Hnakkus: janúar 2005

27.1.2005 


Hnakkus RecordZ

Pólitískt rapp er á uppleið og ég ætla mér stóra sneið af þeirri köku. Ég hef með hjálp góðra manna signað eitt helsta stirnið í dag og í sameiningu munum við ríkja sem einræðisherrar á hljómplötumarkaðnum. Brátt munu smellir eins og..."Nuke the south"..."Starve my peepz"..."High on heels" og "North side Playah" óma í sífellu á öldum ljósvakans. Hér er smá forskot á sæluna...fyrsta plötuumslagið, hannað af Anusfruss industries fyrir Hnakkus RecordZ. Píz át hómís!



"Thlow ya handzz in the aaail...i stalve you and i just dont caaale"

-Lil Kim Il 2005

24.1.2005 


UUURG!



Djöfull er ég pirraður. Ég var að horfa á kastljós og feita framsóknarbarnið hann Birkir fékk að vaða uppi með þvílíkt rugl og bull og tveir þingmenn, Rannveig Guðmundsdóttir og Sigurjón Þórðarson ná ekki að reka ofaní hann ruglið. Ef ég hefði verið þarna hefði hann farið grenjandi úr sjónvarpssal og það án þess að ég beitti hann líkamlegu ofbeldi (Það hefði ég gert eftir þáttinn fjarri öllum myndavélum). Þetta er bara spurning um að segja réttu hlutina og reka ruglið aftur ofan í þetta lið.

Feiti fór mikinn og röflaði um þetta fræga álit Eiríks Tómassonar á ákvörðun Halldórs og Davíðs um stuðninginn við Íraksstríðið. Fyrir þá sem hafa misst af því þá kom Eiríkur Tómasson lagaprófessor fram í fréttatíma og sagði að þeir kumpánar hefðu haft fullan rétt lagalega á því að lýsa yfir okkar stuðningi við íraksstríðið einir síns liðs þó að lög segi að öll "meiriháttar" utanríkismál skuli rædd í utanríkismálanefnd. Þegar Eiríkur sagði þetta féllu sumir í stafi og fóru að grenja og héldu að þeir væru búnir að tapa. Aumingjar! Álit Eiríks um þetta mál er nefninlega bull. Rusl. Sorp...og þvæla. Nú spyrja margir sig...."Hvað þykist Hnakkus vita um lög sem Eiríkur veit ekki??". Ekkert...er svarið. Ég veit lítið um lög enda óttast ég fátt meira en að vakna einn daginn sem sveittur lögfræðingur með vatnsgreiðslu og aulaglott. Ég er hinsvegar mellufær í Íslensku en það virðist Eiríkur Tómasson ekki vera. Þetta álit hans hangir nefninlega á því að þetta mál hafi ekki endilega verið..."Meiriháttar". Án þess að vera vatnsgreiddur lögfræðingur með aulaglott leyfi ég mér að leiðrétta Eirík þarna og benda honum á að fletta orðinu "meiriháttar" upp í orðabók menningarsjóðs. Það er talið "meiriháttar" að fara í stríð og myrða tugi og hundruðir þúsunda. Það er líka talið meiriháttar fyrir friðsæla þjóð að vera gerð samsek í slíkum gerningi í fyrsta sinn í sögunni og það þvert gegn eigin vilja. Ef þetta er ekki meiriháttar mál þá er ekkert mál meiriháttar. Það sannast á umræðunni sem hefur enst í bráðum tvö ár og virðist bara færast í aukana.

Birkir framsóknarbarn samkjaftaði svo ekki um þetta ógurlega álit hins mikla "stjórnskipunarsérfræðings" og þingmennirnir tveir féllu því miður í stafi yfir kennivaldsrökum barnsins. Þau hefðu átt að vera búin að lesa álitið og reka svo þvæluna ofan í kokið á krakkanum. Svo hefðu þau líka getað sent mig í staðinn fyrir sig og látið gera þetta almennilega! Í staðinn fékk krakkinn að vaða uppi og var í bullandi sókn allann tímann. Hann var svo farinn að skamma fólk fyrir að vera með "alvarlegar ásakanir" um að Halldór Ásgrímsson væri lygari??? Hann er fokking lygari og Birkir er feitt barn í jakkafötum sem veit ekki neitt. Fokk ég er pirraður. Af hverju eru ekki allir jafn klárir og ég!.

