju svo ég og nágrannar mínir fáum frið heima hjá okkur. Síðan er bara að láta hendur standa fram úr ermum og lögfesta restina!

Hafðu svo endilega samband ef þú ert eitthvað óviss um einstaka útfærslur eða ef einhverjir alþingismenn eru eitthvað tregir við að ýta á "já" takkann. Ég er alltaf tilbúinn að aðstoða framsóknarmenn þegar þeir ákveða að gera eitthvað af viti.

Þinn vinur og lærifaðir,
HNAKKUS"


Ef dyggir lesendur hafa svo einhverjar séróskir um lagasetningar þá endilega gaukið þeim að mér svo ég geti sett þær í vinnslu.

Eg vil fá lög um að: allir hjólreiðamenn beri hjálm og endurskinsmerki,allir fótgangandi beri endurskinsmerki í skammdeginu (hundar og hestar líka) allir noti handfrjálsan gemsabúnað á keyrslu annars háar sektir,að öll börn frá 3ja ára læri líffærafræði og um líkaman sinn og helst á latínu, að reykingar verði bannaðar á Íslandi, að foreldrum verði skylt að mæta á uppeldisnámskeið tvisvar sinnum á ári annars engar barnabætur, að ökukennsla verði sett á stundatöflu framhaldsskólanna,að tómstundir barna á kvöldmatartíma sem skemma allt fjölskyldulíf verði bannaðar,að fleiri kirkjuklukkur en í Hallgrímskirkju á sunnudögum verði bannaðar, að unglingsstúlkum verði bannað að vera með skræki í sturtunum í sundlaugunum,að fangelsi verði aftur nefnd betrunarhús og fangar settir í betrun en ekki verstnun, að foreldrar ungra barna fái að vinna færri tíma á viku án skertra launa, að tannlæknaþjónusta verði ókeypis til 18 ára aldurs, næsti gjörðu svo vel

Ég vil lög sem banna framsóknarflokkinn. En það kannski væri einum of gott til að vera satt.

Ég vil fá lög sem allir geta sungið!

Yrði þá endalaus kóræfing í alþingishúsinu?

Skrifa ummæli

Linkur á færslu

Búa til tengil