Hnakkus

« Home | Glens dagsins Ég er óðum að jafna mig eftir nýjas... » | Líf mitt sem ruslpóstur Í dag var forwardað á m... » | Dómgreindarleysisráðherra Umræða um þjóðfélagsmál... » | Rockstar 101 Ég verð að játa lítið og ljótt le... » | Tobyvaka þórdís frænka er skynsöm og ætlar ekki a... » | Haha Þessi frétt er mjög skemmtileg vægast sagt... » | Leiðir heimska til heimskulegra greina? Leiðand... » | Þegar pabbi er ekki heima Það ætti að setja forse... » | Whampírur! Hugmynd að kvikmynd? Eða er wham nóg... » | Rantur með öllu nema steiktum Guðni fílar pulsu... » 

17.9.2006 

Trúarlúðar

Image Hosting by PictureTrail.com


Trúarbrögð eru svo drulluheimsk. Sjáið nýjasta dæmið? Páfinn móðgar múslima með því að ýja að því að þeir séu ofbeldisfullir og sumir múslimar verða svo sárreiðir að þeir hóta að láta drepa páfa fyrir þessi ósanndindi. Líklega eiga svo einhverjir vegfarendur einhversstaðar eftir að láta lífið af handahófi af því einhver sanntrúaður heimskingi ákveður að hefna sín á páfanum og öllum sem trúa ekki sömu þvælunni og hann sjálfur, með því að sprengja strætó í sundur einhversstaðar svo hann komist til himna til að afmeyja 72 hreinar meyjar sem bíða hans í röðum.

Páfinn sem telur sig hafa efni á að gagnrýna aðra gengur um í kjól og boðar það að almáttugur ofurdraugur sem er einn en samt þrír hafi barnað stúlku til þess að hún myndi eignast son hans en samt hann sjálfan svo hann gæti boðað kenningar sínar á jörðu og síðan látið krossfesta sig til að taka á sig syndir mannanna. Síðan á þessi partur af ofurdraugnum að hafa skotist aftur upp til himna til að sitja við fótskör föður síns...eða sjálfs síns. Ruglingslegt? Já. Heimskulegt? Ó já. Þessu trúir harðfullorðinn maðurinn auk milljarðs manna í viðbót sem lítur á páfann í kjólnum sem umboðsmann almáttuga ofurdraugsins á jörðinni. Hvað vantar í fullorðið fólk sem trúir svona bulli? Þetta er enn ein sönnunin fyrir því að tveir þriðju hlutar mannkyns eru heimskingjar.

Það versta við þetta trúarbragðarusl allt saman er að ég er vakandi kl hálf tíu á laugardagsmorgni að röfla í ykkur og leika mér í microsoft paint af því að helvítis Hallgrímskirkjan vakti mig með vondri tónlist eins og svo oft áður. Ekki nóg með að þessir trúarlúðar spili einhver fokk leiðinleg lög á þetta bjánalega klukkuspil sitt eldsnemma á morgnana, heldur er stærsta bjallan blöstuð nokkrum sinnum í lok hvers lags til að tryggja það að enginn í hverfinu sofi þetta af sér. Líklega eru þessir pisshausar að vonast til þess að ég muni drattast í messu og leggjast á skeljarnar til að tilbiðja þennan þykjustuguð þeirra ef þeim tekst að vekja mig. Think again fávitar!

Ætli eðlilegt fólk fái einhvern tíma að lifa í friði fyrir þessum aumingjum?

Amen, bróðir!!

Svo er talað um að mannkynið hafi þróast síðan það bjó í trjám..

takk fyrir að kalla mig heimskingja.
hefur ÞÉR hinsvegar dottið í hug að flytja burt frá Hallgrímskirkju?

ég bý langt frá Hallgrímskirkju en var samt vakin "fyrir allar aldir" á sunnudagsmorgni af börnunum í blokkinni sem sitja og öskra og æpa í sandkassanum fyrir neðan svalirnar hjá mér. býst við að þetta sé aðferð heimskingjanna sem kunna ekki á getnaðarvarnir til að sýna okkur hinum hvað börn eru yndisleg og mikil himnasending.
nó þenk jú, ég ætla bara að halda mig við hina himnasendinguna, nebbla Jesú bróður...

Jesú sem vildi leyfa börnunum að koma til sín?

huh, hinn sami...HANN vildi þessi börn, ekki ég!

Enn hefur ekki fundist svo frumstæð þjóð að hún hafi ekki aðhyllst einhvers konar trúarbrögð. Trú er því ekki úrkynjun (óðelileg) heldur tegundinni eiginleg, hluti innsta kjarna hennar, þess sem skilgreinir hana. Mun nær væri því að telja trúleysi til úrkynjunar (óeðlilegheita), trúlaus maður sé svona eins og býfluga sem safnar ekki hunangi, ósyndur hvalur, ófleygur örn. Í ljósi þess tek ég undir með þér: Ætli eðlilegt fólk fái einhvern tíma að lifa í friði fyrir þessum aumingjum?