23.1.2005 


Listinn sem hvarf



Umræðan um listann yfir hinar staðföstu þjóðir hefur afhjúpað heimsku margra. Mennirnir í hvíta húsinu segja að listinn sé ekki lengur í notkun. Þjóðarhreyfingin sem heimtaði að við yrðum tekin af listanum hefur fengið sinn skerf af háði fyrir að vilja af lista sem er ekki til. Sagt er að umræðan sé á villigötum en þeir einu sem eru á villigötum eru fáfróðir fylgismenn stríðsins....eins og venjulega.

Það að listinn sé "ekki til" er náttúrulega bull. Listar eru skrifaðir og því næst er hægt að birta þá. Það má eiginlega segja að það sé eðli lista. Eftir birtingu má taka listann og brenna hann. Það breytir því ekki að hann hefur verið birtur og að það sem stóð á honum hefur náð eyrum og augum fólks. Það að tæta eða brenna papprírinn sem listinn var skrifaður á tekur ekki til baka það sem stóð á listanum.

Þessi tiltekni listi er til. Hann er til sem sagnfræðileg heimild um stuðning ríkja við innrásina í Írak og vera okkar á honum er svo sannarlega til staðar í hugum landsmanna. Það sem fólkið vill er að íslensk stjórnvöld dragi stuðning sinn til baka með þeim formerkjum að þeir hafi ekki haft okkar umboð fyrir þessum gjörningi. En aðallega vill fólkið að sem flestir viti að það var aldrei hlynnt þessari innrás. Um það snýst málið...ekki það hvort hægt er að stroka blekið af einhverjum lista sem liggur á botninum á einhverri ruslatunnu í hvíta húsinu. Þeir sem láta hlakka í sér yfir heimsku þeirra sem "vilja af listanum" og halda að málið snúist um eitthvað bréfsnifsi hljóta að teljast þroskaheftir og ættu að eiga sjálfkrafa tilkall til örorku í kjölfarið.

21.1.2005 


Þeir sem vettlingi geta valdið



Kötturinn minn hann Jóakim sem þið kannist kannski við úr færslum eins og "Þjóðaratkvæðagreiðsla um nafn á köttinn" og færslunni "Jóakim" sem fylgdi í kjölfarið þann 22. júlí 2004, er snillingur. Sagt er að gæludýr líkist eigendum sínum sem útskýrir þá bæði snilld kattarins og samviskubit mitt yfir því að gelda hann á sínum tíma. En Jóakim þessi sem heitir by the way ekki í höfuðið á danaprinsi, er með söfnunaráráttu. Hann safnar vettlingum.

Það var mikið hlegið fyrir mörgum vikum þegar hann birtist fyrst á glugganum með vettling í kjaftinum sem ég hélt reyndar fyrst að væri dauð mús (haha dauðar mýs!). Síðan þá hefur hann komið heim með 5 aðra vettlinga auk lítillar litríkrar húfu. Allir vettlingarnir nema einn eru í barnastærð sem gæti útskýrst af því að það er leikskóli í götunni. Jóakim leikur sér síðan með litlu vettlingana og sefur með þá í fanginu eins og versti pervert. Ef þið farið að heyra æ meira af útklóruðum smábörnum með kalsár þá vitiði hverjum það er að kenna. Skál fyrir Jóakim!

19.1.2005 


Af lélegum lygurum

Viðsnúningur Guðna Ágústssonar í íraksumræðu undanfarinna daga hlýtur að teljast með þeim dramatískari sem sést hafa hér á landi eins og sjá má í ÞESSARI FRÉTT frá því fyrr í kvöld. Á tveimur dögum fer Guðni úr því að segja að ákvörðunin um að styðja innrás bandaríkjanna í Írak hafi EKKI verið rædd í ríkisstjórn né í utanríkismálanefnd, yfir í það að segja að hún HAFI verið margrædd bæði í ríkisstjórn og í utanríkismálanefnd. Takið eftir að þegar hann segir að ákvörðunin hafi ekki verið rædd, er hann ákveðinn og afslappaður. Þegar hann svo segir hið gagnstæða tveimur dögum seinna er hann stressaður, fölur og með bauga niður á rassgat. Eins og sjá má HÉR meðal annars er það talið merki þess að menn séu að ljúga þegar þeir líta upp og til vinstri. Þetta er talið merki þess að menn séu að virkja ímyndunaraflið í stað þess að sækja alvöru minningar. Sumir segja líka að það skipti ekki máli í hvaða átt augun fara heldur sé það merki um lygi þegar augun fara á flakk um leið og lygin er sögð.

Takið eftir hvert augun á Guðna fara þegar hann er spurður beint út af fréttamanni Rúv hvort ákvörðunin um að styðja innrás í Írak hafi verið rædd á ríkisstjórnarfundinum að morgni hins 18. mars.

