Hnakkus: mars 2005

21.3.2005 


Einvígi aldarinnar II

Nú er Bobby Fischer orðinn íslenskur. Eins og fram hefur komið fannst mér þetta stapp í kringum kallinn hálf bjánalegt en nú er að horfa fram á veg og rýna í þá möguleika sem felast í því að besti skákmaður sögunnar sé orðinn Íslendingur. Eins og kunnugt er þá er ég mikill athafnamaður og er nú þegar farinn að plana næsta stórviðburð í kringum skákmeistarann til að gera honum kleift að endurgreiða okkur íslendingum björgunina. En þá er spurningin hvern hann eigi að tefla við...Spassky er nánast hættur....Kasparov er hættur...Jóhann Hjartarson er hættur. En örvæntið ekki...lausnin er fundin! Takið frá tíma fyrir stórviðburð sumarsins.....



EINVÍGI ALDARINNAR II - BOBBY TEFLIR VIÐ PÁFANN!!!!!

20.3.2005 


Ritstuldur

Ég er í fyrsta skipti að mér vitandi orðinn fórnarlamb ritstuldar eins og sjá má á ÞESSUM spjallþræði á barnalandi. Ég er náttúrulega upp með mér enda sýnir þetta svart á hvítu að allir vilja vera ég.

Ég vissi annars ekki að Hannes Hólmsteinn héngi á Barnalandi.

12.3.2005 


Fátækustu menn heims

Nýlega birti Forbes tímaritið lista yfir 500 ríkustu menn í heimi. Íslendingar gátu nú í fyrsta skipti glaðst yfir því að einn af 500 ríkustu mönnum í heimi sé íslendingur. Björgúlfur Thor Björgúlfsson er einn af þeim sem eiga meira enn milljarð bandaríkjadollara á meðan helmingur mannkyns lifir á einum dollara á dag eða minna. Við íslendingar getum því svo sannarlega fyllst stolti yfir því að einn af okkar sonum skuli hafa náð svo langt.

Ríkir menn hafa alltaf fengið sinn skerf af athygli samanber lista Forbes tímaritsins. Þeir fátækustu hafa hinsvegar aldrei fengið mikla athygli. Ég fór því í ferðalag og ákvað því að birta minn eigin lista. Ég kynni með stolti fjóra fátækustu menn jarðar!

4. Búskmaðurinn Mtumbu



Þennan brosmilda búskmann hitti ég í Kalahari eyðimörkinni. Hann var miðlungs maður á heimsvísu hvað varðar eignir en svo týndi hann spjótinu sínu og féll við það niður um einn milljarð sæta. Síðan átti hann líka konu en hún var étin af krókódíl í síðustu viku svo hann féll niður í fjórða sæti frá botni. Hann á núna tvo steina sem hann fann í síðustu viku. Hann býst samt við að týna þeim fljótlega þar sem hann er mjög utan við sig og bindur sterkar vonir við að ná fyrsta sætinu einhvern tíma.

3. Tannlausi betlarinn.



Þessi gat ekki sagt til nafns þegar ég náði tali af honum á götuhorni í Kalkútta en hann sagðist ekki eiga neitt nema þær fáu tennur sem væru eftir uppi í honum. Fötin fékk hann lánuð hjá frænda sínum því hann var á leiðinni í fermingarveislu og þurfti að vera fínn. Hann sagðist hafa átt smá pening í kringum 1983 en eyddi honum í nammi. Síðan hefur hann unnið fyrir sér sem betlari með afar slökum árangri. Þegar ég sagði honum frá árangri björgúlfs í auðsöfnum gapti hann og sagði.."Sá hlýtur að vera með margar tennur!"