Þetta er náttúrulega vafasöm staðhæfing um að engin trúarbragðalaus þjóð. Þetta er í raun bara dæmi um hvernig mannfræðingar unnu. Þeir komu og sáu ákveðin að ættbálkar höfðu sín ritúöl og sögðu hér eru komin "trúarbrögð". Það segir ekkert til um hvort þeir trúðu á guð eða voru bara að virða forfeður sína.

Í raun voru þeir í því að fylla út hálfgert eyðublað og þeir þurftu að finna eitthvað sem væri hægt að kalla trúarbrögð.

Þessi vinnubrögð hafa verið mikið gagnrýnd af síðari tíma mannfræðingum.

Ég vil reyndar ekki meina að ég sé eins og ósyndur hvalur eða ófleygur örn þó ég skilji ekki trú á yfirnáttúru úr gömlum sögum. Ég vinn fyrir mér eins og aðrir, borga skatta, skemmti mér og öðrum í frístundum og síðan þegar ég drepst þá mun ég sjá ýmsum minni lífverum fyrir nokkrum máltíðum. Ekki ógagnlegri lífmassi en sá næsti vil ég meina.

Ég hef aldrei skilið trú og ég skil hana mun verr eftir því sem ég eldist. Þegar ég var lítill strákur í landakotsskóla reyndi ég að skilja trú og reyndi að hafa opinn huga fyrir þessu öllu. Þá hugsaði ég að varla væru allir þessir merkilegu prestar og allt þetta fólk að bardúsa í þessarri guðstrú allri endalaust ef þetta væri bara bull?. Síðan hef ég lært að fólk gerir ýmislegt án þess að það meiki sens.

Mér finnst síðan pínulítið merkilegt hvað trúuðu fólki sárnar ef maður missir sig smá í pirringi yfir þessu brölti öllu sem í mínum augum gerir mannskepnunni mun meira slæmt en gott. Af hverju skiptir það máli hvað mér finnst ef fólk virkilega trúir á guð og eilíft líf og að þetta jarðlíf sé bara eitt lítið ómerkilegt augnablik í einhverri dásemdareilífð? Ef það trúir á þetta allt, af hverju þá að pirrast út í mig fyrir að vera að hafa skoðanir á trú þegar það er vitað mál að ég er bara einhver vitleysingur sem fer beint til helvítis til að eyða þar eilífðinni á meðan allt trúrækna liðið situr á himnum og sötrar Pina colada. Ég hefði haldið að trúaða fólkið myndi þá frekar vorkenna mér fyrir að brenna í víti að eilífu. Hvar er kærleikurinn :'(

Trúarbrögð eru skepnunni vissulega eiginleg. Það gerir þau samt engan vegin eðlileg. Staðreyndin er að trúarbrögð eru einn af mörgum veikleikum mannskepnunnar. Þetta er bara einfaldur strúktúrismi í óskiljanlegri tilveru mannsins, sem veit ekkert hvað hann á að gera við heilabúið. Það er erfitt að lá mönnum það sem héldu að jörðin væri flöt að búa kerfið til. Það er hinsvegar hlægilegt hvernig nútímamenn hengja sig á vitleysuna.

Hnakkus minn...þú varst að kalla mig heimskingja, pisshaus og fávita og aumingja...
svo skilurðu ekkert í að mér sárni?

Ágæta frænka,

Ég man ekki eftir að hafa kallað þig eitt eða neitt.

Ég hef mínar skoðanir á lífinu og tilverunni og á það til að láta þær flakka. Ef fólk kýs að taka því sem ég skrifa í mishátíðlegu skapi persónulega þá er ekkert sem ég get gert í því.

Það er fráleitt að trúarbrögð séu mannskepnunni eiginleg, eða einhver nauðsynleg stærð.

Að búa til form úr óreiðu er mannskepnunni eðliegt. Trúarbrögð eru stysta leiðin til þess að forma óreiðuna sem lífið er.

Trúarbrögð eru aukageta af þessari tilhneigingu. Sjón-, heyrnar- og þrýstinema kerfi líkamans hafa öll þessa eiginleika, og skýringar manna á atferli sínu og annarra (attribution theory) sýna öll hvernig taugakerfið formar heiminn ef hann er ekki, eða ,,illa," formaður.

Auðvitað er ekki hægt að sanna þetta beint, því ekki lokum við hóp ungbarna inni í búri og gáum hvort þau myndi ekki trúarbrögð, en rannsóknir á mannshuganum skýra trúarfyrirbærið mun betur en rökin um fjölda trúaðra, eða trúarsamfélaga í heiminum.