Hverju ætli Dóri hafi hótað honum?

12.1.2005 


Fífl ársins 2004


Myndin er sviðsett

Jæja betra er seint en aldrei...allavega þegar þetta seina kemur frá mér. Ég var búinn að lofa tilnefningum til fífls ársins og hér koma herlegheitin. Athugið að þetta eru bara tilnefningar þar sem ég treysti mér engan veginn til að gera upp á milli þessarra fífla. Ef einhverjum finnst hann skilinn útundan þá bið ég viðkomandi að hafa samband og við kippum því í liðinn.

1.Halldór Ásgrímsson fær að vera efstur fyrir að rjúka á forsíðu moggans og tilkynna fund íslendinga á gjöreyðingarsinnepi ásamt því að vera bara fífl almennt. Þess má að gamni geta að í dag var tilkynnt um að leit á vopnunum hefði verið hætt því þau eru ekki til. Hefðir átt að hlusta á mig og Hans Blix fyrir tveimur árum hæstvirta fífl. Skál.

2. Davíð Oddsson vinur hans fær að vera með fyrir að vera aðeins of staðfastur í mótstöðu sinni við eðlilegan gang náttúrunnar auk þess að hafa lagt stund á almennan fávitaskap á árinu.

3. Jónas Ingi Ragnarsson náriðill og eiturlyfjasmyglari fær að vera með fyrir að halda að hann væri klár og gæti snúið á réttarkerfið með rugli. Í ljós kom að hann var ekki klár og gat ekki snúið á réttarkerfið með rugli. Þessi O.J. okkar íslendinga sem nú situr nú á litla hrauni brást illa við þegar hann frétti af tilnefningunni og sagði að hann yrði pottþétt sýknaður við aðalmeðferð málsins.

4. Sigurður Kári Kristjánsson fær að vera með fyrir almennan fávitaskap. Auk þess er ég vanafastur og kann illa við að sleppa föstum liðum þegar ég níði fólk opinberlega.

5. Kristján Jóhannsson fyrir að halda að hann gæti sungið og gefa út plötu.

6. Björn Bjarnason fyrir að vera barn síns tíma og fyrir að ekki látinn af völdum þessa beinstífa pervertaglotts sem situr pikkfast á andlitinu á honum 24/7. Fær samt prik (í afturendann) fyrir að kommenta reglulega á síðuna mína.

7. Gaurinn sem stal hjólinu mínu! Ég mun finna þig....heyrirðu það! Og ef ekki þig þá mömmu þína! Og systur þína!!! Og frænku þína!! Hmm eftir nánari athugun.....þú mátt bara eiga hjólið....

8. Íslensku friðargæsluliðarnir fyrir að halda að þær væru nógu harðir til að kaupa teppi. Það reyndist misskilningur hjá þeim enda fengu þeir bara handsprengju í punginn og ákváðu að snúa sér að tískusýningum.

Ég er búinn, enda er ég jákvæður ungur maður og á erfitt með að tala illa um marga í einu. Ef ég er að gleyma einhverjum þá treysti ég á að ég verði látinn vita. Góðar stundir.

8.1.2005 


Tízka

taska fyrir bíllyklana?

6.1.2005 


Horft fram á veg

Jónína BjartmarzZZzzZz.. var í sjónvarpinu áðan að tala um að það væri auðvitað vitleysa að vera að horfa stöðugt til fortíðar í þessu íraksmáli og ég sá bara að þetta meikar algjörlega sens sem hún var að segja! Innrásin er nú einu sinni afstaðin. Þetta er búið og gert og nú er uppbyggingin eftir. Við eigum auðvitað ekki að vera að einblína á eitthvað sem er löngu búið og ekki hægt að taka til baka heldur eigum við að horfa fram á veg og gera það besta úr þessu. Leyfa bandaríkjamönnum að byggja upp Írak og kenna þeim á lýðræði og svona!

Svo var Hákon Eydal að koma fyrir rétt í dag fyrir morðið á Sri. Djöfuls vitleysa er það nú. Ekki eins og það lífgi Sri eitthvað við að vera að velta sér upp úr löngu orðnum hlut. Hákon hefur lýst því yfir að hann vilji ala upp börn Sri þegar hann kemur úr fangelsi og allt. Ferlega næs gaur sem greinilega hefur bara áhuga á því að gera það besta úr þessu! Af hverju getur ríkissaksóknari ekki bara horft fram á veg og tekið þátt í uppbyggingu fjölskyldunnar í stað þess að vera með svona niðurrifsstarfsemi! Helvítis afturhaldskommatittur mar.