2. Skakki körfugerðarmaðurinn



Þennan hitti ég á ströndinni í Burma. Hann átti ekki rassgat....bókstaflega. Hann hefur alltaf verið fátækur sagði hann en í fyrra settist hann á jarðsprengju á fylleríi og hefur ekki átt rassgat síðan. Hann eyðir tímanum á ströndinni, skakkur, að vefja körfur handa túristum. Eini gallinn er að það eru engir túristar þarna. Hann bað mig um að spyrja Björgúlf hvort hann gæti ekki splæst á sig gervi rassgati frá Össuri hf.

1. Holdsveiki gaurinn



Þennan hitti ég í Indlandi. Hann sagðist aldrei hafa átt neitt en hans mottó var alltaf..."ég er þó allavega með tíu fingur og tíu tær!"...well..ekki lengur. Hann fór í sleik við holdsveika gellu á balli og eftir það hefur hallað undan fæti. Þegar ég sagði honum hvað björgúlfur ætti mikið af seðlum þagði hann góða stund...en bað mig svo um að segja honum að passa sig á holdsveiku gellunum.

8.3.2005 


Þrátefli heimskunnar

Djöfull er þetta Bobby Fischer mál að fara í taugarnar á mér. Þetta er allt svo heimskulegt að það ætti að vera löngu búið að þagga þetta í hel en maður þarf að heyra um þessa sápu í fréttunum á hverjum einasta helvítis degi.

Bobby var hálfviti þegar hann kom hingað til að tefla fyrir 30 árum og ekkert bendir til þess að hann hafi eitthvað skánað. Hann sneri öllu á hvolf með frekju og fávitahætti þegar hann var hérna síðast en núna 30 árum seinna ákveða smáseiðin sem ráða á þessu skeri upp úr þurru að það sé líklega sterkur leikur að slá sig til riddara með því að bjarga fávitanum úr fangelsi í Japan þar sem hann dúsir fyrir að hafa viljandi storkað viðskiptabanni til að græða 5 milljónir dollar á skák. Þessi sömu smáseiði settu einmitt nýlega hálfnazísk útlendingalög sem hafa verið notuð til að skófla allskyns útlendingum úr landi og snúa öðrum sem banka upp á í leit að hæli við á punktinum. Það þýðir samt ekki að það sé ekki nóg pláss fyrir eitt stykki leiðinlegan skákfávita! Svo er ekki nóg með að hann fái íslenskt vegabréf gefins án þess að hafa nokkurn tíma sótt um það heldur fær hann fría heimsendingu til Japan! Á kantinum standa svo skáknördar landsins slefandi og skríkjandi af kátínu yfir því að Bobby fái sérmeðferð fram yfir alla hina útlendingana sem margir hverjir eru alvöru pólitískir flóttamenn. Hann kann nefnilega skák...alveg eins og skáknördarnir. Fávitar.

Elsti og besti vinur skákfíflsins, Sæmi rokk, var svo ásamt ófríðu föruneyti látinn fara með vegabréfið til hans, og að sögn eyða þeir vinirnir dögunum í að vera í sleik í gegnum eitthvað öryggisgler grátandi af fögnuði yfir því að hittast loks á ný þó að þeir hafi að vísu ekki haft nokkurn áhuga á að hittast síðustu 33 árin eða svo. Það er eitthvað við fangelsisvist sem vekur áhuga karlmanna á hvor öðrum svo kannski er það bara málið. Endalok farsans verða svo örugglega þau að Bobby kemur til Íslands þar sem hann mun eyða því sem eftir er af ævinni í að spúa gyðingahatri og vera heimskur, leiðinlegur og ofdekraður okkur öllum til mikillar ánægju. Vúppdí fokking dú!!. Ég legg til að hann verði látinn gista í gestaherberginu hjá Davíð ásamt ástmanni sínum Sæma rokk það sem eftir er.

6.3.2005 


Páfinn hress

Páfinn er allur að koma til. Þessi mynd náðist af honum þegar hann brá sér út í glugga til að kasta kveðju á alla sína homies í Vatíkaninu eða "the Big V" eins og hann kallar það víst þessa dagana.



WAAAAAAZZZZZZZUUUUUUUUUP!!!