Menningarleg fyrirbæri geta ekki verið manninum eiginleg. Það þarf alltaf einhver að búa trúna til. Að segja að hún sé eiginleg er eins og að segja að stafróf sé eiginleiki.

þú getur bara látið þig hlakka til næsta ættarmóts... :þ

Hehe.

Ef þig langar að undirbúa hatursræður um mig og mín áhugamál þá þykir mér mjög gaman að öllu sem tengist bardagaíþróttum og slaxmálum, tölvuleikjum og mannáti.

Páfinn er ruglaður, enda væri ekki í þessu þessu hlutverki öðruvísi.

Varðandi fullyrðinguna:
"Menningarleg fyrirbæri geta ekki verið manninum eiginleg. Það þarf alltaf einhver að búa trúna til. Að segja að hún sé eiginleg er eins og að segja að stafróf sé eiginleiki"
Þetta gengur alls ekki upp, einfaldlega vegna þess að margar þjóðir þekktu ekki stafróf fyrr en þeim var kennt það af annarri þjóð. Maðurinn á sér sem sagt sögu sem tegund án stafrófs. Hins vegar á hann sér enga sögu sem tegund án trúar, hvort sem það var trú á guð, guði, gyðju, gyðjur eða forfeðurna/formæðurnar og minningu/anda/sál þeirra. Trúin sem slík er því ekki menningarlegt fyrirbæri eða lært atferli, heldur er hún hluti af eðli tegundarinnar, "instinct" rétt eins og tungumálið. Þótt fólk hafi ekki alltaf átt sér stafróf hefur það nefnilega alltaf átt sér tungumál. Því væri að mínu mati nær að líkja trúnni við tungumálið. Síðan má hins vegar færa fyrir því rök að kannski væri réttara að líkja trúarbrögðunum við stafrófið, þ.e.a.s. að hvort tveggja sé lærð aðferð (og þar af leiðandi breytileg eftir menningarumhverfi rétt eins og stafróf) til að setja fram innsta eðlið, annars vegar merkingu trúarinnar, hins vegar einstakra, misháleitra setninga.

Mér er farið að finnast eins og þeir sem játa trú sína á að guð sé ekki til séu upp til hópa mun heittrúaðri í þeirri afstöðu sinni og óbilgjarnari, ef ekki beinlínis dónalegri, gagnvart þeim sem játa aðra trú, heldur en nokkurn tímann megnið af þeim sem játa trú á guð. Þannig er eins og mér finnist þeir sem játa trú sína á að guð sé ekki til séu til dæmis mun duglegri við að blogga um þá afstöðu sína en þeir sem trúa á guð og séu í bloggi sínu mun orðljótari í garð þeirra sem eru annarrar trúar. Heimskuleg og vanhugsuð orð sem páfi lét nýlega falla um múslima eru þannig beinlínis snyrtileg miðað við margt af því sem heittrúaðir guðleysingjar hafa upp á síðkastið kallað okkur sem kjósum að trúa að guð sé til. Þannig finnst mér ég til dæmis sýna afstöðu guðleysingja mun meiri virðingu en þeir virðast upp til hópa vera færir um að sýna minni afstöðu.

Mig langar ekki að efna til illinda. Fyrir mér er þetta ósköp einfalt. Menn eru einfaldlega mismiklir trúmenn, trúarþörfin er einstaklingsbundin, rétt eins og tjáningarþörfin. (Ég virðist hafa fengið vænan skerf af báðum.) Mig langar bara að hvetja til þess að samræður þessara hópa, guðstrúarmanna og guðleysistrúarmanna, lýsi gagnkvæmri virðingu fyrir afstöðu hinna og fari fram án upphrópana, fordæminga og gífuryrða, því þau eru verkfæri hinna rökþrota. Mér finnst ég hafa rétt á því að tilheyra öðrum hópnum án þess að þurfa að vera kallaður hálfviti, heimskingi, hlandhaus eða viðbjóður af hinum.

P.S. Og svo lýsir það afar umfangsmikilli vanþekkingu á umræðuefninu og ótrúlegt að menntað fólk skuli ekki vita betur, að halda því fram að einhvern tímann í sögu mannkynsins hafi verið farið í stríð út af trúarbrögðum. Það er firra. Menn hafa aldrei farið í stríð fyrir annað en auð og völd, þótt þeir hafi verið duglegir við að réttlæta stríð með trúarbrögðum.

