Unglingavandamál
Ég var að skoða trackerinn minn til að sjá hvaðan ég er að fá heimsóknir á síðuna og sá að í dag hefur hrannast inn fólk af google í leit að einhverju um slagsmál fyrir aftan Háskólabíó sem nú eru orðin fræg. Ég var ekki með neitt um þessi slaxmál en ég vil ekki bregðast almúganum þannig hér hafiði allt sem ég hef að segja um þetta mál...
Síðan unglingar voru fundnir upp um miðja seinustu öld hafa þeir helst þjónað því hlutverki að gera foreldra sína gráhærða og gefa siðapostulum og smáborgurum eitthvað til að tala um á innsoginu. Í kastljósinu í kvöld voru sýnd slagsmál sem fram fóru fyrir aftan Háskólabíó milli tveggja táningspilta. Þau voru tekin upp og sett á netið og hafa valdið slíkri öldu af innsogum að súrefnisbirgðir jarðarbúa eru nánast á þrotum. Umræðan í kringum þetta er skondin. Margir virðast halda að unglingaslaxmál hafi verið fundin upp um leið og stafrænar vídeókamerur og háhraðatengingar og að þetta séu eitthvað sérstök slaxmál af því einhver var svo vitlaus að pósta þeim á netið. Það er auðvitað fjarri lagi. Unglingar hafa lengi haft þann sið að reyna að berja hvorn annan þrátt fyrir renglulega líkamsbyggingu. Þar að auki voru þetta mjög óspennandi og léleg slaxmál sem verðskulda ekki þjóðfélagsumræðu.
Það er vissulega alvarlegt unglingavandamál í gangi en ekki allir virðast átta sig á eðli vandamálsins. Vandamálið er að þessir gríslingar kunna ekkert að slást! Ég fékk næstum stjarfklofa af leiðindum þegar ég horfði á þessa rindla reyna af veikum mætti að sveifla handleggjunum í áttina að hvorum öðrum og ég hló eins og skepna þegar þeir fóru að kútveltast upp úr götunni eins og tveir flogaveikissjúklingar á meðan jóðlandi og bólugrafin unglingahjörð hvatti þá til að "Fokkin buffa" hvorn annan. Herdís Stoorgard þarf ekki að hafa áhyggjur af því að blessuð börnin slasi sig ef þetta er allt og sumt.
Kannski er ég orðinn skemmdur og dofinn tilfinningalega af því að horfa á of mikið af slaxmálakeppnum en eina vandamálið sem ég sá var að þessir litlu englar eru álíka góðir að slást og ég er að prjóna peysur. Hafandi smá sjálfsvirðingu myndi ég ekki mæla mér mót við nokkurn mann fyrir aftan Háskólabíó til að heyja prjónakeppni og þessir drengir ættu að láta líða langan tíma þar til þeir slást fyrir framan myndavélar aftur. Menn af þeirra kaliberi eiga að slást fyrir aftan myndavélar....eða bara við sængina sína. Það er fræðilegur möguleiki á að þeir næðu að "fokkin buffa" hana en bara ef koddarnir skipta sér ekki af.
Kaldlyndi mínu eru eflaust engin takmörk sett en mér er einhvern veginn alveg sama þó "Runni" (Wtf??!) og "Þorri" klóri og bíti hvorn annan fyrir aftan Háskólabíó. Mér er líka einhvern veginn alveg sama þó einhverjum misfullum gelgjum finnist skemmtilegt að horfa á atlotin. Ég er ekki að mæla með þessu og mér finnst þetta ekki gáfulegt athæfi, en þetta er ekkert nýtt og ekkert sem smáborgarar landsins ættu að vera að missa svefn út af. Þetta er hneyksli dagsins. Á morgun hneykslast fólk yfir einhverju öðru á meðan Þorri og Runni (Wtf??!) njóta útivistarbannsins sem þeir eru eflaust í þessa stundina.

Legg hér með inn pöntun fyrir handprjónaðri peysu a la Hnakkus
Posted by
Heiða |
20 september, 2006 09:57
Ég vil verða eins og þú þegar ég verð stór, Hnakkus. Geturðu kennt mér að slást? En auðvitað ekki fyrr en ég er hættur að vera renglan sem ég er í dag.
Ætli ég byrji ekki bara á stönginni áður en ég fer að athuga hve þung lóðin eru...
Posted by
Kalli |
20 september, 2006 10:01
Heiða þú færð eitt stykki illa prjónaða peysu og þig geri ég að massaðri slaxmálahetju Kalli.
Allt fyrir aðdáendurna!
Posted by
Hnakkus |
20 september, 2006 14:47
Bara benda þér á víst að þú ert svona hrikalega gáfaður og veist allt greinilega að þá er er skrifað slagsmál en ekki slaxmál.
En margt til í þessu samt hjá þér
Posted by
Sultan |
25 september, 2006 10:44
Af því ég er svo hrikalega gáfaður þá vil ég benda þér á að maður segir "Fyrst að" en ekki "víst að". "Víst að" þýðir ekki neitt.
Takk annars fyrir að taka eftir því að ég viti allt. Þú náðir þeim parti rétt.
Posted by
Hnakkus |
25 september, 2006 11:46
Það er víst að þýðir allt.
Posted by
Björn |
26 september, 2006 11:11
Allt vaðandi í íslenskufræðingum hérna hjá þér Hnakkus minn :) Heppinn.... eða ekki
Posted by
Heiða |
26 september, 2006 12:02
Já ég er lukkunnar pamfíll.
Posted by
Hnakkus |
26 september, 2006 12:51