Ég er ósammála því að trú sé manninum á einhvern hátt eðlislæg. Ég hef aldrei séð það rökstutt á neinn sannfærandi máta. Ég aðhyllist þá kenningu að manninum sé eðlislægt að nota sinn þróaða heila til að leita svara og skýringa og til að reyna að skilja umhverfi sitt, orsakir hluta og afleiðingar. Til forna þegar menn stóðu algerlega ráðþrota gagnvart eðli hlutanna bjuggu þeir til ýmsar skýringar. Sólin var guð, vindurinn var guð, vatnið var guð og þar fram eftir götunum. Þessi tegund hugsunar hefur vissulega haldist alveg merkilega vel en ég vil samt gefa tegundinni meira kredit en svo að það sé henni eðlislægt að grípa til órökréttra skýringa á eðli tilverunnar og trúa á yfirnáttúrulegar verur án þess að neitt renni stoðum undir tilvist þeirra nema íhaldssamar hefðir og gamlar hirðingjasögur. Er ekki viss ósanngjörn upphafning fólgin í því að klína eigin fullvissu um eitthvað á alla tegundina sem maður tilheyrir og kalla hana eðlislæga? Það er allvega pæling.

Nú get ég augljóslega ekki haldið því fram í fullri alvöru að allir sem trúa á einhverja yfirnáttúru séu heimskir eða með hland í höfðinu. Slíku er meira beint til hinna öfgafyllri og slíku slettir maður fram í hálfkæringi og gríni sem ekki öllum finnst fyndið. Eðlilega. Mér finnst þú til dæmis vera klár gaur Davíð og ég er sjaldan ósammála því sem þú skrifar nema þegar kemur að trú.

Það er svo alveg rétt að það væri erfitt að finna stríð sem háð hefur verið eingöngu á grundvelli trúardeilna en mér finnst ekki sanngjarnt að segja að ekkert stríð hafi verið háð vegna trúarbragða. Trúarbrögð eru frábær leið til að sameina hópa fólks en einnig frábær leið til að aðgreina mismunandi hópa og til að skapa ósættanlegar deilur. Mörg stríð hefðu ekki náð í gegn ef trúarbrögð hefðu ekki verið til staðar til að berja stríðsbumburnar og afmennska óvininn sem trúir á eitthvað allt annað.

p.s. Þeir sem bera ábyrgð á glamrinu í hallgrímskirkju eru pisshausar í bókstaflegri merkingu. Ekkert grín á ferðinni þar.

Ég benti Davíð hér að ofan á að fullyrðingar um að það séu til trúarbrögð í öllum samfélögum séu vafasöm, þar af leiðir að þær niðurstöður sem hann dregur af því eru ennþá vafasamari. Það þarf allavega mjög opna skilgreiningu á trúarbrögðum til þess að halda þessu fram.

Guðfræðideildin hefur greinilega haft þessar söguskýringar í hávegum. Engin stríð hafa verið háð vegna trúarbragða heyrist reglulega frá hverjum guðfræðingnum á fætur öðrum. Stríðin voru háð til að ná sér í völd, auð eða bæði.

Það er nú þannig, DÞJ, að völd eru óaðskiljanleg trúarbrögðum. Trúarbrögð verða ekki til nema þau séu boðuð, og þeir sem boða þau hafa alltaf eitthvert vald yfir hegðun annarra.

Við gætum haldið áfram að snúa út úr sögunni og sagt að baráttan, sem er sögð vera útaf trúarbrögðum, en ætti fremur að skýra út frá trúarbrögðum og völdum, sé í raun bara Adlerísk minnimáttarkennd hjá fólki.

En þetta er auðvitað bara bull. Alveg eins og bullið um að aldrei hafi verið stríð vegna trúarbragða.

Iðkendur trúarbragða eru líka óaðskiljanlegir trúarbrögðunum og stríð í nafni, eða með réttlætingu, trúarbragða eru vegna trúarbragða.

Að lokum vil ég benda Davíð á að saga mannakynsins er ekki öll þekkt. Þess vegna er fráleitt að halda því fram að ekki sé til saga mannkyns án trúar. Fullyrðingar um eitthvað annað eru einhvers konar Sókratísk fáfræði, þ.e. ég hef lesið svo mikið og þess vegna veit ég, í stað þess að hafa lesið svo mikið að viðkomandi beri skynbragð á að hann geti ekki nálgast allan sannleika.

Trúaðir hafa misnotað raun- og félagsvísindi gríðarlega undanfarið. Ekki veit ég hvort það er ólæsi þeirra á niðurstöður eða bara áhugaleysi á að segja sannleikan sem býr að baki. Hver ástæðan er skiptir þó litlu máli. Það er óþolandi að horfa upp á þetta.

Það er villa hér að ofan. Þar sem stendur [...]skýra út frá trúarbrögðum og völdum[...] á að standa auði og völdum. Vona að þetta hafi ekki sett daginn úr skorðum hjá lesendum Hnakkusar.

Sendu inn athugasemd